Söluauglýsing: 902891

Gissurarbúð 6

815 Þorlákshöfn

Verð

57.900.000

Stærð

207.2

Fermetraverð

279.440 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

44.800.000

Fasteignasala

Helgafell Fasteignasala

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 324 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

HELGAFELL fasteignasala kynnir:

Gissurarbúð 6, 815 Þorlákshöfn:
Fallegt og vel skipulagt 5. herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 207,2 fm. þar af er íbúðarhluti 153,3 fm. og bílskúr 53,9 fm. Umhverfis húsið er gróinn og fallegur garður með tveimur sólpöllum. Húsið er vel staðsett innarlega í Gissurarbúð og miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug.


Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpshol, svefnherbergisgang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr (geymsla).

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX


Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á stóran suðuraustur sólpall. 
Sjónvarpshol: Rúmgott hol með flísum á gólfi.
Eldhús: Flísalagt bjart eldhús með góðri innréttingu, nýlegur Samsung ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur, flísar milli skápa og fallegur bogadregin borðkrókur. 
Hjónaherbergi: Stórt parketlagt hjónaherbergi með miklu skápaplássi.
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt herbergi með fataskáp. 
Svefnherbergi 3: Gott parketlagt herbergi með fataskáp.
Svefnherbergi 4: Gott parketlagt herbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með stóru baðkari og sturtu, upphengdu salerni og góðri innréttingu. Flísar á gólfi og veggjum og útgengi út á suður sólpall.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús með góðum skáp, vinnuborði og vask. 
Bílskúr: Innbyggður bílskúr með flísum á gólfi, góð innrétting, heitt og kalt vatn, skolvaskur, útgönguhurð er í enda bílskúrsins út austur sólpall og rafopnun er á bílskúrshurð. Á teikningu er gert ráð fyrir 7,7 fm. geymslu í enda bílskúrsins. Ný eldvarnahurð á milli íbúðar og bílskúrs.
Innréttingar: Allar innréttingar (nema þvottahúsi og bílskúr) eru úr eik og framleiddar af Trésmiðjunni Fagus ehf.
Húsið: Er timburhús klætt með steinflísum. Aukin lofthæð og halogen lýsing er í lofti í stofu, sjónvarpsholi og eldhúsi. Gólfhiti er í öllu húsinu og hitastilling í hverju rými. Geymsluloft að hluta yfir lofti. Nýbúið er að bera á allt tréverk utanhúss.
Lóð: Gróinn 810 fm. lóð sem er að mestu leiti frágengin. Framan við húsið er malarlögð innkeyrsla. Á suðurhlið hússins er stór sólpallur og á bakhlið hússins er sólpallur. 

Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi. Hvað segja íbúar? Smella hér.
 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 68.820,- m/vsk.

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband