11.12.2019 892589
Gylfaflöt 17
112 Reykjavík
1 myndir
55.000.000
237.581 kr. / m²
11.12.2019 - 6 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 16.12.2019
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
231.5m²
Fermetrar
Tegund
AtvinnuhúsnæðiByggingarár
2019Fasteignamat
5.440.000Inngangur
Tveir inngangarFastanúmer*
2502354Byggingarnúmer*
1161557Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir:
Jöfur kynnir til sölu nýtt steinsteypt iðnaðar-/skrifstofuhúsnæði við Gylfaflöt í Grafarvogi.Gylfaflöt 17: Eignin eru á tveimur hæðum.
F2502354 merkt 01 0102
1. hæð 01 0101 er 120 fm.
2. hæð 01 0202 er 111,5 fm.
Samtals 231,5 fm.
Lofthæð neðri hæðanna er 4,2 m. Hæð innkeyrsluhurða að framanverðu er um 3,9 m. Hæð innkeyrsluhurða að aftanverðu er um 3 m. Gegnumkeyrsla er því möguleg, uppskipting rýmis og/ eða sveigjanlegra fyrirkomulag. Heildarflatarmál alls hússins er 2.131,6 fm. þ.a. eru um 1.100 fm. að grunnflatarmáli og eru einingarnar samtals 8. Fjórar eru með aðkomu frá Bæjarflöt og fjórar frá Gylfaflöt. Tvær stærðir eininga í boði, þ.e. 231,5 fm. (4 einingar) og 371,3 fm. (endabil, ein eining). Staðsetning hússins er heppileg með tilliti til nálægðar stofnbrauta s.s. Höfða/ Ártúnsbrekku og Vesturlandsvegar.
Eignirnar verða afhentar á byggingarstigi 4 en með fullfrágenginni lóð.
Nánari skilalýsing:
Húsið verður fullklárað að utan með klæðningu, útiljósum, niðurföllum og því sem nauðsynlegt er. Bréfalúgur verða í hurðum. Lóð malbikuð með niðurföllum, sameiginlegum tveimur olíuskiljum (við Bæjarlind 9 01 0101), skilveggjum, gróðri og kantstein þar sem það á við. Sameiginlegt inntaksrými fullklárað, málað, lagnir og inntök. Þrívíddarmyndir gefa hugmynd um endanlegt útlit en fyrirvari er gerður um deili, endanlega liti/ litatóna og frágang klæðningar.
Lýsing rýma/ hverrar einingar:
Að innan verður húsið/ einingarnar afhentar á byggingarstigi 4 auk eftirfarandi þátta. Kaupandi útvegar nýja iðnmeistara og byggingastjóra nema um annað sér sérstaklega samið og ber kostnað á breytingum á teikningum.
Þak: verður fullfrágengið að utan og með einangrun og rakasperru að neðan. Búið verður að koma fyrir loftræstirörum í þaki og ganga frá þeim við rakasperru. Kaupandi gengur sjálfur frá lagnagrind, raflagnarörum/ dósum og klæðningu og kostar breytingar á teikningum ef þörf krefur.
Rafmagn: Rafmagnstafla verður komin með mæli og höfuðöryggi og tenglum sem tengja á vinnuljós / innkeyrsluhurðir en annars ekki kláruð eða frágengin né merkt. Lagt er að og tengt fyrir innkeyrsluhurðir. Innkeyrsluhurðir eru uppsettar með mótorum og rofum. Ekki eru almennt steyptar dósir/ lagnaleiðir í veggjum eða loftum nema að hluta, heldur er gert ráð fyrir utanáliggjandi lögnum/ stokkum að stórum hluta (sjá rafmagnsteikningar). Útiljós eru komin upp og tengd í töflu með sólúri. Dós er fyrir viðbótar útiljós í hurðargati. Smáspennutafla með ídráttarröri fyrir ljósleiðara úr inntaksrými sér eða pláss fyrir í aðaltöflu/töflu 2. hæðar með skilrúmi. Gert er ráð fyrir að hvert bil hafi þriggja fasa rafmagn, möguleiki á allt að 63AH tengli en hver heimtaug er 200AH sem skiptist á 4 bil. Ídráttarrör liggur undir malbiki fyrir raflögn fyrir gáma úr hverju bili.
Miðstöð/ kynding: Inntök komin i húsið/ hvert bil en miðstöðvarlögn ekki lögð. Húsið er teiknað m.v. hefðbundið ofnakerfi á efri hæð og gólfhita á jarðhæð, lagnir utanáliggjandi. Búið verður að leggja rör fyrir snjóbræðslu fyrir framan aðalkeyrsluhurð sem eru teiknuð á bakrásarlögn, en ótengd. Hiti kominn á gólfhitalögn jarðhæðar en tengingar/ stýringar ekki fullfrágengnar.
Neysluvatn: Inntök komin inn í hvert bil en ekki lagt.
Frárennsli: Frárennslislagnir eru PVC-U eða sambærilegt í gólfi jarðhæðar, eftir að leggja að/ í rýmum. Niðurföll í gólfi jarðhæðar. Ófrágengið í kringum göt.
Stigi: Stigi er steyptur. Stigahandrið/ handlistar ekki komið og fínfrágangur/ sléttun stiga eftir.
Málning/ gólf: Allir veggir/ loft og gólf eru ómeðhöndluð. Afrétting, fínfrágangur, möguleg slípun og undirbúningur gólfa/ stigaþrepa á hendi kaupanda.
Milliveggir: Engir léttir milliveggir eru komnir upp.
Gluggar/ útihurðir: Eru tilbúnir frá framleiðanda að utan en loka/ þrifaumferð á málningu eftir sem og annar frágangur þar í kring eftir smekk hvers og eins s.s. sólbekkir/ lagfæring úthorna og afrétting steypu.
Afhending: Stefnt er að afhendingu um áramótin 2019/2020. Nánar skilgreind í kaupsamningi. Fyrirvari um minniháttar breytingar og fínfrágang lóðar allt að 6 mánuði eftir afhendingu.
Viltu fullklárað húsnæði? Hægt er að semja um fullnaðarfrágang einstakra verkþátta og er þá gefið verð í hvern verkþátt fyrir sig. Áætlað er að kostnaður við fullfrágengið minna bil, án gólfefna sé um 14 milljónir kr.
Áhvílandi vsk.-kvöð er á eignunum og miðast söluverð eignar við að kaupandi yfirtaki þá kvöð.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á og er 0,3% af endanlegu brunabótamati.
Húsnæðið selst veðbandalaust.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur [email protected]
Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur en 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 68.200.-
Hafðu beint samband við löggilta fasteignasala og leigumiðlara Jöfurs:
Helgi Már Karlsson - 897-7086
Bergsveinn Ólafsson - 863-5868
Ólafur Jóhannsson - 824-6703
Magnús Kristinsson - 861-0511
Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
55.000.000 kr. | 231.50 m² | 237.581 kr./m² | Atvinnuhúsnæði | 2502356 | 09.07.2020 | ✅ | ||
57.500.000 kr. | 231.50 m² | 248.380 kr./m² | Atvinnuhúsnæði | 2502355 | 23.10.2020 | ✅ | ||
87.900.000 kr. | 231.50 m² | 379.698 kr./m² | Atvinnuhúsnæði | 2502355 | 07.07.2022 | ✅ | ||
93.000.000 kr. | 231.50 m² | 401.728 kr./m² | Atvinnuhúsnæði | 2502354 | 11.01.2024 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 892589
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 55.000.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 5.440.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 237.581
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 231.5
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 11.12.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 16.12.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 11.12.2019
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 112
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Gylfaflöt 17
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : atv.
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2019
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 0
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 0
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 0
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Tveir inngangar
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Gylfaflöt
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 17
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
010101
Iðnaður á 1. hæð
371 m²
Fasteignamat 2025
103.100.000 kr.
Fasteignamat 2024
96.900.000 kr.
010102
Iðnaður á 1. hæð
231 m²
Fasteignamat 2025
73.150.000 kr.
Fasteignamat 2024
68.750.000 kr.
010103
Iðnaður á 1. hæð
231 m²
Fasteignamat 2025
73.150.000 kr.
Fasteignamat 2024
68.750.000 kr.
010104
Iðnaður á 1. hæð
231 m²
Fasteignamat 2025
73.150.000 kr.
Fasteignamat 2024
68.750.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
- ✅
Umsókn / FyrirspurnSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að breyta erindi BN055175 þannig að innra skipulagi rýmis 0203 er breytt í húsi á lóð nr. 17 við Gylfaflöt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
- ✅
Breyting á innra skipulagiSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN054616 þannig að innra skipulagi í iðnaðarbilum 0101. 0102 og 0103 breytist lítillega í iðnaðarhúsi á lóð nr. 17 við Gylfaflöt. Erindi fylgir yfirlit breytinga á A3 afriti af teikningum samþykktum 2. október 2018.
- ✅
BN054616 - Breyting á texta varðandi algilda hönnun.Samþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að breyta erindi BN054616 þannig að texta um algilda hönnun er breytt í byggingarlýsingu húss á lóð nr. 17 við Gylfaflöt.
Iðnaðarhúsnæði breytingar og stækkunFrestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að breyta erindi BN54616 þannig að byggingarefni hússins verði steypa í stað stálgrindar og settar verði upp flóttasvalir við öll rými í húsi nr. 15 við Gylfaflöt. Stærðir:
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).