19.09.2024 1323024

Söluskrá FastansVesturbakki 7

815 Þorlákshöfn

hero

17 myndir

24.900.000

245.079 kr. / m²

19.09.2024 - 2 dag á Fastanum - Enn í birtingu

0

Svefnherbergi

0

Baðherbergi

101.6

Fermetrar

Fasteignasala

Domusnova

[email protected]
618-0064

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

*** GOTT VERÐ - Laust við kaupsamning *** 
ÓDÝRASTA IÐNAÐARBILIÐ Í ÞORLÁKSHÖFN ***

Domusnova fasteignasala og Sölvi Sævarsson lgf. kynna: Iðnaðarbil/ geymsluhúsnæði að Vesturbakka 7, á besta stað við höfnina í Þorláksshöfn.

Um er að ræða Vesturbakki 7F iðnaðarbilið er 30 fm millilofti og stiga upp á milliloft ásamt baðherbergi með salerni - Verð 24.900.000.- 

Byggingin er á tveimur hæðum, neðri hæð hvers bils er skráð 71,6 m2. Búið er að setja upp milliloft í sum bilin sem eru um 30 m2. Alls er því bilið með millilofti 101,6 m2.
Gólf eru járnbent, staðsteypt og vélslípuð.  Húsið skilast með ræstivask og hægt að koma fyrir salerni. Lóðin er malbikuð með nægum bílastæðum. Húsið skilast fullfrágengið samkvæmt lýsingu.
GOTT FJÁRFESTINGARTÆKIFÆRI Húsið skiptist í 12 einingar. Inntaksrými er í norður enda hússins og er sameiginlegt.

Allar nánari upplýsingar veitir:  Sölvi Sævarsson lgf. í síma 618-0064 eða [email protected] 

Nánari lýsing:

Uppbygging húss:
Húsið er byggt ofan á steypta sökkla með hefðbundinni staðsteyptri plötu.
Útveggir:
Burðargrind hússins er úr límtré, klædd með PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Veggeiningar eru 80mm á þykkt með microrib áferð. Litur RAL 7016. Málningarhúð á veggeiningum er 55 míkron á þykkt og valin sérstaklega til að verjast betur gegn UV-geislun (upplitun) og veðrun.
Milliveggir:
Milliveggir eru úr álstoðum klæddir með spónarplötum og gifsi, einagraðir með steinull. Veggirnir eru sparslaðir og málaðir.
Hurðir:
Innkeyrsluhurðir eru frá Gluggatækni, litur RAL 7016 með samlitum trégluggum. Stærð hurða 380x400. Húsið er með vönduðum tré gluggum og hurðum. Litur RAL 7016.
Þak:
Þak er byggt upp með 100mm þykkum PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Málningarhúð 200 míkron. Litur RAL 7016.

Á húsinu hvílir vask kvöð upp á kr 1.910.000 miðað við dags 01.12.2022

Nánari upplýsingar veita:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða [email protected] 
 – eða skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Iðnaður á 1. hæð
74

Fasteignamat 2025

16.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

14.250.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband