Söluauglýsing: 870332

Straumsalir 9

201 Kópavogur

Verð

52.900.000

Stærð

105.3

Fermetraverð

502.374 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

44.050.000

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 33 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

***Eignin er seld og er í fjármögnunarferli***Fasteignasalan TORG kynnir í einkasölu: Glæsilega 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á þessum eftirsótta stað í Kópavogi við Straumsali 9. Húsið er í enda götunnar og göngustígur við hlið hússins gengur til skóla og sundlaugar sem staðsett eru neðar í hverfinu. Útsýni til sjós í vesturi gefur eigninni sérstakan sjarma. Um er að ræða mjög fallega, vel skipulagða og sjarmerandi íbúð á þessum flotta stað í Kópavogi. Allar nánari upplýsingar veitir Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma: 692-3344 eða [email protected].

Íbúðin er skráð samtals 105,3 fm, ásamt 6,9 fm geymslu í sameign. Íbúðin skiptist þannig: rúmgott anddyri, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, hjónaherbergi og barnaherbergi. Svalir í suðvestur. Mjög góð staðsetning. 
Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inní rúmgóða forstofu um sérinngang með flísum á gólfi og góðum skápum.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa með fallegum og stórum gluggum. Parket á gólfi og gengið út á rúmgóðar svalir.
Eldhús: Sjarmerandi eldhús með smekklegri innréttingu og góðum borðkrók.
Þvottahús: Innaf eldhúsi er rúmgott þvottahús með glugga.
Svefnherbergi #1: Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum, parketi á gólfi og með útgengi út á svalir.
Svefnherbergi #2: Barnaherbergið er rúmgott með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Með baðkari og sturtu. Góðri nnréttingu og flísalagt í hólf og gólf.
Samantekt: Hér er um að ræða mjög skemmtilega 3ja herbergja íbúð sem er afar vel staðsett í salahverfinu í Kópavogi. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla, frístunda og íþróttaiðkun, heilsugæslu, verslanir ofl. Gengið er inn í íbúðina beint af bílastæði og er hiti í stétt fyrir framan húsið og því auðvelt aðgengi allt árið um kring.
Geymsla: Rúmgóð geymsla er í sameign ásamt hjóla og vagnageymslu. 
Allar nánari upplýsingar veitir Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma: 692-3344 eða [email protected].

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband