20.09.2024 1324054

Söluskrá FastansStrandgata 9

220 Hafnarfjörður

hero

22 myndir

Tilboð

0 kr. / m²

20.09.2024 - 1 dag á Fastanum - Enn í birtingu

0

Svefnherbergi

0

Baðherbergi

235.9

Fermetrar

Kjallari
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Sögulegt kaffihús ásamt byggingarreit við strandgötu 9 í Hafnarfirði. Súfistinn hefur verið til starfa í húsinu frá 1994 og tekið virkan þátt í að breyta og móta kaffi- og kaffihúsamenningu á Íslandi.
Búið er að heimila stækkun á veitingasal ásamt því að gera kjallara og 6 litlar íbúðir á besta stað í hjarta Hafnarfjarðar. Samtals stærð að framkvæmdum loknum væri 882 fm.


Miklir möguleikar eru í boði en búið er að gera ráð fyrir veitingahúsi á jarðhæð, íbúðir á 2. og 3. hæð og kjallari yrði nýttur sem geymsla fyrir íbúðir og lageraðstaða fyrir starfsemi.
Góður sérafnotaflötur fylgir eigninni á þrjá vegu sem hægt væri að nota undir starfsemi.
Ekki er þó slegið í stein að mathöll/veitingastarfsemi þurfi að vera á 1. hæð og því er möguleiki fyrir kaupanda á að gera t.d. verslun eða skrifstofur.

Saga hússins og staðsetning hefur mikið aðdráttarafl að sér en Súfistinn var fyrsta "reyklausa" kaffihús landsins. Samkvæmt tillögum að nýju miðbæjarskipulagi spilar húsið mikilvæga stöðu menningarlífs í Hafnarfirði.
Afskaplega gott skjól myndast í kringum húsið og því hafa Hafnfirðingar notið þess til mikils að sitja fyrir utan og baða sig í sólinni síðan húsið var byggt 1912.

Nafn og viðskiptavild Súfistans ásamt fasteign eru til sölu.

Óskað er eftir tilboði.

Allar nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / [email protected] 

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is


 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Kaffihús á 1. hæð
235

Fasteignamat 2025

68.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

64.400.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband