03.09.2024 1314324
Sunnusmári 9
201 Kópavogur
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
- Dagsetning skráningar: 03.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 05.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 1 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 1 daga.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Glæsileg fullbúin 3ja herb. íbúð á efstu hæð með stæði í bílakjallara og svölum til suðvesturs! Geymsla er staðsett við bílastæði og er með tvöfaldri vængjahurð.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar glæsilega og vandaða 114,2 fermetra íbúð (707) á 7. hæð (efstu hæð) í fallegu nýju lyftuhúsi byggðu af ÞG Verk við Sunnusmára 9 í Kópavogi. Sérmerkt stæði í bílakjallara og rúmgóð 15,0 fermetra geymsla í kjallara. Lyfta gengur beint niður í geymslugang og bílakjallara. Svalir snúa til suðvesturs, inn í bakgarð hússins, og eru 6,9 fermetrar að stærð.
Öll eldhústæki fylgja með íbúðinni s.s. innb. kæliskápur með frysti, innb. uppþvottavél, spansuðu helluborð, bakaraofn og eyjuháfur. Vandaðar innréttingar frá GKS eru í íbúðinni. Fallegt harðparket frá Agli Árnasyni er á gólfum og gardínur í öllum gluggum ásamt vönduðum ljósum frá Lúmex. Myndavéladyrasími er í íbúðinni og verið er að klára grunnkerfi fyrir rafhleðslustöðvar í bílakjallara.
Húsið, sem er byggt af ÞG Verk, er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðvesturs sem verður fullfrágenginn.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / [email protected]
Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús með eyju í alrými með stofu og borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á 6,9 fermetra svalir til suðvesturs úr stofu. Stór sérgeymsla með tvöfaldri hurð og sérstæði í bílakjallara.
Anddyri: Með fataskápum frá GKS.
Svefnherbergi: Eru tvö talsins með fataskápum frá GKS.
Stofa: Er rúmgóð. Opin við eldhús. Útgengi á svalir.
Borðstofa: Er rúmgóð. Opin við eldhús. Fallegt útsýni til fjalla.
Svalir: Til suðvesturs inn í skjólgóðan garð og eru 6,9 fermetrar að stærð.
Eldhús: Með eldhúsinnréttingu með eyju frá Nobilia (GKS) og öllum eldhústækjum (Blástursofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél, innbyggður kæliskápur með frysti og eyjuháfur).
Baðherbergi: Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél/þurrkara.
Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.
Byggingaraðili er ÞG Verk sem eru með yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína.
Innréttingar: Í eldhúsi og baðherbergi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia (flutt inn af GKS) og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnrétting er með dökkri viðarárferð (hnota frá GKS) en svörtum efri skápum eða með ljósum innréttingum. Fataskápar eru hvítir. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar á baðherbergi.
Eldhústæki: Íbúðinni fylgja vönduð eldhústæki. Íbúðinni er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.
Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturta er með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Þvottahús er í sér rými.
Aðalhönnuður: Er teiknistofan ARKIS ehf. Hanna verkfræðistofa ehf. sér um hönnun burðarvirkis, Teknis ehf. um hönnun lagna og Lumex um raflagnahönnun.
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1314324
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 92.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 59.640.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 83.450.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 813.485
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 114.2
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 03.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 05.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 03.09.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 201
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Sunnusmári 9
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 2024
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Sunnusmári
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 9
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina