02.09.2024 1313358

Söluskrá FastansHallkelshólar lóð 59

805 Selfoss

hero

28 myndir

36.900.000

615.000 kr. / m²

02.09.2024 - 27 dag á Fastanum - Enn í birtingu

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

60

Fermetrar

Fasteignasala

Husfasteign Fasteignasala

[email protected]
8969565

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Sérlega vinalegt sumarhús við Víðilund 59 í landi Hallkelshóla í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Stór pallur, nýlegt eldhús og baðherbergi, - þriggja fasa rafmagn.
Stutt í golfvelli, sundlaugar og fleiri útivistarmöguleika. 

Húsið er byggt í tveimur áföngum, rúmlega 30fm árið 2004 þar sem í dag eru forstofa eldhús og stofa, og svo bætt við tæpum 30fm árið 2022, svefnherbergi, baðherbergi og búri auk þess sem eldhús var endurnýjað og stækkað og allt rafmagn endurnýjað. 
Komið er inn í netta forstofu með hengi fyrir yfirhafnir. Þá gott opið rými stofu og eldhúss með uppteknu lofti, nýlegri eldhúsinnréttingu frá IKEA, Gorenje eldavél, AEG uppþvottavél og Siemens ísskáp með frysti.  Harðparket á gólfum stofu, eldhúss og herbergis og panell á veggjum.  Gott svefnherbergi inn af stofu, og þar við hliðina rúmgott baðherbergi með hornsturtuklefa, þvottavél, handlaug á skúffuskáp og klósetti. Milli herbergis og stofu er lítið búr með dálitlu hilluplássi, skáp og öðrum ísskáp. 
Innbú fylgir við sölu á bústaðnum eftir nánara samkomulagi.
Úti á stórum palli er ca. 10fm gestahús með tveimur rúmum og heldur minni verkfæraskúr. Skjólsælt horn á pallinum á milli þeirra með háum skjólveggjum og garðhúsgögnum.
Að utan er húsið klætt með liggjandi viðarklæðningu, gluggar og hurðir úr tré og bárustál á þaki. 
Dálítil grasflöt er næst húsinu og búið að planta trjám sem veita skjól við húsið, að öðru leiti er lóðin vaxin lingi og mosa. Rauðamöl í heimkeyrslu og öryggishlið inn á svæðið. 
Virkilega hlýlegur bústaður.

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    [email protected]  

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

Ekki tókst að sækja eignir.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband