03.09.2024 1313695
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
- Dagsetning skráningar: 03.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Enn í birtingu
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 7 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir Jöfursbás 5c, Reykjavík - íbúð 0502. 3ja-4ra herbergja þakíbúð íbúð 137,2fm. á fimmtu hæð (efstu) með óheftu útsýni til sjávar, þar af geymsla 7,5fm. (merkt 0023). Íbúðinni fylgja tvö stæði merkt B033 og B034 í lokuðu bílahúsi. Íbúðin er skemmtilega hönnuð með fallegu eldhúsi með eyju, stofu, borðstofu, tveimur baðherbergjum og tveimur svefnherbergjum með möguleika á öðru innaf stofu. Gólfhiti í allri íbúðinni og gólfsíðir gluggar. Þaksvalir 65fm. með óheftu útsýni til sjávar, þar sem íbúðin er staðsett við strandlengjuna. Ennfremur minni svalir til austurs út frá stofu með mjög miklu útsýni Íbúðin er með aukinni lofthæð allt að 340cm
Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit. Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum. Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.
* sjávarútsýni
* aukin lofthæð
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi
Nánari lýsing íbúðar
Forstofa mjög rúmgóð með stórum gólfsíðum glugga og innbyggðum stórum fataskáp
Eldhús með eyju, góðu skápaplássi og miklu útsýni. Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum og út frá eldhúsi er stór gólfsíður gluggi og útgengi á þaksvalir.
Stofa og borðstofa með gólfsíðum útsýnisgluggum og útgeng á stórar þaksvalir. Glæsilegir gólfsíðir gluggar með útsýni til allra átta.
Baðherbergi eru tvö og flísalögð 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone. Annað baðherbergi innaf hjónaherbergi.
Hjónaherbergi rúmgott með vönduðum fataskáp. Baðherbergi með flísalagðri "walk-in" sturtuklefa innaf hjónaherbergi.
Svefnherbergi #2 mjög rúmgott með góðum fataskáp, gólfsíðum glugga og útsýni m.a. til sjávar
Svefnherbergi # 3 mögulegt innaf stofu
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara
Tvö bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi.
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is
Íbúðirnar í húsinu eru samtals 25 talsins, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 60,0 fm-137,2 m2 Næg stæði fyrir utan hús
// VILDARKORT LINDAR //
Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.
Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki. Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla. Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected]
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1313695
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 144.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 47.050.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 1.070.953
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 135.3
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 03.09.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar:
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 03.09.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 112
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Jöfursbás 5
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 0
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 2
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 0
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Jöfursbás
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 5
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina