03.09.2024 1314274
Aðalstræti 63
600 Akureyri
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Fasteignamat
- Dagsetning skráningar: 03.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 13.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 9 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 9 daga.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Húsið var byggt árið 1904 og er 292,2 m² að stærð.
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Hæð: Tvær forstofur, eldhús, tvöföld stofa, sólstofa, baðherbergi og þvottahús.
Efri hæð: Þrjú barnaherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi, hol og geymsla.
Kjallari: 2 útleiguíbúðir, stúdíóíbúð og 3ja herbergja.
Aðalinngangur er á vesturhlið og þar er farið upp breiðar steyptar tröppur og gengið inn í dúklagða forstofu.
Annar inngangur er á norðurhlið hússins. Þar er nýleg útidyrahurð og dúkur á gólfi. Við þennan inngang liggur stigi niður í kjallara og upp á efri hæðina.
Eldhúsið er með dúk á gólfi og hvítri sprautulakkaðri innréttingu með viðarbekkplötu og máluðum flísum á milli skápa. Ágætur borðkrokur. Úr eldhúsi er farið út á timburverönd og af henni eru tröppur niður í garð.
Sólstofa er í framhaldi af eldhúsinu og þar er dúkur á gólfi. Eftir er að klæða upp í loftið.
Stofan er tvöföld og þar er parket á gólfi og arinn. Úr stofunni til vesturs gengur fallegt bogadregið útskot sem setur skemmtilegan svip á húsið.
Baðherbergin eru tvö (fyrir utan útleiguíbúðir). Á hæðinni er baðherbergi með marmarakorkflísum á gólfi og fibo trespo þiljum á hluta veggja, dökkri innréttingu og eldri innfelldum skáp með speglahurðum. Upphengt wc, baðkar, handklæðaofn og fallegur eldri gluggi. Baðherbergi á efri hæðinni er með hydro kork á gólfi og fibo trespo þiljum á hluta veggja, ljósri innréttingu, upphengdu wc og sturtu. Gengið er inn á baðherbergið bæði af holi og úr hjónaherbergi.
Svefnherbergin eru fjögur á efri hæðinni, þrjú barnaherbergi með parketi á gólfi og svo rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi, litlu fataherbergi og hurð út á steyptar suður svalir. Epoxy efni er á svalagólfinu.
Þvottahús er með dúk á gólfi og hvítum skápum.
Í kjallara hússins eru tvær litlar útleiguíbúðir, báðar með sérinngangi. Gengið er inn í aðra íbúðina á norðurhlið hússins og hina á austurhlið. Báðar eru íbúðirnar flísalagðar, með snyrtilegum viðarinnréttingum í eldhúsum, og baðkörum á baðherbergjum.
Önnur íbúðin er studíoíbúð og hin 3ja herbergja.
Lóð hússins er afmörkuð með steyptum kanti að stærstum hluta.
Annað
- Húsið er timburhús á steyptum grunni og með timbur gólfi á milli hæða.
- Fyrir um 25 árum síðan var húsið endurnýjað töluvert, húsið einangrað að klætt að utan með bárujárni auk þess sem skipt var um glugga. Einnig var farið í ofna, vatns- og raflagnir.
- Rúmgott bílaplan með perlumöl er norðan við húsið og austurfyrir en sunnan við hús er grasflöt og trjágróður.
- Húsið var múrviðgert að utan sumarið 2017 og sá hluti málaður.
- Sumarið 2019 var þak endurnýjað og árið 2020 voru svalir flotaðar og sett á þær epoxy efni.
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1314274
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 0
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 110.400.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 90.950.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 0
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 292.2
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 03.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 13.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 03.09.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 600
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Aðalstræti 63
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1904
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 9
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 6
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 4
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Tveir inngangar
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 0
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Aðalstræti
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 63
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina