30.04.2019 853150

Söluskrá FastansGeirsgata 2

101 Reykjavík

hero

17 myndir

83.900.000

764.813 kr. / m²

30.04.2019 - 2 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 01.05.2019

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

109.7

Fermetrar

Ekki tókst að greina fasteignasölu.

Svalir
Verönd
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

ÞG-Verk kynnir til sölu 109,7 fm þriggja herbergja íbúð á 2. hæð við Geirsgötu 2, Hafnartorgi. Skoðaðu úrval íbúða á http://hafnartorg.is/ibudir/

Skipulag 201:
Íbúðin skiptist í anddyri, barnaherbergi, stofu, eldhúsi, þvottaherbergi, hjónaherbergi. Baðherbergi eru tvö, þar af annað inn af hjónaherbergi. Frá stofu er gengið út á svalir og verönd sem snúa til suðurs. Geymsla er staðsett í sameign hússins. Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Íbúðin afhentist fullfrágengin með gólfefnum. Sameignir og lóð skilast fullfrágengin.

Geirsgata 2 (G1) er hluti af Hafnartorgi sem samanstendur af 70 íbúðum í háum gæðaflokki. Byggingarnar tengjast með sameiginlegum bílakjallara, sem tengist einnig við bílakjallara Hörpunnar og verður með þeirri tengingu stærsti bílakjallari landsins. Hönnun bygginganna er fáguð og tímalaus með áherslur á efni og efnisáferðir, vandaðan frágang, vandaðar innréttingar, búnað og tæki.

Almenn lýsing: Að innan er íbúðin máluð með gráu litaþema. Veggir, loft, hurðir og innréttingar eru samlitar. Útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. Dyrasími með myndavél frá Bticino og þráðlausu e-net ljósastýrikerfi frá GIRA. Allar íbúðir eru með loftræstikerfi þar sem upphituðu fersklofti er dælt inn í íbúðir og í votrýmum er vélrænt útsog.
Anddyri: Fataskápar eru í anddyri sem eru spónlagðir að innan með lýsingu og hurðum. Ytra byrði er sprautu lakkað í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð.
Eldhús/borðstofa/stofa:
Innréttingar: Vandaðar innréttingar frá Noblessa í Þýskalandi og GKS með ljúflokunum á skápum og skúffum.
Borðplata: Hvít Meganite borðplata og innbyggður vaskur úr sama efni.
Blöndunartæki eru svört á lit frá Vola, hönnuð af Arne Jacobsen.
Eldhústæki: Blástursofn, helluborð og ísskápur frá Siemens (dökkt stainless steel) með Home Connect tengingu sem hægt er að stjórna úr snjallsíma eða spjaldtölvu. Gufugleypir er frá Elica, tegund Easy.
Svefnherbergi: Fataskápar í svefnherbergjum eru spónlagðir að innan og með hurðum og ytra byrði sem eru sprautu lakkaðar í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð.
Baðherbergi: Votrými eru flísalögð með ítölskum gæðaflísum með marmaramynstri frá Iris. Innrétting er í litaþema íbúðar, háglans grá frá Noblessa með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Speglalýsing á baðherbergjum er Mini Glo Ball frá Flos. Hreinlætistæki eru frá Vola. Salerni upphengd með innbyggðum vatnskassa.
Þvottaherbergi: Flísalögð með sömu flísum og í baðherbergi. Innrétting er frá Noblessa í sama litaþema. Rakaheldir ljósakúpplar eru í þvottaherbergi.
Geymslur: Gólf í séreignageymslum verða flotuð og lökkuð með kerfislofti. Léttir veggir verða úr gipsplötuveggjum, málaðir í ljósum lit.
Bílastæði: Íbúum Hafnartorgs stendur til boða að leigja bílastæðakort skv. verðskrá bílageymslu Hafnatorgs, sjá nánar á vefslóð: www.hafnartorg.is/bilageymsla/.

Nánar um Hafnartorg:
Arkitektar verkefnisins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun. Allt efnisval bygginganna að innan sem utan er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur.
Nánari upplýsingar um Hafnartorg er að finna á www.hafnartorg.is.
Það skiptir máli hver byggir fyrir þig. Meginmarkmið ÞG Verks er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini. Kynntu þér gæðatryggingu ÞG Verks www.tgverk.is/gaedakerfi-tgverk.

Einungis er hægt að skoða ef pantaður er tími. Aðgangur á öðrum tímum er stranglega bannaður þar sem um byggingarsvæði er að ræða.

Til að fá nánari upplýsingar um tíma til að skoða íbúðir, má hafa samband beint við Örn hjá ÞG í tölvupósti  [email protected] .

Kauptilboð berist Ægi Breiðfjörð á Borgum fasteignasölu. Nánari upplýsingar í síma 588-2030 eða á netfangið [email protected].

Allar fermetratölur íbúða eru birtar með fyrirvara.
Eignaskiptayfirlýsing gildir.

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Engir þinglýstir kaupsamningar fundust á þessari eign

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

040101

Veitingahús á 1. hæð
356

Fasteignamat 2025

146.000.000 kr.

Fasteignamat 2024

145.900.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband