03.09.2024 1313716
Katlahraun 20
815 Þorlákshöfn
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
- Dagsetning skráningar: 03.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Enn í birtingu
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 5 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Glæsilegt og smekklega innréttað 3 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 139 fm. þar af er íbúðarhluti 112.8 fm. og bílskúr 26.2 fm. Stórum sólpallur sem snýr í suður, vestur og norður. Húsið er vel staðsett í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Eignin skiptist í forstofu, í alrými er eldhús og stofu / borðstofu, tvö svefnherbergi, gangur, baðherbergi, þvottahús og bílskúr (geymsluloft).
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt, útgengt út á stóran suður, vestur og norður sólpall, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými með fallegri innréttingu og stórri eyju með miklu skápaplássi, uppþvottavél fylgir með, spanhelluborð á eyju og bakaraofnar sem fyrir eru fylgja ekki með (ný tæki sem fylgja með verða keypt fyrir afhendingu), innfelld ljós í loft, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.
Gangur: Innfelld lýsing, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi, fataskápur, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, falleg innrétting, walk in sturta, upphengt salerni, útgengi út á sólpall, flísar á gólfi og veggjum
Þvottahús: Með góðri innréttingu, skolvaskur, flísar á gólfi.
Bílskúr: Innbyggður 26.2 fm. bílskúr, lúga upp á geymsluloft, epoxy málning á gólf.
Húsið: Húsið er byggt 2021 og er úr timbri og klætt að utan með fínkornuðu steni. Gólfhiti er í húsinu. Innréttingar eru frá Ikea.
Lóð: Framan við húsið er möl í innkeyrslu og stétt að húsi, á suður, vestur og norðurhlið er ca. 90 fm. sólpallur.
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús og náttúruna. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected].
Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1313716
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 83.500.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 65.510.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 66.900.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 600.719
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 139
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 03.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar:
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 03.09.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 815
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Katlahraun 20
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: raðpar
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 2021
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 0
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Katlahraun
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 20
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
010101
Raðhús á 1. hæð
139 m²
Fasteignamat 2025
66.700.000 kr.
Fasteignamat 2024
66.900.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina