Söluauglýsing: 729446

Spónsgerði 3

600 Akureyri

Verð

45.900.000

Stærð

173.2

Fermetraverð

265.012 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

37.400.000

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 1432 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Einkasala
Til sölu fimm herbergja einbýlishús á góðum stað efst á brekkunni. Húsið er byggt árið 1973 og er samtals 173,2 fm. að stærð. Þar af er bílskúr 42 fm. og er hann með tveimur innkeyrsluhurðum. Garður er gróinn og tveir sólpallar við húsið að sunnanverðu. Heitur pottur er á sólpalli. 

Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, hol, stofu, eldhús, þvottahús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Dökkar flísar eru á forstofu. Parket er á forstofuherbergi en möguleiki  er að stækka það. Á holi, stofu og herbergjum er parket sem nýlega er búið að pússa. Í stofu eru loft tekin upp og setur það skemmtilegan svip á eignina. Úr stofu er gengið út á pall. Eldhús var tekið í gegn fyrir nokkrum árum. Þar er hvít sprautulökkuð innrétting. Ný og vönduð eldunartæki. Gólf er flísalagt en búið er að setja gólfhita í eldhúsgólfið. Þvottahúsgólf er lakkað en í þvottahúsi er ný hvít innrétting. Bakdyrainngangur er um þvottahús. Baðherbergi er nýlega endurnýjað, þar eru flísar í hólf og gólf, baðkar og sturta með glerskilrúmi. Góð innrétting er á baði og handklæðaofn. Búið er að setja gólfhita í baðherbergisgólf. Herbergi eru rúmgóð en í þeim eru nýir fataskápar. 

Annað:
Búið er að skipta um gler og glerlista í svefnherbergjum og hluta af stofugluggum. 
Nýr matjurtargarður er á baklóð.
Mögulegt að loka milli bílskúrs og húss og útbúa stóra forstofu.
Tvöfalt bílastæði framan við húsið. 

 

Fletta í fasteignalista

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband