Söluauglýsing: 887467

Klapparhlíð 13

270 Mosfellsbær

Verð

44.900.000

Stærð

87.5

Fermetraverð

513.143 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

36.350.000

Fasteignasala

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 7 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasala Mosfellsbæjar S: 586-8080 kynnir: Falleg 87,5 m2, 3ja herbergja endaíbúð með sérinngangi og afgirtri timburverönd á jarðhæð við Klapparhlíð 13 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, geymslu, eldhús og stofu. Stór afgirt timburverönd í suðvesturátt. Vinsæl staðsetning í Mosfellsbæ. Rétt við skóla, leikskóla, sund og líkamsræktarstöð. Einnig er stutt á golfvöllinn.
Smelltu hér til að fá sölubækling sendan strax.

Komið er inn í forstofu með fatahengi og flísum á gólfi. Úr forstofu er komið inn á gang með parketi á gólfi. Á hægri hönd á gangi er flísalagt baðherbergi með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og baðkari með sturtuaðstöðu. Gluggi er á baðherbergi. Þar við hlið er þvottahús með vinnuborði og flísum á gólfi. Inn af þvottahúsi er rúmgóð geymsla með flísum á gólfi. Á vinstri hönd á gangi er hjónaherbergi með stórum fataskápum og parketi á gólfi. Þar við hlið er svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi. Af gangi er komið inn í rúmgott og bjart opið rými með parketi á gólfi sem skiptist í eldhús og stofu. Í eldhúsi er L-laga innrétting og borðkrókur. Í innréttingu er ofn, gashelluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Úr rýminu er gengið út á stóra afgirta timburverönd með geymslum í suðvesturátt. Í sameign á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Verð kr. 44.900.000,- 

Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.
Einnig er hægt að ná í starfsmenn utan vinnutíma Svanþór 698-8555, [email protected], Sigurður 899-1987, [email protected].

Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ.  Opið frá kl. 9-17 alla virka daga

Heimasíða Fasteignasölu Mosfelsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar á Facebook


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

 

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband