04.09.2024 1315058
Hlíðarfótur 21
102 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
- Dagsetning skráningar: 04.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Enn í birtingu
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 4 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
LIND Fasteignasala og Guðrún Antonsdóttir kynna með stolti nýjar íbúðir við Hlíðarenda, glæsilegar íbúðir við HLÍÐARFÓT 21. Byggingaraðli er DALHÚS. Íbúðirnar afhendast fullbúnar að innan, með gólfefnum, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp með frysti og ljósum. Ljós eru innbyggð að hluta, kubbaljós, ljósakúplar og kastarar fylgja. Baðherbergi eru flísalögð, bæði veggir og gólf. Gólf á þvottahúsum eru flísalögð.
*** Nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 621-2020, tölvupóstur [email protected]. ***
Nánari lýsing eignar 218, 4ra. herbergja íbúð á annari hæð með svalir, sér aflokaðri verönd og bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi.
Forstofa með harðparketi á gólfi og yfirhafnaskáp.
Stofa og opið eldhús, hvít innrétting með eyju. Gengið er út á svalir frá pall, hurð er á pallinum til að fara út á sameignilegan garð.
Rúmgóð þrjú svefnherbergi, með fataskáp.
Baðherbergi með sturtu, ljósri innréttingu, handlaug og upphengdu salerni og handklæðaofn.
Sér þvottahús fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.
Rúmgóð geymsla í kjallara
Bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi
Áætluð afhending er VIÐ KAUPSAMNING
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: hlidarendi.is
Dalhús hefur sérhæft sig í byggingu gæða íbúðarhúsnæðis. Eigendur félagsins eru með áratuga reynslu í byggingu íbúða sem nú telja þúsundir. Aðaleigandi félagsins er Sigurður Sigurgeirsson og framkvæmdastjóri er Bjarni Már Bjarnason (byggingarstjóri). Sigurður og Bjarni hafa starfað saman í 30 ár að uppbyggingu íbúða með hagsmuni kaupenda að leiðarljósi.
Metnaður Dalhúss hefur verið bygging fullbúinna íbúða og góð þjónusta við kaupendur. Allar íbúðir afhendast með gólfefnum, helstu ljósum og öllum nauðsynlegum raftækjum í eldhúsi þannig að kaupandi getur flutt inn án mikillar fyrirhafnar.
Stutt lýsing húss:
Hlíðarfótur. Er stórglæsilegt 15 ibúða fjölbýlishús á fimm hæðum með 3ja og 4ra herbergja íbúðum
* Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS innréttingum, hvítar, svartar eða hnota
* Fataskápar frá Parka, hvítir í herbergjum og forstofu
* Innbyggður ísskápur m. frysti, span helluborð og vifta. Blásturbakarasofn allt frá AEG, vifta frá Gíra
* Blöndunartækin eru frá Tengi en svört blöndunartæki frá GKS.
* KR Ark sér um alla hönnun
Bílastæðahús og bílskúrar:
Bílgeymsla er lokuð og upphituð (frostfrí) með loftræstingu. Allar íbúðir eiga eitt bílastæði.
Sameiginlegt bílastæðahús er fyrir heildar húsið.
Ytri frágangur og lóð.
Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin. Að utan verður húsið frágengið á eftirfarandi hátt. Þak er steinsteypt, með ásoðnum tjörupappa, einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate) og möl er lögð þar ofaná. Frágengin niðurföll. Húsið er að mestu einangrað og klætt að utan, en múraðir fletir eru málaðir.
Um svæðið og nærliggjandi: Miðbærinn er í göngufæri og því yndislegt að fá sér stuttan göngutúr á veitingahús, söfn, tónleika, sund eða niður á Tjörn. Íþróttaaðstaða Vals er við Hlíðarenda svæðið því stutt að fara fyrir börn og unglinga sem búa á svæðinu. Gönguleiðir um Öskjuhlíðina og fleirra.
Allir Kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar, með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 8 samstarfsaðilum. meðal annars er Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Ísleifur Jónsson, Parket og Gólf, Betra bak, Dorma og flísabúðinni. Vertu með okkur í liði og fáðu Vildarkort
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á
byggingaframkvæmd stendur.
Allar breytingar að ósk kaupenda þurfa að fara í gegnum skrifstofur seljanda og geta haft áhrif á
afhendingartíma til seinkunnar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka en aldrei til lækkunar.
Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.
Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda.
Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.
Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu. Frekari upplýsingar og skilalýsing er að fá hjá fasteignasala.
**MYNDIR ERU AF EIGNINNI SJÁLFRI, gangur og eldhús aðrar eru á af svipaðri eign í sama húsi ***
*** Nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 621-2020, tölvupóstur [email protected]. ***
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1315058
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 106.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 82.510.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 98.150.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 775.762
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 137.8
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 04.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar:
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 04.09.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 102
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Hlíðarfótur 21
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 2022
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Hlíðarfótur
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 21
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Ekki tókst að sækja eignir.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina