08.06.2017 770227

Söluskrá FastansRánargata 3

101 Reykjavík

hero

33 myndir

57.700.000

435.472 kr. / m²

08.06.2017 - 16 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 23.06.2017

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

132.5

Fermetrar

Fasteignasala

Miklaborg

[email protected]
773-6000
Hjólageymsla
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Miklaborg og Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali s:773-6000 kynna mjög heillandi hæð og ris í tvíbýli á þessum frábæra stað í 101. Sólríkur suður garður. Þrjú mjög góð svefnherbergi og sjónvarpshorn eða vinnukrókur, stórt skemmtilegt eldhús með borðstofu og góðar stofur auk baðherbergis og þvottahúss. Tvö samliggjandi herbergi í kjallara auk sameignar þar sem m.a. er salerni. Eignin er skráð 132,5 fm en í risi eru til viðbótar 15 fm undir súð.

Til viðbótar við skráða fermetra fylgir  um 66% hlutdeild í 30 fm sameign í kjallara.  Þar fyrir utan er hlutdeild í yfirbyggðum gangi sem hentar td fyrir hjól.  

Gengið er inn um sameiginlegan inngang með íbúð á neðri hæð.

Komið er í hol, þar sem beint af augum er lítið þvottahús með opnanlegum glugga.  Á hægri hönd er baðherbergi með opnanlegum glugga, baðkeri  og léttri innréttingu. Beint af augum er einstaklega skemmtilegt stórt bjart eldhús með borðstofu.  Gott skápapláss er í innréttingu.  Þaðan er komið inn í bjartar samliggjandi stofur með gluggum út í skjólgóðan og sólríkan suðurgarð.

Gengið er upp fallegan stiga upp á efri hæð eignarinnar þar sem eru þrjú mjög góð svefnherbergi undir súð þannig að þau eru stærri  en skráðir fermetrar segja til um. Skemmtilegur þakgluggi er yfir tröppum gefur góða birtu og á stigapalli er bjart rými sem nýta má td sem vinnukrók eða sjónvarpshorn.

Á neðri hæð er fallegt gegnheilt olíuborið eikarparket, en á efri hæð eldra parket.

Í kjallara eru tvö samliggjandi herbergi sem tilheyra íbúðinni samtals 21,9 fm bæði með glugga út í garð.   Lofthæð þar  2,12 m skv eignaskiptayfirlýsingu.

Yfirbyggður gangur sem ekki er inni í skráðum fermetrum  er á milli Ránargötu 3A og Ránargötu 5, sem er í sameign beggja húsanna.  Hann nýtist afar vel sem hjólageymsla og geymsla svo sem fyrir garðhúsgögn.

Á árunum 1999/2000 var að sögn eigenda húsið einangrað að innan og sett  gifs á veggi, raflagnir, neysluvatnslagnir og frárennslislagnir endurnýjaðar.  Nýjir ofnar og ofnalagnir voru settir á neðri hæði, en í risi eru eldri ofnar.

Einstaklega heillandi og skemmtileg eign  sem leynir á sér  á besta stað í 101, sjón eru sögu ríkari.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali í s:773-6000 og [email protected]

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Engir þinglýstir kaupsamningar fundust á þessari eign

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

VerðsagaVerðsaga

Byggt á þinglýstum kaupsamningum

Ekki tókst að sækja verðsögu á þessari eign

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

AuglýsingasagaAuglýsingasaga

Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum

Ekki tókst að sækja fleiri auglýsingar

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
75

Fasteignamat 2025

62.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

60.200.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
79

Fasteignamat 2025

64.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

62.150.000 kr.

010301

Íbúð á 3. hæð
84

Fasteignamat 2025

66.400.000 kr.

Fasteignamat 2024

64.300.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband