Söluauglýsing: 781129

Setberg 10

815 Þorlákshöfn

Verð

43.700.000

Stærð

268.2

Fermetraverð

162.938 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

32.850.000

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 820 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Snyrtilegt og vel viðhaldið einbýlishús í grónu hverfi í Þorlákshöfn. Eignin er alls 268,2m2 að stærð og er sérbyggður bílskúr 91,0m2 þar af. Húsið er steypt múrað og málað að utan, málað bárujárn er á þaki. Að innan skiptist eignin í forstofu, baðherbergi, 5 svefnherbergi, þvottahús, sjónvarpshol, stofu og eldhús. Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er fatahengi. Þvottahúsið er flísalagt og þar er gott vaskborð. Innaf þvottahúsi er flísalögð geymsla með hillum. Í þvottahúsi er flísalögð sturta og salerni í sitt hvoru rýminu. Herbergin eru öll parketlögð og eru skápar í þrem þeirra. Baðherbergi er með flísum á gólfi, þar er lítil innrétting og baðkar. Parket er á gólfi í sjónvarpsholi og stofu, loft er upptekið í stofu og hurð er út á sólpall á baklóð í sjónvarpsholi. Eldhúsið er með flísum á gólfi en þar er snyrtileg innrétting með fínum tækjum. Bílskúr er sérbyggður, steyptur og er hann múraður og málaður að utan. Skúrinn er tvöfaldur og með tveim innkeyrsluhurðum. Að innan er skúrinn múraður og málaður. Innst í skúrnum er búið að útbúa um 30m2 herbergi. Góður sólpallur er á baklóð, lóðin er gróin og fallega ræktuð. Innkeyrsla er mjög stór og hellulögð.
Í heildina er um að ræða rúmgott og mjög snyrtilegt einbýlishús á góðum stað í Þorlákshöfn.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga og í síma 894-2045-Þorsteinn eða 856-2300 Árni.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband