Söluauglýsing: 886468

Hallgerðargata 9A

105 Reykjavík

Verð

71.900.000

Stærð

93.2

Fermetraverð

771.459 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

51.250.000

Fasteignasala

Miklaborg

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 371 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Um er að ræða 93,2 fermetra (þar af 9,7 fm geymsla) 3ja herbergja íbúð á 4. hæð með vestur svölum sem skiptist í: Anddyri, baðherbergi m/tengi fyrir þvottavél, eldhús, stofu og tvö svefnherbergi. Aðgengi að bílakjallara gegn gjaldi. Bókið kynningu um verkefnið í síma 7751515 Kirkjusandur er endurbyggður borgarhluti við sjávarsíðuna þar sem ný kennileiti Reykjavíkur munu rísa og klára uppbyggingu strandlínu höfuðborgarinnar. Hverfið við Kirkjusand verður blönduð byggð íbúða-, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis og rís það nú á einstökum stað við strandlengjuna í jaðri Laugardalsins, samtengt viðskiptahverfinu í Borgartúni og sjónrænni tenginu við miðbæinn og höfnina. Sannkallað miðborgarhverfi. Byggingaraðili er ÍAV hf. Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar.

Heimasíða með nánari upplýsingum: www.105midborg.is    Tengill á þessa íbúð. 414

Stærðir íbúða eru frá 58-254 fm. Fjölbreytileiki ræður ríkjum í íbúðabyggingum í hverfinu, hvort sem er litið er til skipulags, útlits, herbergjafjölda eða stærða íbúða, sem þar verða í boði.  Stórkostlegt útsýni er til norðvesturs yfir sundin blá, en einnig til suðausturs yfir græna og gróna byggð og útivistarsvæði  Laugardalsins.
Stuðlaborg er 77 íbúða bygging í 5 stigagöngum og verður eitt  vandaðasta íbúðarhúsið í hverfinu. Innréttingar og tæki af viðurkenndum og vönduðum gerðum.  Borðplötur innréttinga verða úr kvartsteini.  Gólfhitakerfi verður í öllum íbúðum og njóta gólfsíðir gluggar byggingarinnar sín þannig eins og best verður á kosið.  Öll rými verða að  fullu loftræst inn og út og þarf því ekki að opna glugga til að fá ferskt loft inn í íbúðarrými. Loftræstingin tryggir betri loftgæði og er góð vörn gegn raka og ryki. Hljóðvist í húsinu er í hávegum höfð hvort sem um er að ræða hljóð utan eða á milli íbúða hússins. Uppbygging útveggja og þaks sem og hljóðeinangrun glugga er eins og best verður á kosið að teknu tilliti til hljóðvistar. 
Alls verða bílastæði fyrir rúmlega 1200 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi verður að rafhleðslustöðvum.  Nánar af heimasíðu.
Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa  Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar. SHL hafa hannað margar heimsþekktar byggingar víða um heim líkt og konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn, „Kristallinn“ í Kaupmannahöfn. Arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen hannaði einnig Skuggahverfið í Reykjavík.  VA arkitektar hafa unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín, þar á meðal hefur stofan fjórum sinnum verið tilnefnd fyrir hönd Íslands til hinna virtu Mies van der Rohe.  Byggingaraðili er ÍAV hf.  ÍAV hf. er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki Íslands í dag. Eitt stærsta verk ÍAV er Harpa, ráðstefnu og tónlistarhús Reykjavíkur. Í göngufæri við útivistarperluna í Laugardal og stutt í miðbæ Reykjavíkur.
 

Nánari upplýsingar veitir: 

Jason Kristinn Ólafsson s.775 1515 - [email protected]   eða [email protected]  

Ásgrímur Ásmundsson, s865-4120 - [email protected]  

Þórunn Pálsdóttir s:773-6000 og [email protected]  

Gunnar S. Jónsson  s:899-5856 - [email protected]  

Páll Þórólfsson  s: 893 8829 - [email protected]  

Jórunn lögg. fasteignasali s:845-8958 eða [email protected]

 

 

 

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband