Söluauglýsing: 943780
Naustabryggja 45
110 Reykjavík
Verð
76.900.000
Stærð
196.7m²
Fermetraverð
390.951 kr. / m²
Tegund
Rað/Par
![hero](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/1.jpg)
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 11 daga.
- Dagsetning skráningar: 28.08.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 08.09.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 11 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Auglýsing
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
***EIGNIN ER SELD OG VAR MIKILL ÁHUGIR - ER MEÐ ÁHUGASAMA KAUPENDUR AÐ SVIPAÐRI EIGN**
**Biðjum fólk að virða 2ja metra regluna - Við erum með handspritt á staðnum**
LAUS VIÐ KAUPSAMNING
Fasteignasala Reykjavíkur og Þórdís Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali kynna:
Sérlega fallegt og vandað tæplega 200 fm raðhús með tvöföldum bílskúr við höfnina í Bryggjuhverfi Reykjavíkur. Fallegt útsýni er af hverri hæð og eru tvennar svalir á miðhæð hússins. Gott viðhald hefur verið á húsinu, steyptur stigi er á milli hæða, eikar hurðar og er parket olíuborið.
Húsið er allt ný málað að innan - parket nýlega olíuborið.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 196,7 fm og er íbúðarrýmið sjálft 155,0 fm og bílskúrinn 41,7 fm.
Bókið skoðun hjá Þórdísi í síma 862-1914 eða á netfangið [email protected]
Aðalinngangur í húsið er sjávarmegin en einnig er innangengt í húsið úr bílskúr.
Á jarðhæð hússins er forstofa, herbergi, þvottahús, baðherbergi og tvöfaldur bílskúr. Öll jarðhæð íbúðarhúss er með sömu flísar á gólfum.
Komið er inn í bjarta forstofuna og er þaðan komið inn í miðrými / gang jarðhæðar. Rúmgott herbergi með tveimur gólfsíðum gluggum er á vinstri hönd. Þvottahúsið er næst því vinstra megin og er það án innréttinga. Baðherbergi jarðhæðar er gengt herberginu og er upphengt salernig, handlaug og flísalögð sturta. Bílskúrinn er tvöfaldur með tveimur bílskúrshurðum og er 41,7 fm. Gólf er málað, tengi fyrir heitt og kalt vatn og er ótengt þriggja fasa rafmagn.
Fallegur steyptur, parketlagður stigi er á milli allra hæða.
Miðhæðin er aðal hæð hússins en þar er stór stofa, borðstofa og eldhús. Olíuborið parket er á gólfi. Svalir bæði til norðurs og suðurs.
Stofan er mjög rúmgóð með fallegum gólfsíðum gluggum og sérlega fallegu útsýni til sjávar og fjalla. Útgengt er á litlar útsýnis-svalir úr stofu sem vísa til sjávar.
Eldhúsið og borðstofan er samliggjandi í opnu og sérlega björtu rými með útgengi á stórar hellulagður suður svalir. Handriði svala er hert matt gler og stál. Í eldhúsinu er viðar innrétting á vegg og í eyju. Í eyju eru útdregnar skúffur, helluborð og er háfur þar yfir. Veggföst innrétting er með flísum á milli skápa, tvöföldum vaski og uppþvottavél.
Efri hæð hússins sem er þó þriðja hæð hefur að geyma þrjú svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi.
Hjónaherbergi er á vinstri hönd þegar komið er upp stigann og er það nokkuð rúmgott með gólfsíðum gluggum með sjávar útsýni. Inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi en án innréttinga.
Baðherbergi er í upprunalegum stíl, flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, handlaug og upphengdu salerni.
Svefnherbergin tvö sem eru gengt hjónaherberginu eru bæði í góðri stærð með fallegum gluggum til suðurs.
Um er að ræða sérlega fallega og vel með farna eign sem er laus til afhendingar við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar veitir Þórdís Davíðsdóttir löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 eða á [email protected]
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Fasteignasala Reykjavíkur skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við sölu á fasteignum frá 2011 og legg ég áherslu á vönduð vinnubrögð og góð samskipti við seljendur og kaupendur.
Þú færð frítt sölumat hjá mér og án skuldbindingar.
Hafðu samband í dag í síma: 862-1914 eða á netfangið [email protected]
Heimasíða Fasteignasölu Reykjavíkur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/1.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/2.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/3.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/4.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/5.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/6.jpg)
Auglýsing
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/7.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/8.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/9.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/10.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/11.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/12.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/13.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/14.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/15.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/16.jpg)
Auglýsing
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/17.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/18.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/19.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/20.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/21.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/22.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/23.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/24.jpg)
Auglýsing
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/25.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/26.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/27.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/28.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/29.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/30.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/31.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/32.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/33.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/34.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/35.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/36.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/37.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/38.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/39.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/40.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/41.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/42.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/43.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/44.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/45.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/943/780/images/46.jpg)
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 943780
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 76.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 68.100.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 390.951
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 196.7
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 28.08.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 08.09.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 28.08.2020
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 110
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Naustabryggja 45
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: raðpar
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 2001
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 6
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 2
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 2
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Naustabryggja
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 45
Húsnúmer eignarinnar.