Söluauglýsing: 869538
Hverfisgata 33
101 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 128 daga.
- Dagsetning skráningar: 08.08.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 14.12.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 128 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Einstaklega bjart skrifstofu- og atvinnuhúsnæði í hjarta Reykjavíkur með sérinngangi og lyftu. Húsnæðið er auðvelt er að aðlaga að reksti. Eignin er á þremur hæðum auk kjallara, alls 465,6 fm að stærð, tvær hæðir og svo hluti jarðhæðar og kjallara. Þar sem hluti af rishæð er undir súð er hún stærri en uppgefnir fermetrar. Húsið er steinsteypt og var klætt 1998 með loftræstri álklæðningu. Bílastæðahús er handan götunnar með nægum bílastæðum og því er gott aðgengi að eigninni. Húsið stendur á skilgreindu miðborgarsvæði M1C, sem er svæði með takmarkaðar miðborgarheimildir og götusvæði 17. Í gildi er deiliskipulag fyrir Skúlagötusvæði sem var staðfest árið 1986.
Áætlað fasteignamat 2020 er 144.600.000 kr.
Um er að ræða 62,37% eignarhluta í húsinu en einnig er til sölu hinn eignarhlutinn um þessar mundir og því EINSTAKT TÆKIFÆRI AÐ EIGNAST ALLT HÚSIÐ.
MYNDBAND AF UTANVERÐU HÚSINU smelltu hér.
Nánari lýsing:
Jarðhæð: Gengið er inn um sérinngang. Þar er eitt herbergi með gluggum í tvær áttir og salerni með aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
2. hæð: Hæðin er í dag innréttuð sem skrifstofa en býður upp á ýmis tækifæri. Miðrýmið er opið og mjög bjart. Þar er eldhús með nýlegri hvítri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Rúmgott fundarherbergi með gluggum í tvær áttir. Tvær rúmgóðar skrifstofur eru innréttaðar innst á hæðinni, önnur með glugga í tvær áttir og hin með einum. Einnig er á hæðinni salerni og tvær geymslur, önnur eldvarin. Svart steinteppi og eikarparket er á gólfi. Kerfisloft með hljóðeinangrun.
3. hæð: Hæðin er að hluta undir súð með kvistgluggum sem voru settir 1998. Stór salur með viðarparketi. Geymslurými með rennihurðum er meðfram einni hlið. Innbyggður glerskápur milli kvistglugga. Góðar flísalagðar suðursvalir götumegin. Eldhúsaðstaða er í öðru rými með viðarinnréttingu ásamt fundarborði. Svart steinteppi á gólfi. Tvö salerni með flísum á gólfi. Á ganginum er fatahengi, skápur með stálvaski og lítið seturými.
Kjallari: Tvær læstar rúmgóðar geymslur án glugga, sameiginlegt lagnarými, ruslakompa og vörumóttaka.
Bókaðu skoðun og pantaðu söluyfirlit með því að smella hér eða hafðu samband við Guðbjörgu Helgu í síma 897 7712.
Hverfisgatan er spennandi valkostur þar sem mikil uppbygging á sér stað þar þessi misserin. Þarna eru nágrannar eins og danska sendiráðið, Þjóðleikhúsið, ráðuneyti, Hæstiréttur ásamt fjölda verslana og þjónustuaðila.
Smelltu hér fyrir frítt söluverðmat án skuldbindingar á þinni fasteign.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur
sími 897 7712
Netfang: [email protected]
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 869538
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 0
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 144.700.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 0
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 465.6
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 08.08.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 14.12.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 08.08.2019
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 101
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Hverfisgata 33
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: atv.
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1965
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 11
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 0
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 4
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Tveir inngangar
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Hverfisgata
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 33
Húsnúmer eignarinnar.