31.01.2020 900130

Söluskrá FastansGylfaflöt 17

112 Reykjavík

hero

5 myndir

55.000.000

237.581 kr. / m²

31.01.2020 - 3 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 02.02.2020

Svefnherbergi

Baðherbergi

231.5

Fermetrar

Kjallari

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

BERG fasteignasala kynnir:

TIL SÖLU nýtt steinsteypt iðnaðar og skrifstofuhúsnæði við Gylfaflöt í Grafarvogi.
Húsnæðið er á tveimur hæðum þar sem iðnaðarrými á jarðhæð er 185,8fm, skrifstofurými á 2.hæð er 181,3fm og millifllötur er 4,2fm.
Góð Staðsetning. Samtals 371,3fm.
 
Nánari lýsing
Á jarðhæð er iðnaðarrými með tveimur innkeyrsluhurðum ( hægt að keyra í gegn). Að framanverðu er hæð innkeyrsluhurðar 3,9m en 3m að aftanverðu. Á 2.hæð er gert ráð fyrir skrifstofu með kaffistofu og snyrtingu. Gert er ráð fyrir að afhenda húsnæðið á byggingastigi 4 með fullfrágenginni lóð en þó umsemjanlegt. Skipulagi hægt að breyta á báðum hæðum.

Skilalýsing
Húsið
verður fullklárað að utan með klæðningu, útiljósum, niðurföllum og því sem nauðsynlegt er. Bréfalúgur í hurðum. Lóð verður með malbiki, niðurföllum, sameiginlegum tveimur olíuskiljum (við B9101), skilveggjum, gróðri og kantsteini þar sem við á. Sameiginlegt inntaksrými fullklárað, málað, lagnir og inntök. Þrívíddarmyndir gefa hugmynd um endanlegt útlit en fyrirvari gerður um deili, endanlega liti/litatóna og frágang klæðninga. 
Lýsing rýma/hverrar einingar:  
Að innan verður húsið afhent á byggingastigi 4 auk eftirfarandi þátta. Kaupandi útvegar nýja iðnmeistara og byggingastjóra nema samið sé um annað og kostar breytingar á teikningum:
• Þak verður fullfrágengið að utan og með einangrun og rakasperru að neðan. Búið verður að koma fyrir loftræstirörum í þaki og ganga frá þeim við rakasperru. Kaupandi gengur sjálfur frá lagnagrind, raflagnarörum/dósum og klæðningu og kostar breytingar á teikningum ef þörf krefur.
• Rafmagn: Rafmagnstafla verður komin með mæli og höfuðöryggi og tenglum sem tengja á vinnuljósum/keyrsluhurðir en annars ekki kláruð eða frágenginn né merkt. Lagt er að og tengt fyrir keyrsluhurðir.  Keyrsluhurðir eru uppsettar með mótorum og rofum.  Ekki eru almennt steyptar dósir/lagnaleiðir í veggjum eða loftum nema að hluta heldur gert ráð fyrir utanáliggjandi lögnum/stokkum að stórum hluta (sjá rafmagnsteikningar). Útiljós eru komin og tengd í töflu með sólúri. Dós er fyrir viðbótar útiljós í hurðargati. Smáspennutafla með ídráttarröri f. ljósleiðara úr inntaksrými sér eða pláss fyrir í aðaltöflu/töflu 2 hæðar með skilrúmi. Gert ert ráð fyrir að hvert bil hafi þriggja fasa rafmagn, möguleiki á allt að 63A tengli en hver heimtaug er 200A sem skiptist á 4 bil.
• Miðstöð: Inntök kominn í húsið/hvert bil en miðstöðvarlögn ekki lögð. Húsið er teiknað m.v. hefðbundið ofnakerfi á efri hæð og gólfhita á jarðhæð, lagnir utanáliggjandi. Búið verður að leggja rör fyrir snjóbræðslu fyrir framan aðalkeyrsluhurð sem eru teiknuð á bakrásarlögn. Hiti kominn á gólfhita jarðhæðar en tengingar/stýringar ekki fullfrágengnar.
• Neysluvatn: Inntök komin í hvert bil en ekki lagt.
• Frárennsli: Frárennslislagnir eru PVC-U eða sambærilegt í gólfi jarðhæðar, eftir að leggja að/í  rýmum. Niðurföll í gólfi jarðhæðar. Ófrágengið í kringum göt.
• Stigi: Stigi er steyptur. Stigahandrið/handlistar ekki komið og fínfrágangur/sléttun stiga eftir.
• Málning/gólf: Allir veggir/loft og gólf eru ómeðhöndluð. Afrétting, fínfrágangur, möguleg slípun og undirbúningur gólfa/stigaþrepa á hendi kaupanda.
• Milliveggir: Engir léttir milliveggir eru komnir upp.
• Gluggar/útihurðir: Eru tilbúnir frá framleiðanda að utan en loka/þrifaumferð af málningu eftir sem og annar frágangur þar í kring eftir smekk hvers og eins s.s. sólbekkir/lagfæring úthorna og afrétting steypu.  

Afhending: Stefnt er að afhendingu áramót 2019/2020. Nánar skilgreind í kaupsamningi. Fyrirvari um minniháttar breytingar og fínfrágang lóðar allt að  6 mánuði eftir afhendingu. 

Viltu fullklárað? Hægt er að semja um fullnaðarfrágang einstakra verkþátta og er þá gefið verð í hvern fyrir sig. Áætlað er að kostnaður við fullfrágengið minna bil (231,5fm) án gólfefna, sé um 14 milljónir. 

Söluverð eignarinnar miðast við að kaupandi yfirtaki áhvílandi VSK-kvöð.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á og er 0,3% af endanlegu brunabótamati.
Húsnæðið selst veðbandalaust

Nánari upplýsingar hjá Berg fasteignasölu í síma 588-5530 eða eftirfarandi starfsmönnum:
Davíð Ólafsson löggiltur fasteignasali, löggiltur leigumiðlari og viðskiptafræðingur - sími. 896-4732 - netfang: [email protected]
Pétur Pétursson
löggiltur fasteignasali - sími 897-0047 - netfang: [email protected]

Heimasíða Berg fasteignasölu:  www.berg.is


Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Berg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.440,- m/vsk
 

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
55.000.000 kr.231.50 237.581 kr./m²250235609.07.2020

57.500.000 kr.231.50 248.380 kr./m²250235523.10.2020

87.900.000 kr.231.50 379.698 kr./m²250235507.07.2022

93.000.000 kr.231.50 401.728 kr./m²250235411.01.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Iðnaður á 1. hæð
371

Fasteignamat 2025

103.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

96.900.000 kr.

010102

Iðnaður á 1. hæð
231

Fasteignamat 2025

73.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

68.750.000 kr.

010103

Iðnaður á 1. hæð
231

Fasteignamat 2025

73.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

68.750.000 kr.

010104

Iðnaður á 1. hæð
231

Fasteignamat 2025

73.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

68.750.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

  1. Umsókn / FyrirspurnSamþykkt

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055175 þannig að innra skipulagi rýmis 0203 er breytt í húsi á lóð nr. 17 við Gylfaflöt.

    Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

  2. Breyting á innra skipulagiSamþykkt

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN054616 þannig að innra skipulagi í iðnaðarbilum 0101. 0102 og 0103 breytist lítillega í iðnaðarhúsi á lóð nr. 17 við Gylfaflöt. Erindi fylgir yfirlit breytinga á A3 afriti af teikningum samþykktum 2. október 2018.

  3. BN054616 - Breyting á texta varðandi algilda hönnun.Samþykkt

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054616 þannig að texta um algilda hönnun er breytt í byggingarlýsingu húss á lóð nr. 17 við Gylfaflöt.

  4. Iðnaðarhúsnæði breytingar og stækkunFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN54616 þannig að byggingarefni hússins verði steypa í stað stálgrindar og settar verði upp flóttasvalir við öll rými í húsi nr. 15 við Gylfaflöt. Stærðir:


Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

PóstlistiÁbendingarHafa samband