Söluauglýsing: 766245

Engimýri 15

210 Garðabær

Verð

75.500.000

Stærð

258.9

Fermetraverð

291.618 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

68.200.000

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 12 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

ÁSBYRGI FASTEIGNASALA S. 568-2444, KYNNIR: VORUM AÐ FÁ Í SÖLU FALLEGT 218,2 FM. EINBÝLISHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM ÁSAMT 40,7 FM BÍLSKÚR SEM ER INNRÉTTAÐUR SEM ÍBÚÐ. HÚSIÐ ER ÞVÍ ALLS 258,9 FM.

Nánari lýsing:
Anddyri með skáp, flísar á gólfi. Þvottahús innaf anddyri með innréttingu, flísar á gólfi. Gestasnyrting með sturtu, innrétting, flísar á veggjum og gólfi. Svefnherbergi með skáp, parket á gólfi. Húsbóndaherbergi með skáp og borði, flísar á gólfi. Rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, eldunareyju, góður borðkrókur, flísar á gólfi, útgengt úr eldhúsi. Stór og björt stofa með útgengt út á suðurverönd. Geymsla undir stiga. Parketlagður stigi upp á 2.hæð.
2.hæð sem er undir súð skiptist í parketlagt hol. Hjónaherbergi sem skipt upp í svefnrými og fataherbergi, parket á gólfi.  Tvö barnaherbergi annað með skáp, parket á gólfum. Baðherbergi með baðkari, innrétting, flísar á veggjum og gólfi. Sjónvarpshol með arinn, parket á gólfi, stórar svalir útaf sjónvarpsholi. Bílskúrinn er innréttaður sem íbúð og er í útleigu.
Lóð að mestu frágenginn, hellulagt bílplan.


Mæligrind í húsinu þarfnast verulegrar lagfæringar.
Ekki er tekin ábyrgð á snjóbræðslulögn í plani og er væntanlegum kaupendum bent er á að kynna sér ástands snjóbræðslulagnarinnar sérstaklega vel.
Einnig viljum við að tilboðsgjafi kynni sér ástand allra lagna fyrir utan hús sérstaklega vel. Sjáanlegar rakaskemmdir eru á nokkrum stöðum í húsinu.

Lítill kofi sem stendur á lóðinni fylgir ekki með eigninni  og verður hann fjarlægður þaðan alveg á næstunni.



Seljandi eignaðist fasteignina í skuldaskilum og hefur aldrei haft starfsemi eða afnot af eigninni. Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á það við kaupanda að hann gæti sérstakrar árvekni við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi eða fasteignasali kaupanda allan nauðsynlegan aðgang til þess.
Eigandi leggur ríka áherslu á að væntanlegir kaupendur láti fagmenn taka eignina út.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband