22.07.2024 1295040

Söluskrá FastansIðunnarbrunnur 12

113 Reykjavík

hero

24 myndir

75.900.000

817.888 kr. / m²

22.07.2024 - 63 dag á Fastanum - Enn í birtingu

0

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

92.8

Fermetrar

Fasteignasala

101 Reykjavík

[email protected]
771-5501
Bílskúr
Kjallari
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir: Falleg og björt neðri hæð ásamt bílskúr í tvíbýli með sérafnotareit í garði og sameiginlegum inngangi í Úlfarsárdal í Grafarholti. 
Göngu, hjólaleiðir og Úlfarsfell,  ásamt skóla leikskóla, sundlaug og Fram íþróttafélag er í næsta nágrenni. 


Lýsing eignar: Komið er að sameiginlegum inngangi á jarðhæð og er forstofa flísalögð. Úr forstofu en síðan innangengt bæði í íbúðina og inn í bílskúr eignarinnar, ásamt uppgangi á eftir hæð. 
Komið er inn í bjart alrými íbúðar sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. 

Hjónaherbergi  er á vinstri hönd frá alrými, parketlagt og með góðu skápaplássi.
Baðherbergi flísalagt gólf og veggir að hluta. Baðinnrétting með skúffum og handlaug á borði. Hringspegill með innbyggðri lýsingu ofan við vask. Stórt fallegt baðkar er á baðherbergi. 
Svefnherbergi er á móts við hjónaherbergi, parketlagt og með útgengi út í garð.

Eldhús er með viðar og hvítri innréttingu, góðum búrskáp og með neðri skápum og skúffum. Innbyggður ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, keramik helluborð. Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. 
Stofa/borðstofa samliggjandi parketlagt bjart rými.
Bílskúr er innréttaður sem rúmgott herbergi stúkað af með tjöldum og þar innaf er geymsla. Við enda herbergis er svo baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu við vask og tengi fyrir þvottavél. 

Húsið er nýklætt að utan 2024 með steingrárri microbáru og brotið upp með tréklæðningu í kringum anddyrið. 
Samþykki er fyrir dýrahaldi í húsinu. 
Eigninni fylgir 37,5 fm sérafnotareitur í garði bakatil. 


Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
92

Fasteignamat 2025

70.600.000 kr.

Fasteignamat 2024

69.400.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
106

Fasteignamat 2025

79.800.000 kr.

Fasteignamat 2024

77.900.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband