02.08.2019 869055
Espigerði 2
108 Reykjavík
14 myndir
54.900.000
410.621 kr. / m²
02.08.2019 - 30 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 31.08.2019
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
133.7m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
1974Fasteignamat
52.600.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2034151Byggingarnúmer*
1004548Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Íbúðin er á tveimur hæðum og telst vera 133,7fm. í birtri stærð.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Komið inn í anddyrri með stórum skápum úr ljósri eik.
Innaf anddyri er gestasnyrting og búið að endurnýja með upphengdu salerni og flísalögn.
Stór stofa og borðstofa samliggjandi með svölum til austurs.
Í miðrými er stórt eldhús sem er opið inn í borðstofuna. Gólf í eldhúsi eru flísalögð. Eldhúsinnrétting er hvít eldri innrétting með gömlum tækjum.
Nýlegt eikarparket er á gólfum stofu, borðstofu og anddyris.
Léttur stigi er á milli hæða.
Efri hæð:
Komið upp í gott alrými sem nýtist sem sjónvarpsskáli.
Innaf sjónvarpsskála eru tvö barnaherbergi með lausum skápum. Léttur veggur skilur að herbergi og sjónvarpsskála og því væri auðvelt að stækka rýmið sem nemur herbergjunum.
Sér þvottaherbergi á gangi.
Baðherbergi við hliðina á þvottaherbergi og léttur veggur á milli og mætti því stækka baðherbergið umtalsvert og gera að einu rými. Baðkar og eldri innréttingar og flísar.
Hjónaherbergi í vesturenda hæðarinnar með svölum til vesturs með góðu útsýni. Góður fataskápur í hjónaherbergi og á gangi.
Nýlegt parket á öllum gólfum nema baðherbergi og þvottaherbergi.
Sameign mjög snyrtileg og í góðu ástandi. Á jarðhæð er stórt leikherbergi sem er teppalagt. Auk þess er gott þvottahús með þremur vönduðum iðnaðarvélum sem íbúar hafa aðgang að. Þessar vélar eru leigðar og greitt fyrir hverja notkun.
Á jarðhæðinni er góð geymsla sem fylgir íbúðinni með hillum.
Á efstu hæðinni er fundarherbergi fyrir húseignina og út af því má ganga út á stórar þaksvalir sem snúa til suðurs.
Þak hefur nýlega verið endurbætt.
Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 869055
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 54.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 52.600.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 410.621
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 133.7
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 02.08.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 31.08.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 02.08.2019
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 108
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Espigerði 2
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1974
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 2
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 2
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Espigerði
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 2
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
010405
Íbúð á 4. hæð
167 m²
Fasteignamat 2025
103.350.000 kr.
Fasteignamat 2024
100.450.000 kr.
010406
Íbúð á 4. hæð
164 m²
Fasteignamat 2025
104.000.000 kr.
Fasteignamat 2024
101.150.000 kr.
010605
Íbúð á 6. hæð
166 m²
Fasteignamat 2025
103.700.000 kr.
Fasteignamat 2024
100.800.000 kr.
010606
Íbúð á 6. hæð
165 m²
Fasteignamat 2025
109.400.000 kr.
Fasteignamat 2024
106.550.000 kr.
010803
Íbúð á 8. hæð
187 m²
Fasteignamat 2025
109.000.000 kr.
Fasteignamat 2024
105.750.000 kr.
010805
Íbúð á 8. hæð
169 m²
Fasteignamat 2025
105.650.000 kr.
Fasteignamat 2024
102.900.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
- ✅
Klæðning 8. og 9. hæðSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að klæða útveggi suðurhluta hússins nr. 2 á lóðinni nr. 2-4 við Espigerði með lituðum álplötum. Klæðningin nái aðeins til áttundu og níundu hæðar hússins. Erindinu fylgir ástandsskýrsla vegna leka dags. nóv. 2003.
- ✅
Svalaskýli á 9. h.Samþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að byggja svalaskýli sem tilheyrir íbúð 0807 á svölum á níundu hæð í húsinu nr. 2 við Espigerði á lóðinni nr. 2-4 við Espigerði. Bréf formanns húsfélags dags. 27. maí 2003 varðandi samþykki húsfundar, bréf hönnuðar dags. 20. júní 2003 og útskrift frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. feb. 2003 vegna fyrirspurnar fylgja erindinu. Stærðir: 13 ferm. og 31 rúmm.
Svalaskýli á 9. h.Frestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að byggja svalaskýli á svölum á níundu hæð sem tilheyra íbúð 0807 í húsinu nr. 2 við Espigerði á lóðinni nr. 2-4 við Espigerði. Bréf formanns húsfélags dags. 27. maí 2003 varðandi samþykki húsfundar, útskrift frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. feb. 2003 vegna fyrirspurnar fylgir erindinu. Stærðir: 13 ferm. og xx rúmm.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).