27.11.2019 890279

Söluskrá FastansBrúarfljót 2

270 Mosfellsbær

hero

4 myndir

36.800.000

193.481 kr. / m²

27.11.2019 - 67 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 01.02.2020

0

Svefnherbergi

0

Baðherbergi

190.2

Fermetrar

Fasteignasala

Domusnova

[email protected]
899 0720
Snjóbræðsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

DOMUSNOVA KYNNIR NÝTT ATVINNUHÚSNÆÐI SEM REIST VERÐUR Á LÓÐ Á TUNGUMELUM Í MOSFELLSBÆ

Um er að ræða þrjú hús sem reist verða með steyptum einingum frá BM Vallá. Hér er átt við bil merkt 01 0106, sem er í húsi merkt matshluti 01, næst Mosfelli (austurhús), birt stærð 127,5 fm ásamt milliloftsrétti, sjá skráningatöflu og teikningar.

ATH. í þessari framsetningu er gert ráð fyrir að kaupandi annað hvort reisi milliloft sjálfur eða semji aukalega við seljanda um uppsetningu þess, þ.e. vinnu og efni.


Lýsing:
Bilin afhendast fullbúin að utan með malbikuð bílaplön og góð sameiginleg athafnasvæði.
Burðarvirki eru forsteyptar einingar frá BM Vallá, einangraðar utanfrá með 7 cm veðurkápu með dökkri völun.
Þak er með þaksperrum úr límtré og þakklæðning yleiningar með steinullareinangrun. Halli þaks 8%.
Stór innkeyrsludyr verður fullfrágengin í hverju bili, 4,0 m x 4,2 m, með rafmagnsmótor.
Afhending í áfanga I (næst Mosfelli) er áætlað í nóv/des 2019 og verkinu að fullu lokið eigi síðar en fyrir árslok 2020.
Kaupendum býðst að fá milliloftin uppsett af seljanda fyrir 3.500.000 kr aukalega ofaná ásett kaupverð (það getur raskað afhendingu eitthvað).
Kaupendur greiða skipulagsgjald af eigninni sem er 0,3% af brunabótamati.

Nánari lýsing:
Frí lofthæð verður frá 6,3 m til 8,5 m áður en sett hefur verið upp milliloft.
Þar sem sett eru upp geymsluloft þá er lágmarkshæð upp í þau ca. 4,5 m og á efri hæð ca. 2,1 m - 3,6 m.
Ef gert er ráð fyrir að skila bili með uppsettu geymslulofti þá er gengið frá grind, gólfeiningum og stiga upp (kaupandi hólfar sjálfur niður eftir notkunarþörf og innréttar).
Gólf á grunnfleti skilast vélslípuð, ómáluð með niðurföllum, skv. teikningu.
Gluggar og gönguhurðarkarmar verða timbur að innan og ál að utan.
Annar hver milliveggur er með steyptri einingu og markar brunahólf fyrir hver tvö bil, gagnstæður milliveggur verður léttur.
Kaffiaðstaða afstúkuð með innréttingu og vaski.
Snyrtingar útfærðar með klósetti, handlaug ásamt sturtuklefa og niðurfalli í gólfi.
Í hverju bili verður LED lýsing með ljósmagni ca. 250 LUX, grunnfjöldi tengla um rýmið, ein þriggja fasa grein með 16A tenglli og útiljós ofan hurðar úti í ca. 4,5 m hæð.
Hitablásari í hverju bili til upphitunar, lagnagrind með varmaskiptir fyrir neysluvatn og möguleika á frádráttarmæli bæði fyrir heitt og kalt vatn.
Snjóbræðsla á stæði fyrir framan iðnaðarhurð hvers bils.
Allar upplýsingar eru nánar útlistaðar í skilalýsingu sem klár er fyrir áfanga I og ræður skilalýsingin um afhendingarskilmála.

Til glöggvunar fyrir kaupendur:
Steinhús (ekki stálgrind) og fallegur arkitektúr.
Ekki VSK kvöð (verðin eru með vsk).
Viðhaldslítið að utan (Völun á ytra byrði).
Rúm athafnasvæði (Lóð ca. 9000 fm, grunnflötur bygginga ca. 3000 fm).
Húsfélag með formaðar grunnreglur um snyrtilega umgengni og meðferð sameiginlegra svæða.

Hægt er að panta skoðun og nánari kynningu gögnum hjá Hrannari í síma 899 0720 eða [email protected]

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899 0720 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Iðnaður á 1. hæð
210

Fasteignamat 2025

73.400.000 kr.

Fasteignamat 2024

71.300.000 kr.

010102

Iðnaður á 1. hæð
190

Fasteignamat 2025

67.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

65.700.000 kr.

010103

Iðnaður á 1. hæð
190

Fasteignamat 2025

67.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

65.700.000 kr.

010104

Iðnaður á 1. hæð
190

Fasteignamat 2025

67.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

65.700.000 kr.

010105

Iðnaður á 1. hæð
127

Fasteignamat 2025

48.200.000 kr.

Fasteignamat 2024

46.850.000 kr.

010106

Iðnaður á 1. hæð
190

Fasteignamat 2025

67.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

65.700.000 kr.

010107

Iðnaður á 1. hæð
190

Fasteignamat 2025

67.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

65.700.000 kr.

010108

Iðnaður á 1. hæð
210

Fasteignamat 2025

73.400.000 kr.

Fasteignamat 2024

71.300.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband