04.09.2024 1314705
Mávahlíð 3
105 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
- Dagsetning skráningar: 04.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Enn í birtingu
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 6 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Íbúðin skiptist í forstofu, gang, tvö rúmgóð svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Tvær geymslur tilheyra íbúðinni, ein köld geymsla undir útitröppum og önnur geymsla innanhús. Ekki eru mörg ár síðan húsið var steinað og þakjárn málað. Heilsugæslan er skammt frá og stutt er í leik- og grunnskóla. Frábær fyrstu kaup í góðu hverfi fyrir litla fjölskyldu. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs í síma 896-6020 eða á tölvupóstfanginu [email protected].
Íbúðin er 75,1 fm samkvæmt skráningu hjá HMS.
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn á flísalagt anddyri og þaðan inn á parketlagðan gang.
Á hægri hönd er eldhús með nýlegri innréttingu, gluggi, flísar á gólfi.
Baðherbergið er nýlega endurnýjað, með sturtuklefa, flísar á gólfi.
Við enda gangsins er rúmgott svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi. Mögulegt er að gera hurð út í garðinn úr herberginu, en það hefur verið gert í húsi númer 5 sem er samskonar.
Rúmgóð parketlögð stofa og borðstofa er við enda gangsins.
Á hægri hönd við enda gangsins er annað rúmgott svefnherbergi með parket á gólfi og fataskáp.
Sér inngangur.
Sameiginleg vel gróin og snyrtileg lóð.
Sameiginlegt þvottahús á sömu hæð og íbúð, ásamt lítilli geymslu.
Köld útigeymsla er við hliðina á innganginum sem tilheyrir íbúðinni.
Núverandi eigendur keyptu íbúðina í febrúar 2021. Umfangsmiklar framkvæmdir fóru fram í íbúð og að hluta í sameign (þvottahús). Þá var eldhús endurnýjað að öllu leyti, með nýjum eldhústækjum, raflagnir endurnýjaðar, gólf flotað og flísalagt. Skipt um baðherbergisinnréttingu, hreinlætistæki og sturtuklefa. Íbúðin var parketlögð og veggir og hurðir að hluta endurnýjaðar, fataskápar voru settir upp í svefnherbergjum. Skipt var um drenmöl fyrir framan og aftan hús, drendúki komið fyrir og ný drenrör lögð. Skipt var um glugga í eldhúsi í október 2023. Í september 2024 var lokið við að gera við tröppur niður í íbúðina og sáu Múr og Tröppur um framkvæmdina.
Hér er frábær eign á ferðinni fyrir fyrstu kaupendur í grónu og vinsælu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á [email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1314705
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 61.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 35.050.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 56.900.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 824.234
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 75.1
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 04.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar:
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 04.09.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 105
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Mávahlíð 3
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1946
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur:
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 0
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Mávahlíð
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 3
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina