Söluauglýsing: 743710
Njálsgata 58B
101 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 6 daga.
- Dagsetning skráningar: 14.07.2016
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 20.07.2016
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 6 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Eignamiðlun kynnir:
Stórglæsileg og endurnýjuð 3ja herbergja 69 fm hæð í litlu tvíbýlishúsi við Njálsgötu í Reykjavík. Íbúðin er frábærlega staðsett í rólegum hluta miðbæjarins. Þá er hún opin og björt og hefur öll verið endurnýjuð á smekklegan hátt. Sér inngangur.Nánari lýsing:
Komið er í anddyri og opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa. Fallegir gluggar en auk þess er þakgluggi í þessu rými sem eikur birtu. Parket á góflum. Til vinstri við stofu er parketlagt svefnherbergi með skáp. Til hægri við eldhús er parketlagt herbergi og baðherbergi. Baðherbergið er glæsilegt, flísalagt með innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt tvöföldum sturtuklefa. Stór handklæðaofn. Íbúðinni fylgir sér geymsla.
Að utan var húsið nýlega málað. Auk þess var nýlega skipt um járn og pappa á þaki. Garður snýr til suðurs, í skjóli frá norðanáttinni, er glæsilegur með hellulögn og viðarverönd með skjólveggjum auk matjurtagarðs. Auk þess hefur rafmagn, vatnslagnir, ofnar verið endurnýjað en nánari lýsingu á framkvæmdum má sjá á meðfylgjandi viðhengi söluyfirlits.
Besta aðkoman að húsinu er af svokölluðum ,,öskustíg‘‘, þar sem askan frá kolabrennsluofnum liðinnar tíðar var sótt á öskubílum, sem liggur milli Njálsgötu og Bergþórugötu (sjá kort). Einnig er hægt að koma að húsinu frá Njálsgötu, en þá er gengið í gegnum lóðina að Njálsgötu 58 (grátt bárujárnshús) og komið að bakhlið hússins við Njálsgötu 58B.
Nánasta umhverfi: Öll þjónusta er í næsta nágrenni. Leikskólinn Barónsborg er í 70m fjarlægð. Tveir aðrir leikskólar ligga einnig mjög nálægt, annar ofar á Njálsgötunni og hinn á Bergþórugötu. Fleiri eru í næsta nágrenni. Austurbæjarskóli er í 100m fjarlægð og framhaldsskólar miðbæjarins (MR, Kvennó, Tækniskólinn) ásamt söng- og tónlistarskólum eru í göngufæri. Háskóli Íslands og Háskóli Reykjavíkur eru innan seilingar. Sundhöll Reykjavíkur er í næsta húsi en þar opnar glæsileg viðbót næsta vor. Sömuleiðis eru í bígerð matarmarkaður á Hlemmi og ný samgöngumiðstöð á lóð BSÍ.
Öll þjónusta miðbæjarins, s.s. veitingastaðir, leikhús, Harpan, verslanir, apótek, skemmtistaðir og stórir vinnustaðir, s.s. Landspítalinn og Borgartúnið, eru svo í göngufæri án þess þó að íbúar finni nokkuð fyrir því að vera búsettir í hringiðu miðbæjarins. Þar sem húsið er bakhús við lítið keyrða íbúagötu verða íbúar ekkert varir við bílaumferð og eiga heimili með rólegum og sólríkum suðurgarði í miðborg Reykjavíkur.
Allt húsið var endurnýjað að innan 2011-2012. Garður og húsið að utan gerð upp 2012-2016. Öll gólfefni, flísalagnir, innréttingar, hurðir, öll tæki í eldhúsi og baði etc. eru ný síðan 2012. Nýir gluggar og gler í öllum opum 2012. Ný útidyrahurð 2013
Önnur íbúð í sama húsi er til sölu, sjá hér: http://www.mbl.is/fasteignir/fasteign/743715/?q=bc8f2ca2e672ecdf8de1529880043c45&item_num=1
FRÁBÆRT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST GULLFALLEGA OG ENDURNÝJAÐA ÍBÚÐ Í RÓLEGU UMHVERFI Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR - SÉRINNGANGUR.
Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu [email protected].
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 743710
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 36.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 26.700.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 534.783
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 69
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 14.07.2016
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 20.07.2016
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 14.07.2016
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 101
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Njálsgata 58B
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: hæðir
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1923
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 1
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Njálsgata
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 58
Húsnúmer eignarinnar.