21.07.2024 1294698

Söluskrá FastansJöfursbás 7

112 Reykjavík

hero

18 myndir

81.900.000

884.449 kr. / m²

21.07.2024 - 5 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 26.07.2024

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

92.6

Fermetrar

Fasteignasala

LIND Fasteignasala

[email protected]
822 2123
Kjallari
Gólfhiti
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir Jöfursbás 7C, Reykjavík - íbúð 0102.  3ja herbergja íbúð íbúð 92,6 m2 á jarðhæð í lokuðu stigahúsi, þar af geymsla 9,2 m2  í kjallara ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara merkt  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með góðu svefnherbergi.  Gólfhiti í allri íbúðinni. Sérafnotaflötur móti hafi út frá stofu klæddur Bambus við.  Aukin lofthæð. laus við kaupsamning.


* sjávarútsýni
* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.


Nánari lýsing
Forstofa rúmgóð og gengt henni innbyggðum fataskáp 
Eldhús með sjávarútsýn opið inn í stofu með sérsmíðaðri innréttingu frá Voke sem nær til lofts.  Innrétting er vönduð með granit borðplötu.
Stofa með gólfíðum glugga og útgengt á sérafnotaflöt íbúðar með stórbrotnu útsýni til sjávar.
Baðherbergi flísalagt bæði gólf og veggir með vandaðri innréttingu með granitborðplötu.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðum skápum sem ná til lofts.
Svefnherbergi (2) er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins

Hjóla-og vagnageymsla í kjallara
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Lofthæð 280 


Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Allar upplýsingar inn á: www.gufunesid.is
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected] 


Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.


 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

Ekki tókst að sækja eignir.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband