28.09.2019 878556

Söluskrá FastansLautarvegur 16

103 Reykjavík

hero

8 myndir

73.900.000

658.645 kr. / m²

28.09.2019 - 125 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 30.01.2020

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

112.2

Fermetrar

Fasteignasala

Eignastofan

[email protected]
8984125
Bílskúr
Gólfhiti
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Eignastofan fasteignamiðlun kynnir: höfum fengið í sölu sérhæð í húsinu nr. 16 við Lautarveg í Reykjavík. Sérhæðin er á 3.hæð (penthouse íbúð). Hæðin er alls 112,2 fermetrar að stærð og skiptist forstofu með skápum, stofu, opið eldhús með vandaðri innréttingu og eldlhústækjum frá Mile. Frá stofu er gengið út á svalalokun og þaðan út á svalir. Svefnherbergin eru tvö með skápum, hjónaherbergið er með sér baðherbergi. Baðherbergið er með fallegri innréttingu, sturta og flísar. Tengt fyrir þvottavél á baðherbergi. Íbúðinni fylgja þaksvalir svo og einnig lokaðar svalir (B-lokun). Staðsetning er frábær í Fossvogi. Sérhæðin skilast fullfrágengin að utan sem innan fyrir utan gólfefni, baðherbergi eru flísalalögð. Gólfhiti á baðherbergjum. Mjög vandaðar innnréttingar frá Brúnás, innfeld lýsing, eikar innihurðir, borðplata úr kvartssteini,  blöndurtæki og eldhúsvaskur frá Grohe. Teikningar á skrifstofunni. Afhending við kaupsamning.
Upplýsingar veitir Kristinn B. Ragnarsson viðskiptafræðingur / lögg. fasteignasali í síma 8984125 eða á netfanginu [email protected] 
Byggingaraðili: Lautarvegur ehf 

Arkitekt: Úti og Inni Arkitekar
Skilalýsing seljanda:
Frágangur utanhúss:
Húsið er staðsteypt, plasteinangrað að innan að utan steinað.
Þak er hefðbundið sperruþak, klætt með soðnum þakpappa. Gluggar, opnanleg fög og hurðir eru frá Gluggsmiðjunni. Gluggar og hurðir eru fullmálaðir að utan og innan í gráum lit.
Allt gler er K-gler og notaðir gráir listar til glerjunar, nema botnlisti er úr áli.
Við afhendingu framselur seljandi ábyrgð framleiðanda glersins við kaupanda.
Húsinu er skilað fullbúnu að utan. Lóð er frágengin með torfi og hellulögn en trjágróður fylgir ekki. Geymsla fyrir sorp á lóð og fylgir með.
Frágangur íbúðar:
Að innan skilast húsið fullbúið án gólfefna, nema bað þvottahús og forstofugólf verða flísalögð. Önnur gólf eru flotuð og ómáluð.  Útveggir eru sandspartlaðir og málaðir í ljósum lit. Steyptir innveggir eru spartlaðir og málaðir í ljósum lit. Innveggir aðrir enn steyptir innveggir eru gipsi, spartlaðir og málaðir í ljósum lit. Loft neðri hæð eru spörtluð og máluð í ljósum lit. Loft efri hæð eru klædd með einföldum gifsplötum, spörtluð og máluð í ljósum lit.
Möguleiki er á að samdráttarsprungur komi fram í húsinu fyrsta árið og er kaupanda ráðlagt að bíða með litamálun þanað til hann endurmálar húsið.
Innréttingar og innihurðir:
Allar innréttingar eru teiknaðar af arkitekt og sér smíðaðar í Brúnás. Eldhús: Allar innréttingar eru úr litaðri Eik og hvít lakkaðar. Mjúklokun á öllum skúffum. Borðplata er úr Kvartsstein (Bianco Luna). Allir fataskápar eru úr hvít lakkaðir. Innihurðir eru yfirfelldar úr Eik.  Blöndunartæki og eldhúsvaskur eru frá Grohe eða sambærilegt. Eldhús skilast með eldunartækjum af vandaðri gerð Mile. þ.e. stálofn, niðurfellt helluborð og vifta. Aðrar innréttingar og/eða hillur í geymslum og bílskúr fylgja ekki með. Flísar á milli innréttinga í eldhúsi fylgja ekki.
Baðherbergi:
Veggir í baðherberjum eru hvítmálaðir gljástig 20. Flísalagður eru veggur í sturturými, frá gleri og aðlægur veggur í ca 2,7 metra hæð. Sturtubotn er steyptur með einhalla og afstúkaður með gleri. Einhalli er á baðgólfi og í sturtuniðurfall. Innréttingar eru úr hvít lakkaðar. Baðtæki, handlaug, vegghengt salerni og blöndunartæki eru innbyggð frá Grohe eða sambærilegt. Handlaug úr hvítu postulíni er felld inn í baðinnréttinguna. Nánari upplýsingar um tæki munu liggja fyrir við kaupsamning. Gólfhiti á baðherbergjum.
Þvottahús:
Þvottahús er sparslað og málað í ljósum lit, gólf er flísalagt.
Tengingar eru fyrir þvottavél og þurrkara. Ræstivaskur fylgir.
Rafmagn:
Rafmagn er frágengið samkvæmt teikningum og aðeins skylduljós fylgja með. Led lýsing.
Útiljós á húsinu fylgja.
Hitalögn:
Ofnalögn er í húsinu, járnrör í öfnalögn og neysluvatnslögn pex, samkv. teikningum
Almennt:
Verð miðast við ofangreinda skilalýsingu.
Verði um breytingar að ræða hækkar verð hússins sem því nemur.
Verði um breytingar að ræða á innréttingum og tækjum skal kaupandi gera það upp beint við Brúnás. Annað en það sem tekið er fram fylgir ekki með í kaupunum.
Ganga verður skriflega frá öllum breytingum.
Gjöld og annað:
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður innheimt (0,3% af væntanlegu brunabótamati).
Fyrirvari:
Allar málsetningar geta breyst frá teikningum. Breytingar á íbúðunum sjálfum og einstaka hlutum  í þeim, að ósk kaupanda, geta haft áhrif á afhendingatíma til seinkunar. Seljandi áskilur sér rétt til að hafna beiðnum um breytingar.
Ábending til kaupanda: Þar sem um nýjar íbúðir er að ræða þarf raki í efnum að losa sig út í 2 til 3 ár á eftir. Mögulegt er að sprungumyndum verði á útveggjum og rakamyndun í íbúðum. Nauðsynlegt að hafa opnun á gluggum þannig að raki komist greiðlega út og á þetta við um nótt sem dag.                                                                                                                                                                                                                                  

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
64.000.000 kr.112.20 570.410 kr./m²235944805.01.2021

111.900.000 kr.112.20 997.326 kr./m²235944806.07.2023

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

VerðsagaVerðsaga

Byggt á þinglýstum kaupsamningum

Byggir á kaupsamningum sem deila heimilsfangi og stærð

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

AuglýsingasagaAuglýsingasaga

Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum

Fjöldi skráningaÁsett verðFermetraverðTímabil.
17 skráningar
114.900.000 kr.1.024.064 kr./m²07.01.2023 - 09.01.2023
17 skráningar
73.900.000 kr.658.645 kr./m²28.03.2018 - 05.05.2018

Eignin hefur verið auglýst / endurskráð 34 sinnum síðan 2014.

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
229

Fasteignamat 2025

142.900.000 kr.

Fasteignamat 2024

139.300.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
172

Fasteignamat 2025

129.000.000 kr.

Fasteignamat 2024

126.000.000 kr.

010301

Íbúð á 3. hæð
112

Fasteignamat 2025

99.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

97.150.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

  1. ReyndarteikningarSamþykkt

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um samþykki á reyndarteikningum á BN050490 þar sem gerð er grein fyrir breytingum sem gerðar hafa verið á byggingartíma, m.a. er útbúin útigeymsla og aðgengi að snyrtingu breytt á 3. hæð, hurðir settar á norðurhlið bílskúra, sorpgerði og þakkanti breytt, innréttað baðherbergi í kjallara og stigi fjarlægður milli kjallara og 1. hæðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 16 við Lautarveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2017.

  2. ReyndarteikningarFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem gerð er grein fyrir breytingum sem gerðar hafa verið á byggingartíma, m.a. er útbúin útigeymsla og aðgengi að snyrtingu breytt á 3. hæð, hurðir settar á norðurhlið bílskúra, sorpgerði og þakkanti breytt, innréttað baðherbergi í kjallara og stigi fjarlægður milli kjallara og 1. hæðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 16 við Lautarveg. Jafnframt er erindi BN052450 fellt úr gildi. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2017.

  3. ReyndarteikningarFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem gerð er grein fyrir breytingum sem gerðar hafa verið á byggingartíma, m.a. er útbúin útigeymsla og aðgengi að snyrtingu breytt á 3. hæð, hurðir settar á norðurhlið bílskúra, sorpgerði og þakkanti breytt, innréttað baðherbergi og eldhús í kjallara og stigi fjarlægður milli kjallara og 1. hæðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 16 við Lautarveg. Stærð: xx ferm., xx rúmm. Jafnframt er erindi BN052450 fellt úr gildi. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2017.

  4. ReyndarteikningarFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem gerð er grein fyrir breytingum sem gerðar hafa verið á byggingartíma, m.a. er útbúin útigeymsla og aðgengi að snyrtingu breytt á 3. hæð, hurðir settar á norðurhlið bílskúra, sorpgerði og þakkanti breytt, innréttað baðherbergi og eldhús í kjallara og stigi fjarlægður milli kjallara og 1. hæðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 16 við Lautarveg. Stærð: xx ferm., xx rúmm. Jafnframt er erindi BN052450 fellt úr gildi.

  5. Br. BN050490Samþykkt

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050490, m.a. að útbúa útigeymslu á 3. hæð, breyta aðgengi að baðherbergi á sömu hæð, koma fyrir hurðum á norðurgafl bílskúra, breyta sorpgerði og þakkanti á norðurhlið og koma fyrir gustlokun á 3. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 16 við Lautarveg.

  6. ReyndarteikningarFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN05490, m.a. að útbúa útigeymslu á 3. hæð, breyta aðgengi að baðherbergi á sömu hæð, koma fyrir 4 hurðum á norðurgafl bílskúra, breyta sorpgerði og þakkanti á norðurhlið og koma fyrir gustlokun á 3. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 16 við Lautarveg.

  7. FjölbýlishúsSamþykkt

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með þremur íbúðum og tvöfaldri bílgeymslu á lóð nr. 16 við Lautarveg. Stærð A-rými: 552 ferm., 1.763,8 rúmm. B-rými: 69,1 ferm., 139,5 rúmm. C-rými: 91,3 ferm.

  8. FjölbýlishúsFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með þremur íbúðum og tvöfaldri bílgeymslu á lóð nr. 16 við Lautarveg. Stærð A-rými: 552 ferm., 1.763,8 rúmm. B-rými: 69,1 ferm., 139,5 rúmm. C-rými: 91,3 ferm.


Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

PóstlistiÁbendingarHafa samband