08.10.2017 781695

Söluskrá FastansRánargata 3

101 Reykjavík

hero

27 myndir

56.900.000

429.434 kr. / m²

08.10.2017 - 40 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 16.11.2017

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

132.5

Fermetrar

Fasteignasala

Eignamiðlun

[email protected]
8249096
Hjólageymsla
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Eignamiðlun kynnir: 

Eignamiðlun ehf kynnir eignina , Ránargata 3A,  falleg hæð og ris í tvíbýlí í miðbænum. Egnin er laus til afhendingar.

Eignin er skráð 132,5 fm hjá þjóðskrá Íslands.

Falleg hæð og ris í tvíbýli á þessum frábæra stað í 101. Þrjú mjög góð svefnherbergi og sjónvarpshorn eða vinnukrókur, stórt skemmtilegt eldhús með borðstofu og góðar stofur auk baðherbergis og þvottahúss. Sólríkur suður garður. Tvö samliggjandi geymsluherbergi í kjallara auk sameignar þar sem m.a. er salerni. Eignin er skráð 132,5 fm en í risi eru til viðbótar 15 fm undir súð.
Til viðbótar við skráða fermetra fylgir  um 66% hlutdeild í 30 fm sameign í kjallara.  Þar fyrir utan er hlutdeild í yfirbyggðum gangi sem hentar td fyrir hjól.  
Gengið er inn um sameiginlegan inngang með íbúð á neðri hæð.
Húseignin hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina.
Nánari lýsing: 
Komið er í parket lagt hol .  Á hægri hönd er baðherbergi með opnanlegum glugga, baðkeri  og léttri innréttingu. Beint af augum er einstaklega skemmtilegt stórt bjart eldhús með borðstofu.  Gott skápapláss er í innréttingu.  Þaðan er komið inn í bjartar samliggjandi stofur með gluggum út í skjólgóðan og sólríkan suðurgarð. Gott þvottahús með glugga er á hæðinni. 
Gengið er upp fallegan stiga upp á efri hæð eignarinnar þar sem eru þrjú mjög góð svefnherbergi undir súð þannig að þau eru stærri  en skráðir fermetrar segja til um. Skemmtilegur þakgluggi er yfir tröppum gefur góða birtu og á stigapalli er bjart rými sem nýta má td sem vinnukrók eða sjónvarpshorn.
Á neðri hæð er fallegt gegnheilt olíuborið eikarparket, en á efri hæð eldra parket.
Í kjallara eru tvö samliggjandi geymsluherbergi sem tilheyra íbúðinni samtals 21,9 fm bæði með glugga út í garð.   Lofthæð þar  2,12 m skv eignaskiptayfirlýsingu.
Yfirbyggður gangur sem ekki er inni í skráðum fermetrum  er á milli Ránargötu 3A og Ránargötu 5, sem er í sameign beggja húsanna.  Hann nýtist afar vel sem hjólageymsla og geymsla svo sem fyrir garðhúsgögn.
Á árunum 1999/2000 var að sögn eigenda húsið einangrað að innan og sett  gifs á veggi, raflagnir, neysluvatnslagnir og frárennslislagnir endurnýjaðar.  Nýjir ofnar og ofnalagnir voru settir á neðri hæði, en í risi eru eldri ofnar.
Einstaklega heillandi og skemmtileg eign  sem leynir á sér  á besta stað í 101, sjón eru sögu ríkari.

Nánari upplýsingar veitir H. Daði Hafþórsson Sölufulltrúi, í síma 8249096, tölvupóstur [email protected] og Gunnar J Gunnarsson lögg.fasteignasali í síma 527-2747 eða [email protected]

Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu [email protected]

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook


Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
75

Fasteignamat 2025

62.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

60.200.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
79

Fasteignamat 2025

64.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

62.150.000 kr.

010301

Íbúð á 3. hæð
84

Fasteignamat 2025

66.400.000 kr.

Fasteignamat 2024

64.300.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband