Söluauglýsing: 895691

Tjarnarstígur 1

825 Stokkseyri

Verð

52.000.000

Stærð

167.4

Fermetraverð

310.633 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

38.150.000

Fasteignasala

Byr

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 358 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Byr fasteignasala hefur fengið í einkasölu Tjarnarstíg 1 á Stokkseyri. Einbýlishús með fjórum svefnherbergjum, bílskúr og stórum garði. 

Um er að ræða einbýlishús, byggt árið 2005, byggingarefni er timbur. Eignin er samtals 167,4 fm að stærð, íbúðin er 122,5 fm og bílskúrinn er 44,9 fm. 

Nánari lýsing: 
Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp. 
Eldhúskrókur inn af stórri stofu og borðstofu. Flísar á gólfi í eldhúskrók. Eldhúsinnrétting er frá Fríform, með góðu skápaplássi.
Útgengt er á sólpall frá borðstofu sem er björt með stórum gluggum. 
Rúmgóð og björt stofa sem er opin í alrými með borðstofu, eldhúsi og leiðir inn á herbergjagang. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar, sturta, upphengt wc, góð innrétting með einni handlaug. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með góðum fataskápum. Auka svefnherbergi er inn af bílskúr, upprunalega teiknað sem þvottahús og geymsla. Þar er parket á gólfi og útgengt út í garð. 
Lítil flísalögð forstofa er á milli íbúðar og bílskúrs sem er innangengur. 
Bílskúr er með máluðu gólfi. Þar er rúmgóð innrétting með pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Í bílskúr er lúga upp á háaloft sem er yfir bílskúr hússins. 

Stór sólpallur er við suðurenda hússins. Steypt stétt er fyrir framan hús og möl í bílaplani. Garðurinn er gróin, engir nágrannar norðanaustan við húsið en þar er stórt opið svæði. 

Fallegt og nýlegt einbýlishús á Stokkseyri sem er 14 km frá Selfossi og tilheyrir því sveitarfélaginu Árborg. Húsið er stutt frá grunnskóla og íþróttavelli. Kynntu þér part af sögu Stokkseyrar HÉR.

Smelltu hér til þess að fá söluverðmat á eignina þína þér að kostnaðarlausu.
 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - [email protected] 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og framkvæmdastjóri. s. 859 5885 – [email protected]
Gunnar Biering, sölufulltrúi. s. 823 3300 - [email protected]

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv verðskrá og kemur fram á kauptilboði. 

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 4, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband