Fasteignamarkaðurinn ehf. í síma 570-4500 kynnir til sölu glæsilega 127,5 fermetra 3ja herbergja íbúð á 1. hæð, með svölum til norðausturs, að meðtalinni 9,6 fermetra sér geymslu í kjallara í 3ja hæða lyftuhúsi við Löngulínu nr. 22 í Garðabæ. Sér stæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu, merkt 01 B30, fylgir íbúðinni.
Staðsetning er frábær við sjávarsíðuna í Garðabæ og stutt í frábær útivistarsvæði, sem og alla þjónustu.
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, 2 baðherbergi, þvottahús, barnaherbergi, stórt hjónaherbergi með fataherbergi, sjónvarpsrými og svalir. LANGALÍNA 20-22-24-26, SKILALÝSING 12.06.2016 1. Frágangur innanhúss 1.1 Gólfefni Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar. Flísar verða 30x60 sm. á gólfum á baðherbergi og þvottahúsi. Flísar á veggjum á baðherbergi verða 30x60 sm. Flísar koma frá Birgisson ehf.
1.2 Veggir Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 7 eða sambærilegt.
1.3 Loft Steypt loft eru slípuð, sandspörsluð og fínúðuð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu þar sem við á.
1.4 Gler Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum Samverk glerframleiðanda.
1.5 Sólbekkir Sólbekkir frá Fanntófell eru úr harðplasti með ABS-laser kanti.
1.6 Hurðir Yfirfelld hurð EICS-30 inn í íbúðina og yfirfelldar innihurðir spónlagðar úr eik fylgja fullfrágengnar. Hurðirnar eru frá Parka og framleiddar í Þýskalandi.
1.7 Fataskápar Fataskápar (fataherbergi þar sem við á) eru í svefnherbergjum og forstofu. Innréttingar eru frá Brúnás ehf. og eru að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir spónlagðar með eik.
1.8 Eldhús Eldhúsinnrétting frá Brúnás ehf. er að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir eru spónlagðar með eik með hvítum efri skápum og með 30mm kvarsi eða stein borðplötum frá S.Helgasyni steinsmiðju, ásamt vaski og blöndunartækjum frá Tengi. Spónlögð plata úr eik verður á milli innréttinga sem nær upp í loft. Höldur í innréttingu verða kantaðar. Einnig fylgir AEG 6000w glerhelluborð, 3000w ofn með blæstri, 900w örbylgjuofn, hljóðlát uppþvottavél 44db alklæðanleg ásamt gufugleypi með kolasíu frá Bræðrunum Ormsson ehf.
1.9 Baðherbergi Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innréttingar eru að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir sprautulakkaðar hvítar. Á baðherbergi verða speglaskápar og borðplata úr gegnheilu harðplasti. Höldur í innréttingu verða kantaðar. Handlaug í innréttingu, handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri verður á baðherbergi. Innbyggt blöndunartæki frá Tengi er í sturtu. Hitastýrt blöndunartæki frá Tengi er við handlaug.
1.10 Þvottahús Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás ehf. úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki á vegg eða borði. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
1.11 Sérgeymsla Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru með timburgrind og málaðri plötuklæðningu. Sérgeymslur eru án innréttinga með hvítmálaðri yfirfelldri hurð þar sem við á. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.
1.12 Timburverandir Timburverandir fylgja íbúðum á jarðhæð þar sem við á. Borin verður ein umferð af pallaolíu í ljósum lit.
1.13 Hitakerfi Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita- sem og ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.
1.14 Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
1.15 Rafmagns- og sjónvarpslagnir Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstengill er íalrými ásamt tölvutengli. Tölvutenglar verða í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Dimmar verða á innfelldum ljósum.
2. Frágangur sameignar 2.1 Anddyri og stigahús Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af plastmálningu. Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir. Stigahlaup að kjallara er flíslagt. Á stigum og pöllum eru uppset handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.
2.2 Hurðir Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurð er úr áli. Innri anddyrishurð er úr áli með mótorknúinni hurðarpumpu. Hurðir frá bílgeymslu gegnum brunastúkur eru með rafmagnsopnun.
2.3 Lyftur Fólkslyftur eru af gerðinni Schindler 3300® og eru tilbúnar til notkunar í stigahúsum.
2.4 Lokað bílageymsluhús Bílgeymsla er niðurgrafin með Troldtekt-plötum og/eða einangrun í lofti þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru ýmist pússaðir, hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílgeymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæð.
2.5 Hjóla- og vagnageymslur Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir slípaðir og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.
2.6 Sorp og sorpgeymslur Sorpgeymsla er í hverri sameign. Veggir eru með múrfiltun og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.
3. Frágangur utanhúss 3.1 Klæðning og einangrun Húsið er einangrað með 125 mm steinull og álklætt að mestu að utan. Kjallaraveggir og fleira eru með múrfiltun og málaðir eða með steiningu eftir því sem við á.
3.2 Steypt þak Þakplata er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypa plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum tjörupappa. Einangrun er 200 mm rakaþolin þrýstieinangrun. Ofaná einangrun kemur vatnsvarnardúkur með öndun, einangrun er fergt með sjávarmöl/völusteinum. Niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
3.3 Timburþök Bogaþök eru einangruð með 225mm þakeinangrun og klædd með bárujárni. Rennur og niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
3.4 Svalir Svalagólf eru steypt og slípuð. Svalahandrið eru úr áli og gleri. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru steypt slípuð grunnuð og máluð.
3.5 Svalaskjól Leyfilegt er að setja glerskjól á svalir þar sem annaðhvort eru steyptar svalir yfir eða steypt skyggni. Hinsvegar er ekki leyfilegt að setja svalalokanir á 1. hæð hússins við sólpalla.
3.6 Gluggar Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Gluggasmiðjunni. fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
3.7 Lóð Lóð er fullfrágengin með grasþökum og gróðri samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru malbikuð.
4. Hönnuðir Arkitektar: Guðmundur Gunnlaugsson og Gunnar Páll Kristinsson,Rýma arkitektar.
Verkfræðihönnun: VEKTOR - hönnun & ráðgjöf
Raflagnahönnun: Helgi Kr. Eiríksson, Lúmex
Lóðahönnun: Inga Rut Gylfadóttir, Forma ehf.
5. ByggingaraðiliByggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.,
www.bygg.is 6. Afhendingartími Íbúðir í Löngulínu 20-26 verða afhentar í tvennu lagi:
Langalína 24-26: September 2016 Langalína 20-22: Desember 2016 Sameign að utan og lóð verða afhent sumarið 2017. Bílgeymsla verður afhent í janúar 2017.
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunnar. 7. Til áréttingar - Seljandi áskilur sér rétt til að láta breyta teikningum á byggingartímanum í samráði við arkitekta og hönnuði að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna.
- Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt gluggann, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.
- Íbúðareigandi gæti þurft að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum.
- Svalagólf er nauðsynlegt að sílanbera á ca. 2ja ára fresti ef þau eru ekki flísalögð.
- Nauðsynlegt er að sílanbera steiningu á ca. 2ja ára fresti.
- Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki.
- Íbúðaeigendum er kunnugt um dælur í dælubrunnum sem þarf að fylgjast með skipulega svo og niðurföll sem þarf að hreinsa sem og öryggisdælu.
- Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi, áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni, afhenda fulltrúa Bygg undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp.
- Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu.
- Aðalhurðir á hverju stigahúsi svo og bílageymsluhurðir verður að fylgjast vel með og umgangast þannig að engar þvinganir verði við umgang þeirra. Reglulegt viðhald hurðanna er nauðsynlegt.
- Hafi kaupandi einhver umkvörtunarefni fram að færa vegna hinnar seldu íbúðar, skal hann strax beina umkvörtun sinni til umsjóna- og tæknistjóra hússins.
- Íbúðarkaupendur gera sér grein fyrir að í sérgeymslum og öðrum geymslum geta verið lagnir í loftum og á veggjum sem nauðsynlegar eru vegna lagnaleiða hússins.
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum