26.08.2020 943035

Söluskrá FastansÞelamörk 51

810 Hveragerði

hero

8 myndir

54.900.000

430.588 kr. / m²

26.08.2020 - 173 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 14.02.2021

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

127.5

Fermetrar

Fasteignasala

Domusnova

[email protected]
527-1717
Bílskúr
Verönd

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Opið hús: Þelamörk 51B, 810 Hveragerði. Eignin verður sýnd laugardaginn 29. ágúst 2020 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Domusnova kynnir nútímalega hannað 127,5 m2 raðhús með innbyggðum bílskúr í grónu umhverfi í Hveragerði.  Íbúðin sem er 100,5 m2 og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu ásamt 27 m2 innbyggðum bílskúr sem innangengt er í frá íbúð. 
Húsin eru staðsteypt  á einni hæð með fjórum íbúðum í hverri raðhúsalengju.
Á lóð eru tvö bílastæði fyrir hverja íbúð og auk þess eru afmörkuð 2 sameiginleg bílastæði. 


FRÁGANGUR UTANHÚSS:  Húsin verða afhent fullbúin að utan með frágenginni lóð með grasflöt og timburverönd skv. teikningu og hellulögðu bílaplani með hitalögn. Gert er ráð fyrir tengimöguleika fyrir rafmagnsbíl. Burðarvirki hússins er steinsteypt með hefðbundnum hætti.   
Öll opnanleg fög eru með næturopnun. Tvöfalt einangrunargler er frá viðurkenndum framleiðanda .
Útihurðar eru timburhurðir með þriggja punkta læsingu. 
FRÁGANGUR INNANHÚSS: 
Íbúðum er skilað án gólfefna á aðalflötum íbúðar, en votrými, þ.e. baðherbergi og þvottahús, flísalögð.
Innveggir eru klæddir með tvöföldu gifsi, fullspartlaðir og málaðir í málarahvítum lit.
Veggir votrýma eru úr rakaþolnu gipsi.  Veggir baðherbergja eru flísalagðir upp í ca. 2,0m hæð.
Steypt loft eru spörsluð og máluð í málarahvítum lit.  Aukin lofthæð húsa 2,7m sem gerir húsin einstaklega skemmtileg.
Bílskúr er skilað þannig að steyptir veggir og loft verða slípuð, ekki spörsluð, og máluð hvít. Bílskúrshurðar eru hvítar.
Skápar í forstofu, hjónaherbergi, barnaherbergjum eru samkvæmt teikningum með góðum hirslum.
Innrétting í eldhúsi er samkvæmt teikningu, hvít, sprautulökkuð frá IKEA.  Lljúflokunarbúnaður á öllum skúffum.   Innbyggður bakaraofn í eldhúsinnréttingu.
Helluborð af viðurkenndri gerð.  Blöndunartæki í eldhúsi eru einnarhandar tæki af vandaðri gerð.
Baðherbergi er með fallegum innréttingum frá IKEA. Allar salernisskálar eru upphengdar og blöndunartæki fyrir handlaugar eru einnarhandar. Í baðherbergi er sturta og blöndunartæki af vandaðri gerð.
Þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara og skolvask samkvæmt teikningu.  Öryggisniðurfall í gólfi.
Innihurðar eru hvítar frá Birgisson ehf.
Rafkerfi Í íbúðum verða rafmagns- og smáspennutafla. Rofar og tenglar fyrir rafmagn, tölvur og síma verða sett upp til samræmis við raflagnateikningar, en þó með þeirri undantekningu að ekki verður settur endabúnaður í tenglum smáspennulagna vegna ólíkra þarfa kaupenda.  Sjónvarpstengill og einn símatengill í stofu.
Hús eru hituð með gólfhitalögnum, ísteyptum í gólf. 
Neysluvatnslagnir eru rör í rör.  Varmaskiptir með vatnshitastýringum er á heitu neysluvatni og snjóbræðslukerfi fyrir bílastæði og aðkomu að húsi.  Loftræsing lokaðra rýma er um þakventla.
Í eldhúsi og stofu er gert ráð fyrir góðri lýsingu með  dimmer möguleika. Að öðru leyti afhendist íbúðin með einu til tveimur perustæðum í hverju rými.  Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf.
Í íbúðum eru reykskynjari, handslökkvitæki og læstur lyfjaskápur. 
Hljóðeinangrun á milli íbúða verður að lágmarki 55dB.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati eignarinnar þegar endanleg úttek hefur farið fram.
Afhending á eign er í september 2020.
Nánar um eignina á https://www.thelamorkin.is/

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Ath. að Verðmat Fastans er enn í þróun og byggir í dag á mjög grunnum upplýsingum.

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Engir þinglýstir kaupsamningar fundust á þessari eign

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

VerðsagaVerðsaga

Byggt á þinglýstum kaupsamningum

Ekki tókst að sækja verðsögu á þessari eign

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

AuglýsingasagaAuglýsingasaga

Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum

Ekki tókst að sækja fleiri auglýsingar

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

Ekki tókst að sækja eignir.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband