09.06.2016 741012

Söluskrá FastansLangalína 22

210 Garðabær

hero

15 myndir

64.000.000

490.046 kr. / m²

09.06.2016 - 211 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 05.01.2017

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

130.6

Fermetrar

Fasteignasala

Fjárfesting Fasteignasala ehf

[email protected]
562-4250
Lyfta
Kjallari
Sólpallur
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU STÓRGLÆSILEGA ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ VIÐ SJÁVARSÍÐUNA Í SJÁLANDI Í GARÐABÆ. 
Glæsilegar 2ja til 5 herbergja íbúðir, 93,7 fm. til 188,4 fm. að stærð, að Löngulínu 20 til 26 í Garðabæ, fjölbýlishúsi með lyftu sem gengur alveg niður í bílageymslu.  
Langalína 20-26 stendur alveg við sjóinn í Sjálandinu og er þar glæsilegt sjávarútsýni.
Glæsilegar íslenskar eikarinnréttingar.   
Sólpallar fylgja íbúðum á jarðhæðum og góðar svalir íbúðum á 2. og 3. hæð.
Stæði í bílageymslu fylgja öllum íbúðum.
 

Bókið skoðun hjá Óskari í síma 822-8750 eða hjá Guðjóni í síma 846-1511 ([email protected], [email protected])


Nánari lýsing:
3ja herbergja íbúð, 130,6 fm á 2. hæð, merkt 02-08. Íbúðin er með svalir sem snúa í norðaustur.

SKILALÝSING

Frágangur innanhúss 

Gólfefni
Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar. Flísar verða 30x60 sm. á gólfum á baðherbergi og þvottahúsi. Flísar á veggjum á baðherbergi verða 30x60 sm. Flísar koma frá Birgisson ehf.
Veggir
Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 7 eða sambærilegt.
Loft
Steypt loft eru slípuð, sandspörsluð og fínúðuð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu þar sem við á.
Gler
Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum Samverk glerframleiðanda.
Sólbekkir
Sólbekkir frá Fanntófell eru úr harðplasti með ABS-laser kanti.
Hurðir
Yfirfelld hurð EICS-30 inn í íbúðina og yfirfelldar innihurðir spónlagðar úr eik fylgja fullfrágengnar. Hurðirnar eru frá Parka og framleiddar í Þýskalandi.
Fataskápar
Fataskápar (fataherbergi þar sem við á) eru í svefnherbergjum og forstofu. Innréttingar eru frá Brúnás ehf. og eru að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir spónlagðar með eik.
Eldhús
Eldhúsinnrétting frá Brúnás ehf. er að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir eru spónlagðar með eik með hvítum efri skápum og með 30mm kvarsi eða stein borðplötum frá S.Helgasyni steinsmiðju, ásamt vaski og blöndunartækjum frá Tengi. Spónlögð plata úr eik verður á milli innréttinga sem nær upp í loft. Höldur í innréttingu verða kantaðar. Einnig fylgir AEG 6000w glerhelluborð, 3000w ofn með blæstri, 900w örbylgjuofn, hljóðlát uppþvottavél 44db alklæðanleg ásamt gufugleypi með kolasíu frá Bræðrunum Ormsson ehf.
Baðherbergi
Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innréttingar eru að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir sprautulakkaðar hvítar. Á baðherbergi verða speglaskápar og borðplata úr gegnheilu harðplasti. Höldur í innréttingu verða kantaðar. Handlaug í innréttingu, handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri verður á baðherbergi. Innbyggt blöndunartæki frá Tengi er í sturtu. Hitastýrt blöndunartæki frá Tengi er við handlaug.
Þvottahús
Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás ehf. úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki á vegg eða borði. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
Sérgeymsla
Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru með timburgrind og málaðri plötuklæðningu. Sérgeymslur eru án innréttinga með hvítmálaðri yfirfelldri hurð þar sem við á. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.
Timburverandir
Timburverandir fylgja íbúðum á jarðhæð þar sem við á. Borin verður ein umferð af pallaolíu í ljósum lit.
Hitakerfi
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita- sem og ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.
Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir
Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
Rafmagns- og sjónvarpslagnir
Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstengill er íalrými ásamt tölvutengli. Tölvutenglar verða í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Dimmar verða á innfelldum ljósum.
 
Frágangur sameignar 

Anddyri og stigahús
Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af plastmálningu. Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir. Stigahlaup að kjallara er flíslagt. Á stigum og pöllum eru uppset handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.
Hurðir
Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurð er úr áli. Innri anddyrishurð er úr áli með mótorknúinni hurðarpumpu. Hurðir frá bílgeymslu gegnum brunastúkur eru með rafmagnsopnun.
Lyftur
Fólkslyftur eru af gerðinni Schindler 3300® og eru tilbúnar til notkunar í stigahúsum.
Lokað bílageymsluhús
Bílgeymsla er niðurgrafin með Troldtekt-plötum og/eða einangrun í lofti þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru ýmist pússaðir, hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílgeymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæð.
Hjóla- og vagnageymslur
Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir slípaðir og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.
Sorp og sorpgeymslur
Sorpgeymsla er í hverri sameign. Veggir eru með múrfiltun og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.
 
Frágangur utanhúss 

Klæðning og einangrun
Húsið er einangrað með 125 mm steinull og álklætt að mestu að utan. Kjallaraveggir og fleira eru með múrfiltun og málaðir eða með steiningu eftir því sem við á.
Steypt þak
Þakplata er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypa plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum tjörupappa. Einangrun er 200 mm rakaþolin þrýstieinangrun. Ofaná einangrun kemur vatnsvarnardúkur með öndun, einangrun er fergt með sjávarmöl/völusteinum. Niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
Timburþök
Bogaþök eru einangruð með 225mm þakeinangrun og klædd með bárujárni. Rennur og niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
Svalir
Svalagólf eru steypt og slípuð. Svalahandrið eru úr áli og gleri. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru steypt slípuð grunnuð og máluð.
Svalaskjól
Leyfilegt er að setja glerskjól á svalir þar sem annaðhvort eru steyptar svalir yfir eða steypt skyggni. Hinsvegar er ekki leyfilegt að setja svalalokanir á 1. hæð hússins við sólpalla.
Gluggar
Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Gluggasmiðjunni. fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
Lóð
Lóð er fullfrágengin með grasþökum og gróðri samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru malbikuð.

Hönnuðir
Arkitektar: Guðmundur Gunnlaugsson og Gunnar Páll Kristinsson,Rýma arkitektar.
Verkfræðihönnun: VEKTOR - hönnun & ráðgjöf
Raflagnahönnun: Helgi Kr. Eiríksson, Lúmex
Lóðahönnun: Inga Rut Gylfadóttir, Forma ehf.
 
Byggingaraðili
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is

Afhendingartími

Íbúðir í Löngulínu 20-26 verða afhentar í tvennu lagi:
Langalína 24-26: September 2016
Langalína 20-22: Desember 2016
Sameign að utan og lóð verða afhent sumarið 2017. Bílgeymsla verður afhent í janúar 2017.
 
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunnar.

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010109

Íbúð á 1. hæð
140

Fasteignamat 2025

110.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

104.800.000 kr.

010107

Íbúð á 1. hæð
133

Fasteignamat 2025

110.000.000 kr.

Fasteignamat 2024

103.750.000 kr.

010108

Íbúð á 1. hæð
129

Fasteignamat 2025

108.950.000 kr.

Fasteignamat 2024

102.800.000 kr.

010207

Íbúð á 2. hæð
150

Fasteignamat 2025

119.750.000 kr.

Fasteignamat 2024

112.950.000 kr.

010208

Íbúð á 2. hæð
130

Fasteignamat 2025

109.900.000 kr.

Fasteignamat 2024

103.700.000 kr.

010209

Íbúð á 2. hæð
142

Fasteignamat 2025

113.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

107.200.000 kr.

010307

Íbúð á 3. hæð
151

Fasteignamat 2025

124.200.000 kr.

Fasteignamat 2024

117.100.000 kr.

010308

Íbúð á 3. hæð
134

Fasteignamat 2025

114.600.000 kr.

Fasteignamat 2024

108.100.000 kr.

010309

Íbúð á 3. hæð
139

Fasteignamat 2025

115.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

109.250.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband