04.09.2024 1314845
Hólavegur 31
550 Sauðárkrókur
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
- Dagsetning skráningar: 04.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Enn í birtingu
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 4 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Bjart og vel skipulagt 142,5 fm einbýlishús með innangengum bílskúr og grónum garði umhverfis húsið auk bílastæða. Íbúðarhluti eignarinnar er 108,8 fm og bílskúrinn 33,7 fm. Teikning af viðarverönd getur fylgt sem er hönnuð í suðurhluta garðsins með útgengi úr stofu. Lóðin sem er 463 fm og nær að stórum hluta kringum húsið. Aftan við hús er afgirtur bakgarður með grasi og nettri viðarverönd ásamt útisnúru. Framan við húsið er stétt. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Malarinnkeyrsla er framan við bílskúr og auk þess eitt aukastæði við hlið innkeyrslu. Fasteignamat 2025 er áætlað kr. 54.350.000,-.
**SÆKTU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**
(TEIKNING AF SAMÞYKKTUM BREYTINGUM Á GLUGGUM OG NÝJU SVALAHURÐINNI Á SUÐURHLIÐ OG 99 FM VIÐARVERÖND FYLGIR
YFIRLITINU)
Núverandi skipulag eignar:
Forstofa, hol/borðstofa, stofa, eldhús, gangur, herbergi, herbergi, herbergi með innangengu herbergi/fataherbergi, þvottahús, bílskúr.
**HALTU ÞITT EIGIÐ OPIÐ HÚS OG SÝNINGU MEÐ ÞVÍ AÐ GANGA UM EIGNINA Í ÞRÍVÍDD MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**
(EKKI ÞARF SÉRSTAKAN HUGBÚNAÐ, BARA SMELLIR Á HVÍTU PUNKTANA TIL AÐ GANGA UM)
Nánari lýsing;
Forstofa: Viðarútidyrahurð með glugga svo hún er björt. Fatahengi og hilla ofan á því. Forstofuhurð með gleri. Nýjar gráar flísar á gólfi.
Hol/borðstofa: Holið tengir saman flest rými eignarinnar. Rýmið er nýtt sem borðstofa í dag. Plastparket á gólfi.
Gangur:Tengir saman hol, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Plastparket á gólfi.
Stofa: Björt með stórum suðurgluggum og hurð út í garð. Plastparket á gólfi.
Eldhús: Uppgerð sprautulökkuð hvít innrétting og hvítar vegghillur, ljósgrá-yrjótt borðplata. Siemens bakaraofn í vinnuhæð, AEG keramikhelluborð, nýr hvítur veggháfur. Tengi fyrir þvottavél og ísskáp. Klæðning í eldhúsi og lofti er nýlega endurnýjað.
Baðherbergi: Endurnýjað baðherbergi með gráum flísum á gólfi og voru 2 veggir klæddir með Duma plötum með flísaútliti frá Byko. Aðrir veggir hvítlakkaðir. Sturta er lokanleg og flísar á gólfi. Hvít innrétting með skúffum undir handlaug og vegghengdur hár skápur. Veggskápur með speglahurðum. Opnanlegur gluggi.
Herbergi I með fataherbergi / herbergi innaf: Stærsta herbergið í húsinu og mjög rúmgott. Það er nýtt sem hjónaherbergi og innaf því er fataherbergi sem er í dag nýtt sem barnaherbergi með tveimur nettum barnarúmum. Rennihurð er á milli rýmanna. Plastparket á gólfi.
Herbergi II: Bjart og rúmgott herbergi með stórum hvítum pax skáp frá Ikea. Plastparket á gólfi.
Herbergi III: Herbergið í er ílangt og mjótt og er nýtt sem vinnuherbergi í dag. Plastparket á gólfi.
Þvottahús: Er innangengt frá eldhúsi. Það er með máluðu gólfi. Veggskápar. Gengið er í bílskúr gegnum þvottahúsið.
Bílskúr: Innangengt er úr þvottahúsi. Viðarhillur meðfram veggjum, Innst er aflokuð geymsla og útgengt er í bakgarð sem er afgirtur en með hliði út í garð sunnanmegin. Girðingin er annars vegar vírnet og hinsvegar úr timbri með hliði á. Nett viðarverönd.
Lóðin: Stór og rúmgóð lóð með grónum sólríkum garði. Verönd er framan við hús með steinhellum, innst í garði sunnanmegin er eldri viðarverönd sem og aftan við er nett viðarverönd. Teikning af stórri viðarverönd fylgir. (sjá í myndir). Gras, runnar og tré. Þvottasnúra.
Framkvæmdasaga síðustu ár:
2024: Húveggir að utan málaðir.
2024: Baðherbergi endurnýjað og neysluvatnslagnir innan rýmisins.
2024: Gólfflísar á forstofu endurnýjaðar
2024: Eldhúsinnrétting filmuð hvít 2024 (innrétting er síðan 2008), klæðning á vegg og lofti ásamt loftlistum endurnýjuð. Nýr hvítur veggháfur
2024: Nýr fataskápur í herbergi II.
2024: Loftaklæðning (KOFRA) í herbergi III endurnýjað.
2019-2023: Hús múrviðgert að utan.2023: Bakhurð úr bílskúr út í garð endurnýjuð.
2023-2024: Jarðvegur grafinn frá húsi 3 hliðar (framan við- aftan við og sunnanmegin (garður). Sett tjara og takkadúkur á hús.
2023: Þakrennur endurnýjaðar.
2020-2022: Allir gluggar endurnýjaðir (ál að utan og viður að innan) utan bílskúrsglugga við bakgarð. Stofuglugga hefur verið breytt og hurð sett út.
Skv. fyrri söluyfirlitum var seljendum tjáð að:
2017: Þakklæðning yfirfarin og endurnýjuð að hluta eða öllu leyti af fyrri eigendum sem skyldi lokið fyrir afhendingu skv. söluyfirliti.
2008: Eldhús endurnýjað af fyrri eigendum. (Ekki er vitað um lagnir þar)
Þakpappi er á bílskúr og vita eigendur ekki aldur hans.
Samandregið er hér um að ræða mikið endurnýjað einbýlishús með 3-4 svefnherbergjum og bílskúr sem er afar vel staðsett í miðjum bænum. Stutt er í alla þjónustu. Eignin getur verið laus fljótlega.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og netfang [email protected]
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 8225124 og netfang [email protected]
Ef þú ert í söluhugleiðingum og vantar verðmat eða fasteignasala þá erum við til þjónustu reiðubúin í samstarf með þér.
Við erum bæði löggiltir fasteignasalar, lögmaður og viðskiptafræðingur með markaðsfræði og nýsköpun sem sérþekkingu.
Við lofum miklum sýnileika sem þarf til að skara framúr öðrum eignum. Við lofum því að eignin þín kemst á topp 10 listann yfir mest skoðuðu eignirnar á fasteignir.is og síendurtekið ef þess þarf. Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum. Linkur er á síðurnar okkar ef þú smellir á nöfnin okkar hér fyrir ofan.
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1314845
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 65.800.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 57.650.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 49.300.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 461.754
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 142.5
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 04.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar:
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 04.09.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 550
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Hólavegur 31
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1960
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Hólavegur
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 31
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina