20.04.2020 916308

Söluskrá FastansFellsás 9

270 Mosfellsbær

hero

19 myndir

46.900.000

350.000 kr. / m²

20.04.2020 - 7 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 26.04.2020

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

134

Fermetrar

Fasteignasala

101 Reykjavík

[email protected]
896 0669
Aukaíbúð
Heitur pottur
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

101 Reykjavík fasteignasala og Sif Eir Magnúsdóttir lögmaður og lgf. kynna: Mjög rúmgóð og björt 134m2  neðri sérhæð og aukaíbúð með stórfenglegu útsýni í Fellsási 9A, 270 Mosfellsbæ.

Lýsing eignar: 
Til að komast á neðri hæðina er gengið niður stiga meðfram húsinu. Á neðri hæð eru tvær íbúðir. Báðar með sérinngangi. Í stærri íbúðinni er gengið inn í flísalagt anddyri með skápum, þaðan er gengið inn í rúmgott hol og þaðan inn í stofu og eldhús. Flísar á gólfum. Látlaus innrétting í eldhúsinu, flísar á milli skápa. Úr holi er gengið inn í baðherbergið sem er með lítilli innréttingu og baðkari. Flísar á gólfum og veggjum. Aðstaða fyrir þvottavél. Úr holi er gengið inn í mjög stórt rými sem notað er sem hjónaherbergi, flísar á gólfum. Eitt svefnherbergi er í íbúðinni, með flísum á gólfi og skápum. Lítil geymsla er í íbúðinni. Úr smærri íbúðinni er gengið inn í rými sem notað er sem stofa og eldhús, flísar á gólfum. Bráðabirgðainnrétting í eldhúsi. Úr þessu rými er gengið inn á lítið bað með sturtu, veggsalerni og handklæðaofni. Lítil baðinnrétting. Flísar á gólfi og veggjum. Aðstaða fyrir þvottavél. Lítið gluggalaust svefnherbergi er í íbúðinni án gólfefna. Bílastæðið fyrir framan húsið rúmar fimm bíla, bílastæðið er ófrágengið með möl. Garðurinn er grasi vaxinn en ekki með trjám eða gróðri. Við útgengi úr stofu er hægt að gera skemmtilegan pall með heitum potti. Tvö skýli eru fyrir sorptunnur, eitt fyrir hvora hæð. Útsýnið er stórfenglegt, sést til allra átta og til Snæfellsjökuls. 

Fellsás 9A var áður parhús með tveimur íbúðum. Nýjum eignaskiptasamningi hefur verið þinglýst og skiptir hann húsinu upp í fjögur fastanúmer í stað tveggja áður. Fyrir liggja samþykktar teikningar fyrir neðri hæðina. Kaupendur taka við eigninni í því ástandi sem hún er í m.t.t. framkvæmda sem ráðast þarf í, til samræmis við teikningar og eignaskiptasamninginn.

Samantekt: Mjög skemmtileg eign með mikla möguleika á frábærum útsýnisstað. Stutt í alla helstu þjónustu og skóla, stutt í frábæra útivist.

Nánari upplýsingar veitir Sif Eir Magnúsdóttir lögmaður og lgf., í síma 896 0669, tölvupóstur [email protected].

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
134

Fasteignamat 2025

85.000.000 kr.

Fasteignamat 2024

83.550.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
134

Fasteignamat 2025

78.500.000 kr.

Fasteignamat 2024

77.700.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband