02.09.2015 716367
Vindakór 10
203 Kópavogur
9 myndir
43.800.000
310.638 kr. / m²
02.09.2015 - 2 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 03.09.2015
4
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
141m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2015Fasteignamat
-Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2290850Byggingarnúmer*
1113506Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Ekki tókst að greina fasteignasölu.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Vindakór 10-12, SKILALÝSING 10.08.2015
- Frágangur innanhúss
1.1.Gólfefni
Íbúðin sjálf er afhent án gólfefna, nema á baðherbergi, þvottahúsi og anddyri en þar verða flísar. Flísar eru frá Parka 30 x 60cm á gólfum og hvítar 25 x 50cm á veggjum baðherbergja eða sambærilegt.
1.2.Veggir
Útveggir íbúðar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandspartlaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir og sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu gljástig 7-10. Baðherbergisveggir verða flísalagðir í ca. 2ja metra hæð.
1.3.Loft
Steypt loft eru slípuð, sandspörsluð og fínúðuð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu gljástig 2-4 %.
1.4.Gler
Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler, er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum Samverk glerframleiðanda.
1.5.Sólbekkir
Sólbekkir frá Fanntófell eru plastlagðir með lítið rúnnuðum framkanti.
1.6.Hurðir
Útihurðar íbúða eru frá Berki. Innihurðar eru yfirfelldar og spónlagðar með eik og fylgja fullfrágengnar. Hurðar í geymslum íbúða eru hvítar. Hurðirnar eru frá Parka og framleiddar í Þýskalandi.
1.7.Fataskápar
Fataskápar í svefnherbergjum og forstofu eru úr eik. Sýnilegar hliðar og hurðir spónlagðar með eik frá HTH innréttingum ( Ormsson) en að innan úr plasthúðuðum spónaplötum.
1.8.Eldhús
Eldhúsinnrétting frá HTH innréttingum, spónlögð með eik, hvítum efri skápum og plastlagðri borðplötu með beinum kanti. Innrétting er að innan úr plasthúðum spónaplötum. Eldhúsvaskur og blöndunartæki í eldhúsi eru frá Tengi. Eldhústæki eru AEG frá Bræðurnir Ormsson, 6000w glerhelluborð, 3000w ofn með blæstri, gufugleypir með kolasíu.
1.9.Baðherbergi
Á baðherbergi er gólf flísalagt svo og veggir í ca. 2ja metra hæð. Þar er innrétting spónlögð úr eik, sýnilegar hliðar og hurðir, en að innan úr plasthúðuðum spónaplötum. Einnig er spegill, handlaug í innréttingu, handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni ásamt sturtubaði með glerþili. Hitastýrð blöndunartæki frá Tengi eru við baðkar. Baðherbergisloft er málað með málnigu í 30% gljáa.
1.10. Þvottahús
Innrétting í þvottahúsi er neðri skápur með skolvask í borði og blöndunartækjum í borði. Gólf verður flísalagt. Niðurfall er í gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkurum.
1.11. Sérgeymsla
Steypt loft og veggir sérgeymslu eru hreinsaðir og málaðir. Skilveggir á milli geymslna eru með timburgrind og plötuklæðningu, en án innréttinga og með hvítmálaðri yfirfelldri hurð fyrir. Loft, veggir og gólf eru máluð.
1.12. Ofnakerfi
Sameiginlegt ofnakerfi (hitaveita) er í öllu húsinu. Ofnakerfið fylgir frágengið og eru hitastýrðir lokar á því.
1.13. Loftræstilagnir, vatns og skólplagnir
Loftræstilagnir ásamt vatns- og skolplögnum er skilað með áföstum blöndunartækjum eftir því sem að við á. Forhitari er á heitu neystluvatni.
1.14. Rafmagns- og sjónvarpslagnir
Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin og er fullfrágenginn mynddyrasími með einu símtóli í íbúð. Loftnetstenglar eru í alrými og hjónaherbergjum. Símatengil er í alrými og herbergjum?
- Frágangur sameignar
2.1.Anddyri og stigahús
Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum en stigar og stigapallar teppalagðir. Stigahlaup að kjallara verður flísalagt ásamt stigapalli á inngangshæð og í kjallara. Á stiga og pöllum eru uppsett handrið. Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangar eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu
2.2.Hurðir
Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurð er úr áli með rafmagnsopnun. Innri anddyrishurð er álhurð með rafmagnsopnun. Hurðir frá bílageymslu gegn um brunastúku eru með rafmagnsopnun.
2.3.Lyftur
Lyfta frá Kone er í sameign.
2.4.Bílageymsla
Bílageymsluhús er í kjalara. Þar eru heraklithplötur í lofti. Útveggir eru einangraðir og múrhúðaðir. Steyptir veggir eru hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir í ljósum lit. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir fullfrágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Hurð fyrir bílageymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á íbúð.
2.5.Hjóla- og vagnageymslur
Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru málaðir.
2.6.Sorp og sorpgeymslur
Sorpgeymsla er í sameign og utan við bílageymsluhús. Veggir í sorpgeymslu eru filtaðir/ múraðir og málaðir.
- Frágangur utanhúss
3.1.Klæðning og einangrun
Húsið er einangrað að innan mað 100 mm plasteinangrun og múrað. Húsið er múrað með litmúr og/eða steinað að utan með marmarasalla. Lyftuhús er einangrað að utan og klætt báruáli.
3.2.Þak
Þak er flatar steinsteypuplötur með ásoðnum tjörupappa og einangrun þar ofaná , einangrað með 200-250 mm eftir lambdagildi einangrunar í samræmi við gr. 180.3. Rennur og niðurföll eru tengd regnvatslögnum.
3.3.Svalir
Svalagólf eru staðsteypt og slípuð upp úr steypu. Handrið úr áli og gleri er á stigagangi raman við íbúðir. Á sérsvölum íbúða eru handrið galvinseruð og klædd álplötum. Útiljós og rafmagnstengill eru á svölum.
3.4.Gluggar
Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Berki. Opnanleg gluggafögfylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
3.5.Lóð
Lóð er fullfrágengin með grasþökum og gróðri samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið skv. teikningu. Bílastæði eru malbikuð.
- Hönnuðir
Arkitekt: Kristinn Rgnarsson (KRark) teiknaði húsið.
Verkfræðihönnun var unnin af Jóni Kristjánsyni verkfræðingi.
Raflagnahönnun var unnin af Tesla ehf raflagnahönnun Stórahjalla 9 Kópavogi.
- Byggingaraðili
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. www.bygg.is
- Afhendingartími
Vindakór 10-12 verður afhent í september 2015 ásamt bílageymslu.
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hlutum í henni, að ósk kaupanda, geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunar. Afhendingartími (greiðsludagur afhendingar) er sá dagur sem byggingarfélagið áætlar að skila íbúðum óbreyttum.
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Engir þinglýstir kaupsamningar fundust á þessari eign
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 716367
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 43.800.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 0
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 310.638
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 141
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 02.09.2015
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 03.09.2015
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 02.09.2015
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 203
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Vindakór 10-12
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2015
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 1
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Vindakór
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 10
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).