09.07.2019 865926

Söluskrá FastansArnarhöfði 4

270 Mosfellsbær

hero

61 myndir

78.600.000

414.338 kr. / m²

09.07.2019 - 16 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 24.07.2019

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

189.7

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignasala Mosfellsbæjar

[email protected]
586-8080
Bílskúr
Svalir
Verönd

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasala Mosfellsbæjar S: 586-8080 kynnir: 189,7 m2 raðhús á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr við Arnarhöfða 4 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í fimm herbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, forstofu, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr.  Afgirtur bakgarður með timburverönd og svalir með fallegu útsýni í suðvesturátt. Góð staðsetning í vinsælu hverfi. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, sund og á golfvöll Mosfellsbæjar. Eignin er skráð 189,7 m2, þar af raðhús 165,1 m2 og bílskúr 24,6 m2. 
Smelltu hér til að fá sölubækling sendan strax.
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Inn af forstofu er svefnherbergi með flísum á gólfi. Úr forstofu er komið inn hol með flísum á gólfi. Inn af holi er flísalögð gestasnyrting. Úr holi er gengið inn í bjart og opið rými sem skiptist í eldhús, stofu og borðstofu, flísar á gólfi. Í eldhúsi er U-laga innrétting með innbyggðri uppþvottavél, ofni, keramikhelluborði og viftu. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Flísalagt er á milli eftir skápa og borðplötu í innréttingu. Úr stofunni er gengið út á timburverönd og stóran afgirtan garð í suðvesturátt. Úr holi er stigi upp á 2. hæðina. Þar er komið inn í hol. Á vinstri hönd eru tvö svefnherbergi með plastparketi á gólfi, þvottahús og baðherbergi með innréttingu, sturtu og baðkari, flísar á gólfi. Á hægri hönd í holi er rúmgott hjónaherbergi með fataskápum og plastparketi á gólfi og sjónvarpsherbergi með flísum á gólfi. Úr sjónvarpsholi er gengið út á svalir með fallegu útsýni í suðvesturátt. Bílskúrinn er skráður 24,6 m2 með skápum og bílskúrshurðaopnara. Möl er í bílaplani.
Verð kr. 78.600.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.

 

Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.
Einnig er hægt að ná í starfsmenn utan vinnutíma Svanþór 698-8555, [email protected], Sigurður 899-1987, [email protected].

Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ.  Opið frá kl. 9-17 alla virka daga

Heimasíða Fasteignasölu Mosfelsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar á Facebook


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

 

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Raðhús á 1. hæð
189

Fasteignamat 2025

118.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

117.950.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband