08.06.2020 927995

Söluskrá FastansSjónarvegur 302

210 Garðabær

hero

21 myndir

56.900.000

516.803 kr. / m²

08.06.2020 - 18 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 25.06.2020

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

110.1

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

[email protected]
846-4960
Lyfta
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

ATH - OPIÐ HÚS í glæsilegri sýningaríbúð nr. 201 í Sjónarvegi 3, fimmtudag 11. júní kl. 17.30-18.00. Verið velkomin!

Fasteignasalan TORG kynnir:  Sjónarvegur 1, íbúð 0302: 
Um er að ræða fallega 3ra herbergja íbúð á þriðju hæð í nýju fjölbýlishúsi efst í Urriðaholtinu með stæði í bílageymslu. Alls er eignin 110,1 fm og skiptist íbúðin í hol, baðherbergi, tvö svefnherbergi, annað með fataherbergi, þvottahús og aðalrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Frá stofu er gengið út á svalir til norðurs með fallegu útsýni. Geymsla í sameign er skráð 6,8 fm. Íbúðinni er skilað fullbúinni án gólfefna, þó með flísalögðu baðherbergi, þvottaherbergi og forstofu. 

Öll innanhússráðgjöf frá HAF STUDIO. Allar innréttingar eru frá HTH. Fataskápar hvítlakkaðir en innréttingar á baði og eldhúsi eru grálakkaðar. Borðplötur eru úr ljósum kvarsstein. Fataherbergi inn af hjónaherbergi. Heimilstæki eru frá AEG. Um er að ræða glæsilega íbúð í vönduðu álklæddu húsi með stæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu á fallegum útsýnisstað í Garðabæ. 

Allar nánari upplýsingar veita:
  • Hafliði Halldórsson í síma 846-4960 eða í gegnum netfangið [email protected]
  • Dórothea E. Jóhannsdóttir í síma 898-3326 eða í gegnum netfangið [email protected]

Almennt samkvæmt hluta af skilalýsingu:
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan með steinull 125mm og klætt með álklæðningu frá Áltak. Að innan eru útveggir sandspartslaðir, og málaðir. Forsteyptar einingar eru notaðar í milliloftaplötur, stiga og svalir.  Stigagangar, geymslur og íbúðir eru upphitaðar með hefðbundnu ofnakerfi. Milliveggir eru hefðbundnir gipsveggir með 70 mm grind, einangraðir með 45 mm steinull og klæddir tvöföldu gipsi báðum megin eða steyptir þar sem við á. Íbúðunum er skilað, án gólfefna að undanskildum votrýmum sem verða flísalögð. Í stigahúsi eru forsteyptir stigar, teppalagðir með stigateppi. Veggir í sameign eru spartlaðir og málaðir. Gólf í geymslum, geymslugangi, hjóla og vagnageymslu eru slípuð og máluð. Sameign húsanna skilast með fullfrágenginni lyftu, lyfta er frá Héðinn-Schindler. Bílageymsla er óupphituð og skilast þannig að steyptir veggir og loft eru slípuð en ómáluð. Gólf bílageymslu er steypt.
Frágangur íbúða samkvæmt hluta af skilalýsingu:
Gólf: Gólf votrýma eru flísalögð með flísum frá Parka.  Veggir: Steyptir innveggir eru heilsandspartlaðir og málaðir með plastmálningu. Léttir innveggir eru klæddir með tvöföldu gipslagi á hvorri hlið, fullspartlaðir og málaðir í ljósum lit. Gluggar: Gluggar eru ál-tré frá BYKO, málaðir hvítir að innan. Svalir: Eru með sérsmíðuðu handriði frá vélsmiðjunni Fleyg. Innihurðir: Hefðbundnar yfirfelldar hurðir, plastlagðar hvítar, frá Parka. Eldhús: Innréttingar grálakkaðar með mattri áferð frá HTH. Borðplata er úr ljósum kvartstein. Í borðplötu er yfirfelldur stálvaskur með borði. Eldhústæki keramikhelluborð, ofn, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél eru frá AEG. Háfur er Airforce. Öll tæki eru frá Ormsson. Baðherbergi: Innrétting er grálökkuð frá HTH. Veggir í baðherbergjum eru flísalagðir að hluta í 2 metra hæð með flísum frá Parka. Gólfflísar á baði eru frá Parka. Hreinlætistæki frá TENGI eða sambærilegt. Svefnherbergi: Skápar í herbergjum eru hvítlakkaðir, frá HTH. Forstofa: Skápar í forstofu eru hvítlakkaðir, frá HTH. Þvottahús: Gólf er flísalagt með flísum frá Parka. Geymslur: Geymsla fylgir hverri íbúð annaðhvort í íbúð eða í kjalla . Veggir eru spónaplötur og steyptir veggir og loft skilast sprautumálað í ljósum lit, engar hillur fylgja.
 
Allar nánari upplýsingar veita Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali gsm: 898-3326 [email protected] og Hafliði Halldórsson gsm 846-4960 [email protected]
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða  1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kringum kr. 50.000.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 65.000,- með vsk.

 
 

 

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

Ekki tókst að sækja eignir.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband