22.07.2019 867718

Söluskrá FastansBleikjulækur 3

800 Selfoss

hero

9 myndir

46.800.000

230.997 kr. / m²

22.07.2019 - 164 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 01.01.2020

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

202.6

Fermetrar

Fasteignasala

LIND Fasteignasala

[email protected]
6478052
Bílskúr
Heitur pottur
Verönd

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Lind fasteignasala kynnir í byggingu vandað steinsteypt 202.6 fermetra parhús á einni hæð innst í botnlanga. Stórbrotið útsýni yfir Ölfusá og Ingólfsfjall. Húsið afhendist fullbúið að utan og rúmlega fokhelt að innan.

Húsið skiptist í stofu, eldhús, 4 svefnherbergi, sjónvarpshol, gang, forstofu, þvottaherbergi, 2 baðherbergi og bílskúr. Íbúð er 160 fm og bílskúr 43 fm. 


Smelltu hér til að skoða húsið í 3D.

Nánari lýsing: 
Eldhús og Stofa: Eldhús og stofa í tæplega 47,9 fm alrými. Stórir gólfsíðir gluggar með útsýni yfir Ölfusá og Ingólfsfjall. Gert ráð fyrir eyju í eldhúsi. Upptekið loft.
Sjónvarpshol: Er inn af herbergjagangi.
Hjónaherbergi: Er 17,9 fm. Inn af sér gangi ásamt öðru baðherberginu.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi  9,2 fm, 11,0 fm og 11.8 fm, eitt þeirra með gluggum á tvo vegu. 
Baðherbergin eru tvö: Bæði með gluggum, gert ráð fyrir sturtu í báðum. Minna baðherbergið er við hlið hjónaherbergis með útgang út á verönd þar sem er gert ráð fyrir heitum potti/setlaug.
Þvottaherbergi: Er rúmgott og innangengt í bílskúrinn.
Bílskúr: Er 43 fermetrar með innkeyrsluhurð og þar til hliðar inngönguhurð. Hátt er til lofts. Möguleiki á að hafa mjög stórt milliloft.

Hús: Einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Viðhaldsléttir álgluggar. Álrennur og þakkanntur. Aluzink bárujárn á þaki. Loft eru tekin upp í stofu og eldhúsi tilbúin fyrir einangrun. Steyptir millveggir og búið að leggja raflagnir, rör og dósir í alla veggi. Búið er að leggja hitalagnir í gólf og neysluvatn rör í rör.  

Lóð: Stétt steypt við aðalinngang og sorptunnuskýli steypt. Lagt fyrir heitum potti á baklóð. Mulningur í innkeyrslu. Búið að skipta um jarðveg við húsgafla. Lóð annars grófjöfnuð. 

Einnig er hægt að fá eignina afhent lengra komna eftir samkomulagi.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það er lagt á.

Nánari upplýsingar veitir Diðrik Stefánsson löggiltur fasteignasali, í síma 6478052, tölvupóstur [email protected].

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
65.900.000 kr.202.60 325.271 kr./m²234046323.06.2020

106.500.000 kr.202.60 525.666 kr./m²234046326.06.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Parhús á 1. hæð
202

Fasteignamat 2025

102.450.000 kr.

Fasteignamat 2024

100.750.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband