Söluauglýsing: 948380
Þverholt 21
270 Mosfellsbær
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Fasteignamat
Fasteignasala
Netfang
Símanúmer
![hero](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/1.jpg)
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 4 daga.
- Dagsetning skráningar: 21.09.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 25.09.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 4 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Fasteignasala Mosfellsbæjar 586 8080 kynnir 46 m2 2ja herbergja endaíbúð á 2. hæð í nýju lyftuhúsi við Þverholt 21 í Mosfellsbæ. Stutt í alla þjónustu.
Ný fullbúin 46 m2 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýju lyftuhúsi miðsvæðis í Mosfellsbæ, eignin afhendist fullbúin með gólfefnum, kæliskáp, uppþvottavél og þvottavél. Eignin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Anddyri er með harðparketi og hvítum HTH fataskáp og hattahillu.
Stofa og eldhús í opnu rými með harðparketi á gólfi. Hvít HTH eldhúsinnrétting með kæliskáp, uppþvottavél og þvottavél í innréttingu.
Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi og hvítum HTH fataskáp.
Baðherbergi er með sterkum vinildúk á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, baðinnréttingu og sturtu.
Rúllugardínur verða í gluggum íbúðinni.
Þverholt 21 er 3ja hæða fjölbýlishús með 12 íbúðum. Fjórar íbúðir eru á hverri hæð. Húsið er einangrað að utan og klætt með báruklæðingu. Stigagangur er teppalagður og Schindler lyfta í stigahúsinu. Húsið stendur á sameiginlegri lóð fyrir Þverholt 21-23. Lóð fullfrágengin, 24 bílastæði eru á lóðinni og eru þau sameiginleg með Þverholti 23 (gert er ráð fyrir 1 bílastæði á íbúð) og 3 djúpgámar fyrir sorp. Gönguleið að húsi er hellulögð sem og útisvæði undir svölum fyrir íbúðir á jarðhæð.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með hvítum HTH innréttingum. Electrolux undirborðsofn, uppþvottavél og ísskápur í eldhúsinnréttingu. Tveggja hellu keramik helluborð ásamt viftu. Electrolux þvottavél er inni á baði í miðjuíbúðum, en í eldhúsinnréttingu í endaíbúðum. Eikarlitað harðparket á gólfum, frá Birgissyni ehf. 2 mm vínildúkur á böðum, handklæðaofn, upphengt salerni og sturtuhengi. Philips LED ljósakúpplar eru í loftum íbúðar. Lóð er fullfrágengin, snjóbræðsla er í gönguleið að húsi. Hverri íbúð fylgir eitt bílastæði fyrir framan húsið. Djúpgámar fyrir sorp eru staðsettir miðsvæðis á lóðinni. Húsið er hannað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Byggingaraðili er Byggingafélagið Bakki ehf. sem er fjölskyldufyrirtæki úr Mosfellsbæ með yfir 40 ára reynslu af húsbyggingum. Hefur félagið byggt og afhent 128 fullbúnar íbúðir á sl. 6 árum í Mosfellsbæ. Ath. Byggingafélagið Bakki ehf byggir og selur allar sínar eignir í nafni félagsins.
Þverholt 21, íbúð 0204 - Verð kr. 27.900.000 - Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.
Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.
Einnig er hægt að ná í Svanþór í síma 698-8555, [email protected] og Sigurð í síma 899-1987, [email protected].
Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ. Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
Heimasíða Fasteignasölu Mosfelsbæjar
Fasteignasala Mosfellsbæjar á Facebook
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/1.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/2.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/3.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/4.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/5.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/6.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/7.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/8.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/9.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/10.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/948/380/images/11.jpg)
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 948380
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 27.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 26.250.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 606.522
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 46
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 21.09.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 25.09.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 21.09.2020
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 270
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Þverholt 21
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 2020
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 2
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 1
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 1
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Þverholt
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 21
Húsnúmer eignarinnar.