25.01.2019 838570

Söluskrá FastansSölkugata 18

270 Mosfellsbær

hero

69 myndir

69.900.000

328.323 kr. / m²

25.01.2019 - 7 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 31.01.2019

3

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

212.9

Fermetrar

Fasteignasala

Gimli Fasteignasala

[email protected]
690 2602
Bílskúr
Gólfhiti
Heitur pottur
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Gimli kynnir: 

Mjög vandað nýtt 5 herb. raðhús á einstaklega fallegum og eftirsóttum stað í Mosfellsbæ með frábæru útsýni. Lúxuseign með hjónasvítu, gólfsíðum gluggum í flestum rýmum hússins, tvöfaldri svalaopnun út í garð á neðri hæð, útgengi út á stórar og skjólgóðar svalir úr hjónasvítu, svefnherbergjum og baðherbergi efri hæðar. Í húsinu eru tvö baðherbergi auk gestasnyrtingar. Húsið sem er í heildina 212,9 fm að stærð, þar af bílskúr 25,1 fm, verður afhent á byggingarstigi 5, tilbúið til innréttinga að innan, sparslað og málað auk þess sem rafmagn verður fullfrágengið. Að utan verður húsið fullbúið með afgirtum garði og grófjafnaðri lóð. Myndir fylgja af fullbúinni, sambærilegri eign.

Hafðu samband og fáðu senda skilalýsingu og söluyfirlit. Nánari upplýsingar veitir Elín Urður, aðstm., s.690 2602/ 820 6511, [email protected] eða Halla, fasteignasali, [email protected].

Nánari lýsing skv. teikningu:  
1. hæð
Komið er inn í forstofu þar sem gert er ráð fyrir góðum skápum,  innangengt í bílskúr. Gengið er áfram í einstaklega bjart og fallegt alrými þar sem stofa, borðsstofa og eldhús með eyju flæða saman. Gólfsíðir gluggar og tvöföld svalaopnun út í afgirtan garð.  Á hægri hönd frá forstofu er gestasalerni, þvottahús og geymsla með útgengi í garð að aftanverðu. Hiti í gólfi. Gengið upp steyptan stiga á efri hæð.

2. hæð
Þegar komið er upp stiga er komið inn í sjónvarpshol sem mætti með auðveldum hætti breyta í herbergi ef þörf er á. Tvö rúmgóð svefnherbergi, stórt baðherbergi með upphengdu salerni og stórri sturtu. Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Útgengt er út á stórar, ca. 35 fm svalir frá öllum herbergjum efri hæðar, auk baðherbergis. Svalirnar eru sérlega skjólgóðar með mjög fallegu útsýni. Gert er ráð fyrir heitum potti. 

Virkilega áhugaverð eign þar sem mikil áhersla er lögð á lúxus og nútímalegan lífsstíl. 

Staðsetningin: 
Húsin eru í nýju og eftirsóttu hverfi á skjólsælum stað í Helgafellshverfinu í Mosfellsbæ þar sem flestar götur vísa í verk Halldórs Laxness. Örstutt göngufæri í Álafosskvos og falleg útivistarsvæði. Nýr og glæsilegur skóli, Helgafellsskóli, verður tekinn í notkun í byrjun 2019

Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt, 0,3% af brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.000,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - sjá gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu samkv. samningi/kauptilboð
 

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Raðhús á 1. hæð
212

Fasteignamat 2025

122.050.000 kr.

Fasteignamat 2024

120.100.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband