03.09.2024 1313909
Fýlshólar 4
111 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
- Dagsetning skráningar: 03.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Enn í birtingu
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 7 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á sl. árum, m.a. neysluvatnslagnir, öll baðherbergi, eldhúsinnrétting og tæki, gólfefni að stórum hluta, hús viðgert og málað að utan o.fl.
Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð og rúmgóð og bæði með fatahengi og fataskápum.
Barnaherbergi I, innaf forstofu er parketlagt og rúmgott og með fataskápum.
Hol, flísalagt, bjart og rúmgott.
Barnaherbergi II, mjög stórt (á teikningum 2 svefnherbergi), parketlagt.
Baðherbergi I, með glugga og útgengi á lóð, flísalagt gólf og veggir, innrétting, speglaskápar, handklæðaofn, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri.
Barnaherbergi III, parketlagt og stórt með fataskápum.
Þvottaherbergi, mjög rúmgott, flísalagt gólf og miklar innréttingar með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð, vinnuborði og vaski. Úr þvottaherbergi er innangengt í bílskúr.
Líkamsræktarrými, rúmgott, flísalagt gólf og veggir að hluta, stórt hornbaðkar, flísalögð rúmgóð sturta og sauna-bað.
Gengið er upp á efri hæð hússins úr holi neðri hæðar um mjög fallegan, bjartan og breiðan parketlagðan stiga með flísalögðum millipalli. Mjög mikil lofthæð er á efri hæð hússins.
Útsýni frá efri hæð eignarinnar er algjörlega einstakt út á sjóinn, að Snæfellsjökli, Akrafjalli, Esjunni og yfir borgina.
Stigapallur, flísalagður.
Hjónaherbergi, stórt og bjart, parketlagt og bæði með útgengi á svalir til norðurs og á verönd til suðurs.
Fataherbergi, innaf hjónaherbergi er parketlagt og með hengi og hillum.
Baðherbergi, innaf hjónaherbergi, er með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting, vegghengt wc., handklæðaofn og flísalögð sturta með innbyggðum tækjum í vegg, innbyggðum sturtuhaus í loft og sturtugleri.
Eldhús, flísalagt, bjart og rúmgott og með frábæru útsýni. Nýlegar og fallegar viðar + hvítar innréttingar með kvartsteini á borði, innbyggðri uppþvottavél, spanhelluborði með hangangi háfi yfir og tvöföldum ísskáp með klakavél.
Borðstofa, flísalögð, björt og rúmgóð með frábæru útsýni og útgengi á svalir til norðurs og vesturs.
Setustofa, parketlögð björt og rúmgóð með útgengi á svalir til vesturs með frábæru útsýni. Gólfsíðir gluggar eru á setustofu til suðurs, útgengi á um 45 fermetra verönd til suðurs og þaðan á afgirta baklóð.
Húsið að utan lítur vel út og var viðgert og málað árið 2023.
Lóðin, sem er 717,0 fermetrar að stærð, er fullfrágengin með stórri steyptri innkeyrslu, steyptri stétt, malarborinni flöt og grjóthleðslum á framlóð. Baklóð hússins er með stórri afgirtri tyrfðri flöt.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á frábærum útsýnisstað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, íþróttasvæði, sundlaug, verslanir, þjónustu og fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.
Allar nánari upplýsingar og tímapantanir á skoðun veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1313909
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 157.500.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 139.250.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 132.900.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 497.159
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 316.8
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 03.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar:
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 03.09.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 111
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Fýlshólar 4
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1977
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 7
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 5
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 3
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 0
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Fýlshólar
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 4
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
010101
Íbúð á 1. hæð
316 m²
Fasteignamat 2025
140.650.000 kr.
Fasteignamat 2024
132.900.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina