26.07.2024 1296854

Söluskrá FastansHáeyrarvellir 2

820 Eyrarbakki

hero

66 myndir

49.900.000

320.488 kr. / m²

26.07.2024 - 6 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 01.08.2024

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

155.7

Fermetrar

Ekki tókst að greina fasteignasölu.

Sólpallur
Svalir

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu


MATTHILDUR SUNNA LGFS OG TORG FASTEIGNASALA KYNNA Í EINKASÖLU: 155,7 fm íbúð á tveimur hæðum í tvískiptu húsi við Háeyrarvelli 2, Eyrarbakka. Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu og borðstofu, sjónvarpshol/vinnuaðstöðu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og salerni með þvottaaðstöðu og geymslu.
Eign með mikla möguleika, í fjölskylduvænum bæ þar sem er stutt í náttúruna. Afhending eftir samkomulagi.

Nánari lýsing:

Efri hæð: Komið inn í anddyri og þaðan gengið inn á gang sem tengir rými efri hæðar, eldhús, tvær stofur og baðherbergi.
Eldhús er opið og bjart, með hvítri innréttingu. Gengið er úr eldhúsi út á stóran sólpall/svalir. Stofa er tvískipt og væri hægt að gera helming hennar að herbergi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og sturta. Búið er að fjarlægja gólfefni af öðrum rýmum efri hæðar en baðherbergi.
Teppalagður stigi niður á neðri hæð.
Neðri hæð: Komið er niður stigann í hol sem hægt væri að nýta sem sjónvarpshol eða vinnuaðstöðu.
Þaðan er gengið inn á gang með þremur rúmgóðum svefnherbergjum og salerni með þvottaaðstöðu.
Það er einnig inngangur á neðri hæð, þar sem komið er inn í anddyri með geymslu inn af og gengið inn á svefnherbergisganginn úr anddyrinu.
 
Þörf er á viðhaldi innandyra og hafa nýverandi eigendur hafið ýmsar framkvæmdir. Eignin afhendist í því ástandi sem hún er við skoðun.

Að sögn fyrri eiganda var eftirfarandi gert árið 2009:
Hús og þak klætt
Skipt um gler og hluta af gluggum
Drenað
Rafmagn
Vatns- og miðstöðvarlagnir endurnýjaðar að hluta
Skolplagnir innan húss (stammann) og út í brunn utan við hús og þaðan út í götu endurnýja

Um er að ræða einstaklega áhugaverða eign, með mikla möguleika fyrir handlagna aðila.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Við erum að vinna að uppfærslu á Verðmati Fastans. Það kemur aftur von bráðar.

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
41.500.000 kr.155.7 266.538 kr./m²220017024.03.2022

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010002

Íbúð á jarðhæð
101

Fasteignamat 2025

31.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

27.850.000 kr.

010101

Íbúð á 1. hæð
155

Fasteignamat 2025

40.950.000 kr.

Fasteignamat 2024

36.150.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband