Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu:
Álfhólsveg 143a í Kópavogi. Vel skipulögð og björt efri hæð ásamt bílskúr í tvíbýlishúsi. Íbúðin er 141,6 fm, þar af bílskúr 26,8 fm. 5-6 herbergja hæð með útsýni til Bláfjalla og Esjunnar, tvennum suðursvölum og sameiginlegum garði með neðri hæð. Grunnskóli er handan götunnar, tveir leikskólar eru í nokkurra mínútna göngufjarlægð, strætósamgöngur, tómstundarútur íþróttafélaga og allar helstu stofnæðar innan seilingar. Öll þjónusta er í nærumhverfi. Fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Í þessu vinsæla hverfi eru íbúðarhæðir með möguleika á svona mörgum herbergjum fátíðar - Eign sem vert er að skoða!** Rafmagn í íbúð er nýyfirfarið og rafmagnstenglar endurnýjaðir. Íbúðin er nýlega máluð (2016-2017). Nýlegt harðparket er á stofu, forstofu, herbergjum og gangi. Seljandi er að skipta út öllum gluggum og gleri íbúðar mót suðri, sem eru í stofu og hjónaherbergi ásamt tveimur svalahurðum. Verið er að heilsteypa stærra svalagólf og er viðgerð á lokastigi. Múrviðgerð á suðurvegg milli glugga og svalagólfs lokið.**
Nánari lýsing:Anddyri: Sérinngangur. Komið er inn í anddyri á neðri hæð með góðum fataskáp fyrir útifatnað. Teppi á gólfi og tröppum upp á efri hæð. Stór gluggi sem gefur góða birtu.
Forstofa: Tröppur liggja upp í rúmgóða forstofu. Þar er mjög drjúgur tvöfaldur skápur (102 cm á dýpt). Næst forstofu er eitt svefnherbergi, gestasalerni, þvottahús auk þess em hægt er að ganga úr forstofu í eldhús og stofur. Harðparket á gólfi. Anddyri og forstofa var málað nýlega.
Eldhús: er mjög rúmgott með góðum borðkrók við glugga. Hvít innrétting með stórum búrskáp og öðrum stórum kústaskáp. Eldavél með keramikhelluborði. Tengi fyrir uppþvottavél. Tveir stórir gluggar til austurs. Korkur á gólfi. Eldhúsið er samliggjandi við borðstofu og stofu í opnu og mjög björtu rými.
Stofa og borðstofa: Stórar suðursvalir eru meðfram allri stofunni og borðstofunni. Möguleiki er að stúka af herbergi þar sem nú er sjónvarpshorn. Screen-gardínur eru fyrir öllum gluggum í stofu- og borðstofu. Nýlegt ljóst harðparket á gólfi.
Gangur er í framhaldi af stofu með mjög stórum og rúmgóðum skáp eftir veggnum að þriggja herbergja svefnherbergjaálmu og baðherbergi.
Hjónaherbergi: Fataskápur fyllir einn vegg. Góðar suðursvalir út frá hjónaherbergi. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Harðparket á gólfi, gluggi til vesturs. Lítið en rúmgott herbergi.
Svefnherbergi 3: Harðparket á gólfi, gluggi til norðurs. Lítið en rúmgott herbergi. Möguleiki að sameina herbergi 2 og 3 í eitt stærra herbergi.
Svefnherbergi 4: Er rúmgott og L-laga. Það er frammi í holi næst stiganum og gestasalerni og því aðeins frá herbergjaálmu. (er ekki á myndum,en merkt geymsla á teikningu). Harðparket.
Baðherbergi: Er snyrtilegt með góðri innréttingu, flísalögðu gólfi og sturtuklefa. Gluggi.
Gestasalerni: Er í holi við stiga með handlaug og skáp ofan salernis.
Þvottahús: Er næst eldhúsinu inn af holi. Það er með góðri innréttingu og glugga (ekki á myndum).
Bílskúr: er alls 26,8 fm með inngangi á tvenna vegu, innkeyrsluhurð og útidyrahurð ásamt glugga.
Sameign: Garður mót suðri ásamt stórri innkeyrslu er við húsið. Næg bílastæði.
Svefnherbergin eru fjögur talsins, þrjú á svefnherbergisgangi og eitt rúmgott forstofuherbergi og hentar því vel stærri barnafjölskyldum. Herbergið í forstofunni er í útleigu í dag með aðgangi að gestasalerni og eldhúsi. Kaupendur hafa möguleika á yfirtöku leigusamnings.
Hægt er að bæta fimmta svefnherberginu við, þar sem nú er sjónvarpshol. Mjög mikið geymslupláss er í íbúðinni í nýlegum skápum og innréttingu á baðherbergi frá Axis. Fallegt útsýni er úr íbúðinni og gluggar á öllum hliðum hússins.
Nánari upplýsingar um framkvæmdir.Ástandsskýrsla og verðmat vegna framkvæmda utandyra liggja fyrir. Framkvæmdir verða teknar í áföngum í samráði við eigendur neðri hæðar. Stofnað var húsfélag nýverið með hússjóðsgjaldi kr. 15.000 á mánuði til að safna fyrir framkvæmdum.
Nánasta umhverfi:Íbúðin er í grónu hverfi í austurbæ Kópavogs. Fjöldi skemmtilegra gönguleiða og örstutt út á friðaða Digranesheiðina. Kópavogsdalur, Fossvogsdalur og Elliðaárdalur í göngufjarlægð. Öll þjónusta í nærumhverfi. Álfhólsskóli er hinum megin götunnar með gervigrasfótboltavelli og Skólahreystisbraut ásamt nýjum leiktækjum. Leikskólarnir Álfaheiði, Fagrabrekka og Efstihjalli í göngufjarlægð og Kópahvoll nokkuð nálægt. HK handboltahöllin og Skólahljómsveit Kópavogs ásamt Hjallakirkju. Strætósamgöngur nærri sem og tómstundarútur Gerplu, Breiðabliks og HK stoppa á Skálaheiði. Stutt leið er á stofnæðar höfuðborgarsvæðisins. Verslanakeðjur og Mjóddin eru í næsta nágrenni, þrjár verslanir Bónuss, Krónan Lindum, Iceland Engihjalla, Nettó, Hagkaup Smáralind, skyndibitastaðir, nokkur bakarí, Brynjuís o.fl.
Bókaðu skoðun og fáðu söluyfirlit sent strax hér
Skráðu þig hér ef þú vilt fá sms eða tölvupóst þegar það er opið hús Allar nánari upplýsingar varðandi eignina veita:Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir sölustjóri s. 897 7712 netfang:
[email protected] og
Einar Harðarson löggiltur fasteignasali. s. 662 5599 netfang:
[email protected]Kaupstaður fasteignasala, Ármúla 42, 3 hæð.Netfang:
[email protected]Sími: 546 0600
kaupstadurfasteigna.isFylgdu okkur á
FacebookPöntun á fríu sölumatiNánari upplýsingar
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 50.000 - 75.000 kr. af skuldabréfi.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eignanúmer : 803005
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 54.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 45.100.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 387.712
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 141.6
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 04.05.2018
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 14.06.2018
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 04.05.2018
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 200
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Álfhólsvegur 143A
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : hæðir
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1969
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 1
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 2
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Álfhólsvegur
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 143
Húsnúmer eignarinnar.