02.07.2020 933619
Vesturgata 7
101 Reykjavík
26 myndir
39.900.000
391.945 kr. / m²
02.07.2020 - 14 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 15.07.2020
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
101.8m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
1989Fasteignamat
52.250.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2001744Byggingarnúmer*
1019045Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Væntanlegt
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Eignamiðlun kynnir:
Fyrir eldri en 67 ára! Afar falleg og skemmtilega skipulögð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í góðu lyftuhúsnæði í hjarta miðborgarinnar. Íbúðin er í húsnæði fyrir aðila, sem eru 67 ára eða eldri. Eitt herbergið hefur verið opnað inn í stofu þannig að nú eru tvær samliggjandi stofur í íbúðinni, rúmgott hjónaherbergi og eitt minna herbergi. Skjólgóður lokaður garður í miðju byggingarkjarnans en þar eru gróin tré og bekkir. Heilsugæsla er í húsinu auk mötuneytis og ýmis konar félagsstarfs fyrir eldri borgara. Eigandi íbúðarinnar er með aðgang að einu bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi en greitt er fyrir þann aðgang.Fasteignamat fyrir árið 2021 verður 55.000.000 kr.
Nánari upplýsinar um eignina veitir Hrafnhildur Björk Baldursdóttir lgfs. í síma 862-1110 eða [email protected]
Eignin skiptist í: alrými með eldhúsi og stofu, aðra stofu (sem áður var herbergi), svefnherbergjagang, hjónaherbergi, minna svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu í risi.
Nánari lýsing: gengið er inn í alrými sem er með eldhúsi, borðaðstöðu og góðri stofu. Eldhúsið er með L-laga nýlegri innréttingu, neðri skápum og efri að hluta. Tvær samliggjandi stofur en önnur var áður herbergi og opnað hefur verið á milli rýmanna á skemmtilegan hátt. Nýlegt parket er á alrýminu. Úr alrými er gengið inn í lokaðan svefnherbergjagang og innst í honum er geymsluskápur. Hjónaherbergið er parketlagt og með fataskápum. Lítið svefnherbergi er innst í ganginum á móti hjónaherberginu, það er parketlagt. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, það er með innréttingu og góðum skápum, sturtuklefa og stæði og tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla er í risi íbúðarhússins.
Eigandi íbúðarinnar hefur aðgang að einu bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi og greitt er fyrir þann aðgang.
Fallega gróinn og skjólgóður garður í miðjum byggingarkjarnanum en þar trjágróður og nokkrir setubekkir.
Heilsugæsla er á jarðhæð hússins auk þess sem í húsinu er mötuneyti og ýmiskonar félagsstarf fyrir eldri borgara?
Allar nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Björk Baldursdóttir löggiltur fasteignasali hjá Eignamiðlun, Sími: 862-1110, Netfang: [email protected].
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Eignamiðlun skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur ef eignarhluturinn er 50% eða hærri) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2500 af hverju skjali.
3 Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald fasteignasölu.
Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu [email protected]
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Við erum að vinna að uppfærslu á Verðmati Fastans. Það kemur aftur von bráðar.
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
27.500.000 kr. | 101.80 m² | 270.138 kr./m² | Fjölbýli | 2001744 | 27.08.2015 | ❌ | ||
41.500.000 kr. | 101.80 m² | 407.662 kr./m² | Fjölbýli | 2001744 | 28.01.2021 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 933619
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 39.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 52.250.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 391.945
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 101.8
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 02.07.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 15.07.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 02.07.2020
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 101
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Vesturgata 7
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1989
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 2
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Vesturgata
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 7
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
010101
Bílastæðahús á 1. hæð
3687 m²
Fasteignamat 2025
903.500.000 kr.
Fasteignamat 2024
871.350.000 kr.
010201
Þjónustumiðstöð á 2. hæð
927 m²
Fasteignamat 2025
512.250.000 kr.
Fasteignamat 2024
498.800.000 kr.
010202
Heilsugæsla á 2. hæð
519 m²
Fasteignamat 2025
285.000.000 kr.
Fasteignamat 2024
277.500.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
- ✅
Umsókn / FyrirspurnSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta heilsugæslu fyrir skaðaminnkandi úrræði, gera tvær nýjar flóttaleiðir inn í bílakjallara og koma fyrir pallalyftu við inngang á húsi á lóð nr. 7 við Vesturgötu. Erindi fylgir bréf velferðasviðs.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
- ✅
Endurnýja byggingarleyfi, bn021705 (íbúð 319)Samþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um endurnýjun á leyfi til að loka svölum í Vesturgötu 7. Svalirnar snúa að Garðastræti. Sótt er um endurnýjun fyrir íbúð 319. Upphafleg umsókn nr. 21705. Teikningar samþykktar 10. október 2000. Stækkum 9,7 ferm., 26,2 rúmm.
- ✅
Leiðrétting á bókunSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkÁ afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 10. júní s.l. var samþykkt endurnýjun á byggingarleyfi frá 10. október 2000, þar sem sótt var um lokun svala íbúða 317, 318, 319, 320 og 321. Þetta byggingarleyfi féll úr gildi. Þann 10. júní s.l. var bókað að sótt væri um endurnýjun á byggingarleyfinu frá 10. október 2000, en átti að vera að verið væri að sækja um lokun á svölum íbúðar nr. 318, 0403 samkvæmt meðfylgjandi skráningartöflu. Jafnframt var bókað að stærð væri 9,8 ferm., en á að vera 10,8 ferm.
Samræmist ákvæðum laga nr 73/1997
- ✅
Endurnýjun á byggingarleyfiSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um
Endurnýjun á byggingarleyfiFrestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um
- ✅
Loka svölumSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til þess að loka svölum með rennigluggum á íbúðum nr. 317, 318, 319, 320 og 321 á vesturhlið þriðju hæðar hússins nr. 7 við Vesturgötu. Bréf Húsfélags Vesturgötu 7 dags. 7. maí 1990 fylgir erindinu. Bréf slökkviliðs Reykjavíkur dags. 25. apríl 2000 fylgir erindinu. Stærð: Stækkun v. sólskála, íbúð 317 stækkar um 4,8 ferm., íbúð 318 stækkar um 9,7 ferm., íbúð 319 stækkar um 9,7 ferm., íbúð 320 stækkar um 9,7 ferm. og íbúð 321 stækkar um 9,7 ferm. Stækkun samtals 43,6 ferm. og 117,8 rúmm.
Loka svölumFrestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til þess að loka svölum með rennigluggum á íbúðum nr. 317, 318, 319, 320 og 321 á vesturhlið þriðju hæðar hússins nr. 7 við Vesturgötu. Bréf Húsfélags Vesturgötu 7 dags. 7. maí 1990 fylgir erindinu. Bréf slökkviliðs Reykjavíkur dags. 25. apríl 2000 fylgir erindinu. Stærð: xx
- ✅
(fsp) SvalalokunJákvætt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkStefán Örn Stefánsson spyr f.h. íbúðareiganda hvort leyft verði að loka svölum á fjórum íbúðum af sjö á efri íbúðarhæð hússins á lóð nr. 7 við Vesturgötu. Málinu fylgir bréf fyrirspyrjanda dags. 4. apríl 2000 ásamt umsögn eldvarnareftirlits dags. 25. apríl 2000 og umsögn Borgarskipulags dags 26. apríl 2000.
Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til umsagnar eldvarnareftirlits
- ✅
Áður gerðar lokanir á svölumSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um samþykki fyrir áður gerðum svalskýlum við íbúðir 201 og 316 á vesturhlið hússins á lóðinni nr. 7 við Vesturgötu. Stærð: 2. hæð 7,1 ferm., 3. hæð 7,1 ferm., samtals 14,2 ferm., 38,4 rúmm.
Samþykki meðeigenda dags 18 janúar 2000 fylgir erindinu
Áður gerðar lokanir á svölumFrestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um samþykki fyrir áður gerðum svalskýlum við íbúðir 201 og 316 á vesturhlið hússins á lóðinni nr. 7 við Vesturgötu. Stærð: 2. hæð xxx, 3. hæð xxx
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).