Söluauglýsing: 936287

Vinastræti 4

210 Garðabær

Verð

54.900.000

Stærð

110.3

Fermetraverð

497.733 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

49.450.000

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG
hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 2 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasalan TORG kynnir:
Fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð merkt 103, með suður svalir, stæði í bílageymslu, í nýju lyftuhúsi og skilast fullbúin með gólfefnum, innfeldum ísskáp og uppþvottavél. Eignin er alls 110,4fm að stærð, þar af er 11,3fm sérgeymsla í sameign, ásamt bílastæði í bílakjallara merkt: B11. Íbúðin sjálf er 99,1fm og skiptist í forstofu, baðherbergi, þvottahús, þrjú svefnherbergi, aðalrými með eldhúsi, stofu og útgengi út á svalir til suðurs. Frekari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. í síma 693344 eða [email protected].


Skoðaðu allar íbúðirnar á SÖLUVEF VINASTRÆTIS

Almennt um húsið:
Íbúðirnar í húsinu er 18 talsins. Stærð íbúða er frá 55 fm. upp í 123 fm. og ýmist með svölum eða sérafnotareit með palli. Þvottahús er í flestum íbúðum annars er pláss fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. Geymslur eru í kjallara. Milliveggir íbúða eru hlaðnir í stað þess að vera úr hefðbundnu gifsi. 

Íbúðum fylgir helluborð, blástursofn, háfur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Íbúðir afhendast með gólfefni á öllum rýmum, parket á herbergjum og stofu, flísar í votrýmum. Sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum sem og hlutdeild í sameiginlegum stæðum fyrir utan húsið. Húsið er klætt að utan með vönduðum álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Innréttingar fylgja þar sem á við og eru þær af vandaðri gerð frá GKS innréttingum, framleiddar af Nobilia í Þýskalandi samkvæmt ítrustu gæðakröfum. Reiknað er með að hægt sé að setja upp hleðslustöðvar fyrir bíla í bílageymslu og rafmagnstafla er hönnuð fyrir það. Ekki er þó gert ráð fyrir að ÞG Íbúðir ehf. muni skaffa stöðvarnar.

Urriðaholtið er frábærlega staðsett, óspillt náttúra allt í kringum hverfið, stutt í skóla og verslanir í Kauptúni. Örstutt er niður á Reykjanesbraut og þar með umferðaræðar höfuðborgarsvæðisins.

Frekari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. í síma 693344 eða [email protected].

Það skiptir máli hver byggir fyrir þig. Meginmarkmið ÞG Íbúða ehf.  er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini. Kynntu þér gæðatryggingu ÞG Verks www.tgverk.is/gaedakerfi-tgverk.

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband