29.03.2019 848160
Lyngás 1
210 Garðabær
9 myndir
53.900.000
547.208 kr. / m²
29.03.2019 - 5 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 02.04.2019
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
98.5m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2018Fasteignamat
-Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
-Byggingarnúmer*
1165654Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Fasteignasalan TORG kynnir: **Nýjar íbúðir í Garðabæ** Afhending maí/júní 2019**
Íbúð 306 er 4ra herbergja íbúð á 3.hæð með sérinngangi af svölum og 6,6 fm svölum sem snúa í vestur. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum. Birt stærð eignar er 98,5 fm og þar af er 8,3 fm geymsla í sameign sem fylgir íbúðinni og stæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu merkt B13. Baðherbergið er með sturtu beint á gólf með glervegg, fallegri innréttingu með góðu skápaplássi frá AXIS og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, einnig er handklæðaofn á vegg. Íbúðin skilast fullbúin án gólfefna nema og votrýmum eru flísar. Í eldhúsi er vönduð innrétting með miklu skápaplássi, innbyggðum ísskáp og tengi fyrir uppþvottavél. Blöndunartæki í eldhúsi eru svört. Allar innréttingar og skápar eru af vandaðri gerð frá AXIS innréttingasmiðju. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru mósvartir úr melamín. Nánari lýsing eigna er hér að neðan.
Allar nánari upplýsingar veitir
Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 / [email protected]
Þorsteinn lögg.fasteignasali í síma 694-4700 / [email protected]
Ítarlegur söluvefur verkefnis: https://lyngasreitur.is/?ref=torg
Nánari lýsing Lyngás 1 E og F: 29 glæsilegar og vel útbúnar íbúðir í miðju Garðabæjar þar sem stutt er í grunnskóla og íþróttamiðstöð Garðarbæjar (Ásgarð) ásamt sundlaug Garðabæjar. Flestar íbúðirnar á jarðhæð hússins eru með sérinngang. Eitt stigahús er í húsinu og gengið er út frá því út á sérinngang af svölum að íbúðunum. 4 hæðir eru í stigagangi E og 3 hæðir í stigangi F.
Lokuð sameiginleg bílageymsla er undir húsinu með aðgengi innandyra frá hverju húsi og einni innkeyrsluhurð. 25 stæði í lokaðri bílageymslu fylgja íbúðunum í Lyngás 1 E og F og eru því allar íbúðir með sér stæði í bílageymslunni nema fjórar.
Sérgeymslur verða í kjallara sem og reiðhjóla- og vagnageymslur. Sorpgeymslur eru staðsettar utandyra.
Íbúðum fylgja svalir en á jarðhæð er sérafnotareitur. Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna en baðherbergis-/þvottahúsgólf verða flísalögð. Innangengt er úr bílageymslu og geymslukjallara, um stigahús og lyftu. Við hönnun á Lyngási 1 var lögð sérstök áhersla á bjartar íbúðir með góða innri nýtingu.
Á lóðinni verður sameiginlegur inngarður með göngustígum og leiksvæði með leiktækjum fyrir börn.
Lyngás 1 er einstaklega vel staðsett með tilliti til aðgengis að verslun, þjónustu og samgönguleiðum. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í nágrenninu bæði í Sjálandi og á Hraunsholti og samhliða hefur þjónusta við íbúana aukist á svæðinu. Í göngufæri er skóli, leikskóli, íþróttamiðstöð með sundlaug og önnur þjónusta og verslanir í miðbæ Garðabæjar. Ökuleiðir eru greiðfærar og stutt í almenningssamgöngur.
Skilalýsing innan íbúða:
Innveggir íbúða eru hlaðnir veggir. Veggir í geymslum verða úr stálveggjakerfi.
Innréttingar og skápar verða af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötuefnið er Pelago Marmor weiss. Hurðar á innréttingar í eldhúsi og baðherbergi/þvottahúsi er Perfect Sense light Grey. Fataskápshurðir er svarbrún viðaráferð Black Moreda Oak.
Innihurðir verða yfirfelldar og hvítlakkaðar.
Heimilistæki innfelldur ísskápur, bökunarofn, helluborð, veggháfur eða eyjuháfur, þar sem það á við. Tengimöguleiki verður fyrir uppþvottavél. Þvottavél skal standa á gólfi undir borðplötu.
Hreinlætistæki verða af vandaðri gerð. Á baði verður vegghengt salerni og handlaug með einnar handar blöndunartækjum. Blöndunartæki í sturtum verða utanáliggjandi. Í eldhúsi verður stáleldhúsvaskur með einnar handar blöndunartæki.
Vegg- og gólfflísar. Íbúðir verða afhentar fullbúnar án megin gólfefna. Gólf í baðherbergi/þvottahúsi verða flísalögð ásamt hluta veggja. Flísar verða af vandaðri gerð frá Álfaborg.
Frágangur lóðar: Lóð verður skilað fullfrágenginni. Megin göngustígar verða ýmist hellulagðir eða steyptir og grassvæði þökulögð. Sameiginleg leiktæki verða í inngarðinum sem verður á þaki bílakjallarans. Að minnsta kosti 1 bílastæði verður á lóð fyrir hverja íbúð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða verða á lóð. Bílastæði eru ýmist malbikuð eða hellulögð. Sérafnotareitir á fyrstu hæð verða hellulagðir að hluta.
Allar nánari upplýsingar veitir
Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 / [email protected]
Þorsteinn lögg.fasteignasali í síma 694-4700 / [email protected]
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Engir þinglýstir kaupsamningar fundust á þessari eign
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 848160
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 53.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 0
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 547.208
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 98.5
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 29.03.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 02.04.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 29.03.2019
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 210
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Lyngás 1e
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2018
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 1
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Lyngás
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 1
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
020101
Lyngás spst á 1. hæð
28 m²
Fasteignamat 2025
10.675.000 kr.
Fasteignamat 2024
10.095.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).