20.06.2019 862666

Söluskrá FastansLyngás 1

210 Garðabær

hero

9 myndir

56.900.000

556.207 kr. / m²

20.06.2019 - 8 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 27.06.2019

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

102.3

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

[email protected]
694-4000
Lyfta
Kjallari
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

**Opið hús fimmtud. 20.júní kl.17:00-18:00** Lyngás 1 E,F, G og H** Móttaka í sýningaríbúð í 1 E**
Fasteignasalan TORG kynnir: **Nýjar íbúðir í Garðabæ** Afhending maí 2019**

Íbúð 405 er 4ra herbergja íbúð á 4.hæð (efstu hæð) með sérinngangi af svölum og 6,6 fm svölum sem snúa í vestur. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum. Birt stærð eignar er 102,3 fm og þar af er 9,9 fm geymsla í sameign sem fylgir íbúðinni og stæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu merkt B20. Baðherbergið er með sturtu beint á gólf með glervegg, fallegri innréttingu með góðu skápaplássi frá AXIS og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, einnig er handklæðaofn á vegg. Íbúðin skilast fullbúin án gólfefna nema og votrýmum eru flísar. Í eldhúsi er vönduð innrétting með miklu skápaplássi, innbyggðum ísskáp og tengi fyrir uppþvottavél. Blöndunartæki í eldhúsi eru svört. Allar innréttingar og skápar eru af vandaðri gerð frá AXIS innréttingasmiðju. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru mósvartir úr melamín.  Nánari lýsing eigna er hér að neðan.

Allar nánari upplýsingar veitir
Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 / [email protected]
Þorsteinn lögg.fasteignasali í síma 694-4700 / [email protected]


Ítarlegur söluvefur verkefnis: https://lyngasreitur.is/?ref=torg
 
Nánari lýsing Lyngás 1 E og F: 29 glæsilegar og vel útbúnar íbúðir í miðju Garðabæjar þar sem stutt er í grunnskóla og íþróttamiðstöð Garðarbæjar (Ásgarð) ásamt sundlaug Garðabæjar. Flestar íbúðirnar á jarðhæð hússins eru með sérinngang. Eitt stigahús er í húsinu og gengið er út frá því út á sérinngang af svölum að íbúðunum. 4 hæðir eru í stigagangi E og 3 hæðir í stigangi F.
Lokuð sameiginleg bílageymsla er undir húsinu með aðgengi innandyra frá hverju húsi og einni innkeyrsluhurð. 25 stæði í lokaðri bílageymslu fylgja íbúðunum í Lyngás 1 E og F og eru því allar íbúðir með sér stæði í bílageymslunni nema fjórar.
Sérgeymslur verða í kjallara sem og reiðhjóla- og vagnageymslur. Sorpgeymslur eru staðsettar utandyra.
Íbúðum fylgja svalir en á jarðhæð er sérafnotareitur. Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna en baðherbergis-/þvottahúsgólf verða flísalögð. Innangengt er úr bílageymslu og geymslukjallara, um stigahús og lyftu. Við hönnun á Lyngási 1 var lögð sérstök áhersla á bjartar íbúðir með góða innri nýtingu.
Á lóðinni verður sameiginlegur inngarður með göngustígum og leiksvæði með leiktækjum fyrir börn.
Lyngás 1 er einstaklega vel staðsett með tilliti til aðgengis að verslun, þjónustu og samgönguleiðum. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í nágrenninu bæði í Sjálandi og á Hraunsholti og samhliða hefur þjónusta við íbúana aukist á svæðinu. Í göngufæri er skóli, leikskóli, íþróttamiðstöð með sundlaug og önnur þjónusta og verslanir í miðbæ Garðabæjar. Ökuleiðir eru greiðfærar og stutt í almenningssamgöngur.
Skilalýsing innan íbúða:
Innveggir íbúða eru hlaðnir veggir. Veggir í geymslum verða úr stálveggjakerfi.
Innréttingar og skápar verða af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötuefnið er Pelago Marmor weiss. Hurðar á innréttingar í eldhúsi og baðherbergi/þvottahúsi er Perfect Sense light Grey. Fataskápshurðir er svarbrún viðaráferð Black Moreda Oak.
Innihurðir verða yfirfelldar og hvítlakkaðar.
Heimilistæki innfelldur ísskápur, bökunarofn, helluborð, veggháfur eða eyjuháfur, þar sem það á við. Tengimöguleiki verður fyrir uppþvottavél. Þvottavél skal standa á gólfi undir borðplötu.
Hreinlætistæki verða af vandaðri gerð. Á baði verður vegghengt salerni og handlaug með einnar handar blöndunartækjum. Blöndunartæki í sturtum verða utanáliggjandi. Í eldhúsi verður stáleldhúsvaskur með einnar handar blöndunartæki.
Vegg- og gólfflísar. Íbúðir verða afhentar fullbúnar án megin gólfefna. Gólf í baðherbergi/þvottahúsi verða flísalögð ásamt hluta veggja. Flísar verða af vandaðri gerð frá Álfaborg.
Frágangur lóðar: Lóð verður skilað fullfrágenginni. Megin göngustígar verða ýmist hellulagðir eða steyptir og grassvæði þökulögð. Sameiginleg leiktæki verða í inngarðinum sem verður á þaki bílakjallarans. Að minnsta kosti 1 bílastæði verður á lóð fyrir hverja íbúð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða verða á lóð. Bílastæði eru ýmist malbikuð eða hellulögð. Sérafnotareitir á fyrstu hæð verða hellulagðir að hluta.
 
Allar nánari upplýsingar veitir
Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 / [email protected]
Þorsteinn lögg.fasteignasali í síma 694-4700 / [email protected]

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Engir þinglýstir kaupsamningar fundust á þessari eign

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

020101

Lyngás spst á 1. hæð
28

Fasteignamat 2025

10.675.000 kr.

Fasteignamat 2024

10.095.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband