05.09.2024 1315700
Valhúsabraut 27
170 Seltjarnarnes
44 myndir
178.900.000
737.732 kr. / m²
05.09.2024 - 12 dag á Fastanum - Enn í birtingu
5
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
242.5m²
Fermetrar
Tegund
EinbýliByggingarár
1958Fasteignamat
156.450.000Inngangur
SérinngangurFastanúmer*
-Byggingarnúmer*
1025082Brunabótamat
102.900.000Verðmat Fastans
185.374.253
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Glæsilegt útsýni er frá húsinu til sjávar og fjalla og stendur það við götu efst á Valhúsahæð til móts við friðlýst grænt svæði. Lóð hússins er eignarlóð og mögulegt er að auka byggingarmagn á henni talsvert samkvæmt skipulagi. Húsið er á tveimur hæðum og getur nýst í heilu lagi eða sem tvær aðskildar íbúðir.
Nánari lýsing:
Efri hæð: Komið er inn í anddyri í stigahúsi milli hæða, teppalagður stigi tengir saman efri og neðri hæð hússins. Á stigapalli við inngang að hæðinni er fatahengi og einnig annað stærra á herbergja gangi þegar inn í sjálft íbúðarrýmið er komið. Á hæðinni eru 2 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, borðstofa og stofa. Nýleg gólfefni eru á hæðinni, að undanskyldu baðherbergi, ullarteppi á herbergjum, glæsilegt parket úr hnotu frá Agli Árnasyni á alrými og náttúrukorkur á eldhúsi. Glæsileg borðstofa og stofa með aukinni lofthæð og fallegri gluggasetningu setja svip sinn á rýmið, frá borðstofunni er hægt að ganga út á svalir sem snúa til suðurs. Frá borðstofu og stofu er einkar fallegt útsýni. Eldhúsið er einkar rúmgott og glæsilegt með sérsmíðaðri innréttingu frá GKS innréttingum. Vönduð borðplata frá Granítsteinum sem nær upp á veggi með innfelldri Led lýsingu, innfelldur vaskur í borðplötu, skápar með lýsingu fyrir ofan borðplötu á einum vegg, innbyggð uppþvottavél og ný stór frístandandi eldavél með span helluborði með stórum ofni frá SMEG. Hjónaherbergið er rúmgott með vel skipulögðu fataherbergi inn af sem í eru góðir fataskápar með innfelldri lýsingu, út frá hjónaherberginu er gengið út á svalir sem snúa að friðlýstu grænu svæði á Valhúsahæð. Hægt er að breyta fataherberginu aftur í svefnherbergi ef fjölga þarf herbergjum. Barnaherbergi á hæðinni er staðsett á móti hjónaherberginu og er með glugga sem snýr að Valhúsahæð. Baðherbergið er flísalagt hólf í gólf með mosaik flísum, baðkar og hvít innrétting undir handlaug.
Neðri hæð: Gengið er inn um anddyri í stigahúsi milli hæða og niður teppalagðan stiga, komið er inn í hol með parketi á gólfi og fatahengi. Á hæðinni eru 3 svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi og þvottahús. Rúmgóð stofa með parketi á gólfi, aukinni lofthæð og gólfsíðir gluggar til suðurs. Inn af stofunni er rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi. Gengið er inn í hin tvö svefnherbergin frá svefnherbergja gangi. Annað þeirra er með parketi á gólfi og útgengi út í garð hússins en hitt með nýlegu teppi á gólfi, nýjum ofni og glugga sem snýr að Valhúsahæð. Baðherbergið er með glugga og hefur nýlega verið endurnýjað. Stórar gráar flísar á gólfi, baðkar með sturtutækjum, hvít innrétting með skúffum neðan handlaugar og speglaskápur með lýsingu fyrir ofan, handklæðaofn. Eldhúsið er með snyrtilegri hvítri innréttingu með skápum ofan og neðan borðplötu, helluborð með viftu fyrir ofan og ofn, borðkrókur. Gengið er inn í þvottahúsið frá stigapalli, það er með glugga, lökkuðu gólfi og niðurfalli.
Bílskúr: Bílskúrinn er 35 m2 að stærð, göngudyr og rafdrifinn hurðaopnari á bílskúrshurð. Í skúrnum er rafmagn, heitt og kalt vatn. Tengi fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er á gafli hússins við bílastæði fyrir framan bílskúrinn.
Annað: Lóð hússins er gróin með trjágróðri, tyrfðum flötum og holtagrjóti. Húsið hefur nýlega verið töluvert endurnýjað, m.a neysluvatnslagnir og frárennsli í nýju eldhúsi á efri hæð, öll gólfefni á efri hæð hússins að undaskyldu baðherbergi, baðherbergi á neðri hæð endurnýjað, tengt við 3fasa rafmagn í húsið og rafmagnstafla uppfærð, lagt fyrir og tengd 3 fasa hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Skipt um gler og þéttilista í 3 gluggum. Í tíð fyrri eiganda eða um 2016 var dregið nýtt rafmagn í húsið og skipt um rafmagnstöflu.
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða [email protected]
Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um skyldu kaupenda til að skoða fasteignir.
BORG fasteignasala vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna áður en gert er kauptilboð og leita til hæfra sérfræðinga til frekari skoðunar.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða fyrir kaupin:
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8 / 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Verðmat
185.374.253 - 185.374.253Fjöldi samninga
68Áætl. fermetraverð
764.430 kr./m²Staðalfrávik
12.69%
Ath. að Verðmat Fastans er enn í þróun og byggir í dag á mjög grunnum upplýsingum.
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1315700
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 178.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 102.900.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 156.450.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 737.732
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 242.5
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 05.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar :
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur :
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 170
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Valhúsabraut 27
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1958
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 8
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 5
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 2
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 0
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Valhúsabraut
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 27
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
010101
Íbúð á 1. hæð
222 m²
Fasteignamat 2025
159.400.000 kr.
Fasteignamat 2024
156.450.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina