15.05.2019 855969

Söluskrá FastansHulduhóll 14

820 Eyrarbakki

hero

3 myndir

24.700.000

194.030 kr. / m²

15.05.2019 - 232 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 01.01.2020

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

127.3

Fermetrar

Fasteignasala

Gimli Fasteignasala

[email protected]
690-2602
Bílskúr

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Gimli fasteignasala kynnir: 

Hulduhól 14 á Eyrarbakka.
Raðhús í byggingu á einni hæð á Eyrarbakka 4ra herb, samtals 127,3 fm, ásamt
bílskúr. Húsið er timburhús, klætt að utan með standandi hvítu bárujárni.
Húsið skilast fullbúið að utan með grófjafnaðri lóð og fokhelt að innan samkvæmt skilalýsingu sem liggur fyrir á skrifstofu Gimli.
Samkvæmt teikningu skiptist húsið í forstofu, eldhús, stofu, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og innangengur bílskúr með geymslu inn af. Tvö bílastæði fyrir framan húsið.  

Nánari upplýsingar veita Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 690-2602, tölvupóstur [email protected] eða Lilja, aðstoðam, í síma 820-6511, [email protected]

Afhending á fokheldri eign í október 2019 verð 24.700.000.-


Nánari lýsing:  
Komið er inn í forstofu, úr forstofu er komið inn á gang, á vinstri hönd er gengið inn í svefnherbergi og á hægri hönd er svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi og hjónaherbergi. Eldhús og stofa eru í opnu rými. Úr þvottahúsinu er innangengt í bílskúr og geymslu.
Að utan verður húsið fullbúið með grófjafnaðri lóð, búið er að skipta um jarðveg og setja mulning í bílaplan en fokheld að innan. Gluggar og hurðar eru hvít að lit af vandaðri gerð. Sorptunnugeymslur fyrir tvær tunnur, forsteyptar frá BMvallá. Skilveggir að framan og aftan sem skilast hvítir að lit. Búið að leggja ídráttarrör út fyrir sökkul fyrir heitan pott í garði. 

Allar teikningar liggja fyrir. 
Kaupandi greiðir inntaksgjald rafmagns og hita, einnig skipulagsgjald þegar það verður innheimt. 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

020101

Raðhús á 1. hæð
127

Fasteignamat 2025

52.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

45.900.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband